Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 10
...upp í vindinn
Mynd 5 - Tölvugerð mynd af stiga sem gengur af göngubrú á Hringbraut (Studio Cranda)
Mynd 4 - Tölvugerð mynd af endastöpli við
göngubrú á Hringbraut vestan Njarðargötu.
(Studio Cranda)
2.4 Burðarvirki
í tillögu hönnuða að þversniði yfirbygging-
ar á fyrra þrepi samkeppninnar voru settir
fram þrír kostir, þ.e. steypt þversnið með
annars vegar forsteyptum einingum og
hins vegar staðsteypu. Einnig var sýnt stál-
þversnið. Steypta þversniðið og stálþver-
sniðið höfðu sömu forsendur að leiðarljósi,
þ.e. vindustíft þversnið sem mætti nýta
óháð formi brúarinnar í plani og hæð.
Við byggingu göngubrúa á Hringbraut
er nokkuð hagræði fólgið í því að ekki þarf
að byggja brýrnar með umferð á Hring-
braut. Það hefur í för með sér að hægt er
að nota hefðbundinn undirslátt og því
verður staðsteypt burðarvirki hagkvæmur
kostur. Sá möguleiki var fyrir hendi að
skipta því út fyrir forsteyptar einingar ef að
framkvæmd við færslu Hringbrautar hefði
sett þær skorður. Það hefur ekki áhrif á út-
lit brúarinnar en þetta á einungis við þau
höf sem eru yfir Hringbrautinni. Sá hluti
brúarinnar sem svífur yfir friðlandið er í of
kröppum boga til að hægt sé að byggja
hann úr forsteyptum einingum.
Göngubrýrnar eru samfelldar og eftir-
spenntar bitabrýr með bogaformuðum bita
eins og sést mynd 3. Heildarhæð bitans er
700 mm og er þykkt kantsins einungis 170
mm og festist stálhandriðið í kantinn. Það
er gert úr grönnum teinum úr ryðfríu stáli,
sem soðnir eru á samfellda plötu neðst.
Hver handriðseining er 1,5 m löng og fest-
ist í kant brúardekksins með þremur bolt-
um, út við kanta og einn á miðri einingu.
Teinar eru á milli, svo vatn eigi ávallt greiða
leið út af brúnni, án þess að óhreinindi
verði sýnileg á brúarkanti. Notað er hvítt
sement með Ijósum fylliefnum í steypuna
til að fá Ijósara og bjartara útlit.
Þrír spennikaplar eru í þversniðinu en
gert er ráð fyrir að spenna þurfi í tveimur
áföngum. Bæði er það vegna þess hve löng
brúin er og einnig vegna mikils krappa í
syðri endanum sem veldur töluverðum
töpum á uppspennikraftinum.
Millisúlurnar eru úr ryðfríum stálrörum
sem fyllt eru með steypu og gengur stálrör-
ið lítillega upp í yfirbygginguna. Súlurnar
sem eru næst Hringbrautinni og í miðeyj-
unni eru hringlaga með þvermál 500 mm
og þola að keyrt sé á þær. Þær fjórar súlur
sem eru yfir friðlandinu þurfa ekki að þola
slíkt álag og því er gert ráð fyrir að þær
grennist eftir því sem þær styttast og hafi
þvermál frá 400 mm og niður í 350 mm.
Endastöplarnir eru með lóðréttum
veggjum sem ganga ofan í jörð og eru jafn-
breiðir yfirbyggingunni en ná um 4 m aftur.
Yfirbyggingin nær rétt aftur fyrir stöpulinn
og kemur gangstígurinn að endanum. Brú-
arhandriðið gengur aftur að stöpulendan-
um.
Línuhönnun
verkfræðistofa
Fyrst FRV verkfræðistofa til að
fá vottun skv. ISO 9001:2000
Einu skrefi framar
...ávit góðra verlm
10