Upp í vindinn - 01.05.1999, Qupperneq 46

Upp í vindinn - 01.05.1999, Qupperneq 46
... UPP I VINDINN Evrópuferb 3. ársnema í umhverfis- og byggingarverkfræði vorið 1998 Árni Kristjánsson, Hugrún Hjálmarsdóttir, Hrund Skarphé&ins- dóttir, Pálína Gísladóttir, Steinar Ingimar Halldórsson. Me& í för var prófessor Júlíus Sólnes og eiginkona hans. 19. maí Ferðin hófst eins og vera ber á ferð til Keflavíkur. Par keypt- um við gjafir og annað nytsamlegt. Þegar við vorum komin út í flugvél þá var vélin biluð og þar af leiðandi seinkun. Seinkunin var þó ekki löng og komumst við að endingu til Kaupmanna- hafnar. 20. maí Vorum árrisul enda fyrsti dagurinn þrælskipulagður. Byrj- uðum á að skoða verksmiðju PIHL þar sem einingar fyrir göng undir Eyrarsund eru framleiddar. Göngin rúma tvo lestarteina og fjórar akgreinar. Einingunum er raðað nokkrum saman, þeim komið á flot og svo sökkt á sínum stað úti á sund- inu.Verksmiðjan var byggð einungis fyrir þessa einu framkvæmd og verður hún fjarlægð að framkvæmdum loknum. Eyrarsund. Hluti af steyptri einingu sem myndar botngöng undir Eyrarsund. Lá þá leiðin frá verksmiðjunni að göngunum sjálfum. Þar fræddumst við heilmikið um umhverfisáhrif mannvirkisins vegna saltstreymis í Kattegat. Seinni hluta dags fór í skoðunarferð um DTU. Par tók á móti okkur Dr. B. Muttu Suer í glæsilegri tilraunastofu í straumfræði. Hann sýndi okkur tæki og tól og útskýrði virkni þeirra og til- gang. Rannsóknir þær sem þar fara fram byggjast að mestu á lík- anagerð, þar sem líkt er eftir ölduhreyfingum og strandmann- virkjum. 21. maí Vöknuðum og tókum til dótið okkar því nú átti að flytja sig um set. Kalt í veðri og rigning en íslendingarnir létu það ekki mikið á sig fá. Ekið var að Holskov þar sem framkvæmdir á brú yfir Stórabeltið voru á lokastigi. Skoðað var safn við brúarsporð- inn áður en stefnan var tekin til Pýskalands. 22. maí Árla morguns var leiðinni haldið í Tækniháskóla Berlfnar þar sem Jens Mittag verkfræðingur tók á móti okkur. Prof. Dr. Savi- dis. kom og heilsaði upp á okkur en hann er prófessor í jarð- tækni. Hann gaf okkur stutta lýsingu á skólakerfinu hjá þeim og útskýrði aðferðir við grundun. Mittag fór svo með okkur þang- að sem verið er að gera aðaljárnbrautarstöð í miðborg Berlínar, en mikil vinna liggur í að sameina þau samgöngukerfi sem þró- uðust á meðan borgin var skipt. Pað sem við skoðuðum sérstak- lega var lausn á grunnvatnsvandamálum. Jarðvatnsyfirborð er mjög hátt og því má ekki raska. 23. maí Ákveðið hafði verið að nota þennan dag til að skoða borgina frá sjónarhóli ferðamannsins. Dómkirkjan skoðuð og siglt á ánni um Berlln og endað uppi í 300 m háum fjarskiptaturni. 24. maí Við héldum hvíldardaginn að mestu heilagan en stálumst þó til að kíkja í smá skoðunarferð til Potzdam, þar sem San suci höllin og hennar fylgihallir og tehús eru. 25. maí Vaknað í takt við hanagalið til að þurfa ekki að láta hinn aust- ur-þýska Jens Mittag bíða lengi eftir okkur. Mittag bjó í Austur-Þýsklandi fyrir sameiningu þýsku ríkjanna og mátti sjá það á háttalagi hans því að hann var mjög löghlýð- inn (-hræddur) og var sífellt að biðja okkur um að fara eftir öll- um reglum í umferðinni. Ætlunin var að eyða morgninum við að skoða Potzdamerplatz. Farið var rakleiðis að upplýsingamiðstöðinni þar sem sögu fram- kvæmdanna eru gerð skil. Á Potzdamerplatz eru stórar fyrirtækjasamsteypur að reisa Framkvæmdir vi& samgöngumannvirki í djúpri þurrkví (dry dock). Lengst til hægri er Austur-Þjó&verjinn Jens Mittag. 46

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.