Upp í vindinn - 01.05.1999, Page 32
... UPP I VINDINN
Tímamót í þróun byggóar
Inngangur
Á mótum tveggja alda og árþúsunda
stendur höfuðborgarsvæðið á tímamót-
um. Hafin er vinna við fyrsta svæð-
isskipulagið samkvæmt nýjum skipulags-
lögum og er stefnt að því að ljúka þeirri
vinnu árið 2000. Pá verður til forsögn að
endurskoðun aðalskipulags í öllum átta
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Petta skipulagsverk mun móta byggða-
þróun næstu áratugi og áhrifa þess mun
vafalaust gæta langt fram eftir næstu öld.
Það mun stýra fjárfestingum í samgöng-
um og veitum. Pað mun ráða staðarvali
íbúða- og atvinnusvæða, útivistar og mið-
borgarsvæða og hafa þannig bein og óbein
áhrif á ráðstöfun hundruð ef ekki þús-
unda milljarða króna. Það getur haft
veruleg áhrif á daglegt líf, afkomu, við-
horf og menningu höfuðborgarbúa á
næstu öld.
Um aldamótin 2000 er höfuðborgar-
svæðið í vanda sem birtist í útþynntri
byggð, splundraðri miðborgarstarfsemi,
versnandi almenningssamgöngum, víta-
hring einkabílanotkunar, versnandi á-
standi umhverfismála og hnignun mið-
borgarsvæðis höfuðborgarinnar. Orsakir
vandans eru grandvaraleysi í skipulags-
málum og vanræksla á stefnumótun í þró-
un byggðar til langs tíma.
Frá myndun þéttbýlis á i8. öld var
byggðarþróun Reykjavíkur í jafnvægi og
miðbærinn í samræmi við þarfir á hverj-
um tíma. Fólksfjölgun varð ör í byrjun
20. aldar en þá voru íbúar 5.600 en 38
þúsund árið 1940. Margt fór úrskeiðis í
skipulagi á þessum tíma, en á fyrri hluta
20. aldar voru þó settar fram áhugaverðar
skipulagshugmyndir, sem gefa til kynna
að Reykjavík hefði getað þróast úr kraft-
miklurn bæ í heilbrigða borg.
Brábabirgbaflugvöllur
En með hernámi Breta 1940 og bygg-
ingu flugvallar í Vatnsmýri urðu þáttaskil.
Byggð tók að þróast hratt og óskipulega
til austurs. Hvert hverfið af öðru reis í
Reykjavík án þess að fullnægjandi sam-
göngukerfi næði að mótast og víða varð
eftir mikið ónotað land. Um svipað leyti
hófst myndun þéttbýlis í Mosfellsbæ, á
Örn Sigurbsson
arkitekt
Fæddur í Reykjavík 9.
júní 1942. Stúdents-
próf frá Mennta-
skólanum í Reykjavík,
stærbfræðideild. Nám
í byggingarlist við
Strath-Clyde University í Clasgow
1962-1963 og Technische Universitát C.W.
í Braunschweig 1966-1972. Störf á arki-
tektastofum í Þýskalandi til 1975 og á
teiknistofunni Carðastræti 17 til 1979.
Rekstur eigin arkitektastofu frá 1980.
Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Garðabæ og
Bessastaðahreppi, en fram að síðari
heimsstyrjöld voru Reykjavík og Hafnar-
fjörður einu þéttbýlisstaðirnir á þessu
svæði. Nú nær nokkuð samfelld byggð frá
nyrðri mörkum Mosfellsbæjar suður fyrir
Hafnarfjörð og í austri að heiðarlöndum
og vatnasvæðum.
í aðalskipulagi Reykjavíkur til 2016 er
gert ráð fyrir að byggilegt land í Reykjavík
verði fullnýtt á skipulagstímabilinu og
auk þess er talið að allt byggilegt land
innan marka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu verði uppurið fyrir árið 2030
með óbreyttu ráðslagi við skipulag og
nýtingu lands.
Mest öll byggð höfuðborgarsvæðisins
væri líklega á Seltjarnarnesi vestan Elliða-
áa ef ekkert óvænt hefði dunið yfir. En
reyndin varð önnur. Flugvöllurinn í
Vatnsmýri gengur djúpt inn í borgina á
viðkvæmasta stað líkt og öxi stríðsmanns
og nær yfir rúmlega helming nessins.
Svæði innan flugvallargirðingar er 142 ha
og ámóta svæði utan hennar nýtist illa
vegna nálægðar. Flugvöllurinn er sá fleyg-
ur sem endanlega klauf Kópavog frá Sel-
tjarnarneshreppi 1948 og leiddi til upp-
byggingar þriggja sveitarfélaga á litlu
svæði.
Flugvöllurinn hindrar uppbyggingu
stofnbrautakerfis vestur nesið og tekur
upp mikilvægasta byggingarland höfuð-
borgarsvæðisins. Mikil slysahætta, há-
vaða-, sjón- og loftmengun rýra gildi mið-
borgarsvæðisins og íbúða- og útivistar-
svæða í vesturborginni og í Kópavogi, og
stuðla almennt að hnignun þessara
svæða.
í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016
er ákveðið að Reykjavíkurflugvöllur verði
miðstöð fyrir áætlunarflug innanlands á
skipulagstímabilinu. Borgaryfirvöld gera
ráð fyrir að allt annað flug fari af vellin-
um: kennslu-, æfinga- og einkaflug fái að-
stöðu á nýjum flugvelli í nágrenni höfuð-
borgarinnar en öðru flugi verði beint til
Keflavíkur.
Megintilgangurinn með þessari ákvörð-
un er að draga úr flugumferð um völlinn
og minnka þannig óþægindi og áhættu
sem fylgir flugstarfsemi í þéttbýli en
tryggja um leið greiðar áætlunarflugsam-
göngur milli landsbyggðar og höfuðborg-
arsvæðis á skipulagstímabilinu.
Núverandi Reykjavíkurflugvöllur var
byggður sem bráðabirgðavöllur af her-
námsliði Breta og tekinn í notkun í árslok
1941. Völlurinn var látinn „fljóta" sem
kallað er, þannig að um 40-70 sm þykkt
lag af rauðamöl var lagt á mýrar og tún
sem fyrir voru og ofan á malarlagið var
sett 15-20 sm þykkt steinsteypt yfir-
borðslag.
Varanlegur flugvöllur
Nú standa fyrir dyrum framkvæmdir í
Vatnsmýri á vegum Flugmálastjórnar,
sem byggjast munu á því að bráðabirgða-
völlurinn verður fjarlægður. Grafið verð-
ur niður á fast berg og allt að 6 m djúpur
mýrarjarðvegur fjarlægður. Síðan verður
fyllt undir nýjar brautir og flughlöð með
berandi fyllingarefnum, komið fyrir jöfn-
unarlögum og loks lagt tnalbik.
Um er að ræða byggingu nýs og varan-
legs flugvallar í miðborg Reykjavíkur, sem
verður miklu rammbyggðari og afkasta-
meiri en núverandi bráðabirgðavöllur,
sem dugað hefur í tæp 60 ár. Þessi nýi
flugvöllur verður byggður með svipuðu
sniði og á sama stað og núverandi völlur
því þótt stefnur brauta séu ekki eins og
best verður á kosið miðað við vindrós
svæðisins leyfa flugvallarbyggingar og
aðliggjandi borgarbyggð enga stefnu-
breytingu né breiðari brautir rniðað við
núverandi bráðabirgðaflugvöll.
32