Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 26
...upp í vindinn
Bylting í steinsteyputækni
Undanfarin ár hefur ný gerð af steinsteypu,
svokölluð sjálfpakkandi steypa (Self Compact-
ing Concrete (SCC)), orðið æ meira áberandi.
SCC er steyputækni sem kom fram á sjónarsvið-
ið í Japan í lok níunda áratugarins. Hugmyndin
var að búa til steypu sem ekki þyrfti að pakka
með titrun. Oft eru byggð mannvirki þar sem
mjög erfitt eða jafnvel ómögulegt er að pakka
steypu eins og til er ætlast með hefðbundnun
aðferðum. Hugmyndin er því að búa til ferska
steypu sem hefur áþekka eiginleika og vökvar.
Steypa sem flæðir eins og vökvi getur fyllt erfið
mót og loft sem lokast inni í mótunum á nokk-
uð greiða leið út. Til þess að gera þessa hug-
mynd að veruleika hefur ný tegund þjálniefna
verið kynnt til sögunnar: Polycarboxylate þjálni-
efni. Slík efni hafa þann eiginleika að auka fjar-
lægð á milli fínefniskorna í steypunni með sér-
stökum hætti. Þessi áhrif minnka skúfspennuna
í steypunni á meðan hún flæðir og bæta þar
með flæðieiginleika hennar.
Gott eftirlit tryggir gæðin
Steypuframleiðendur hafa öðlast umtalsverða
Daði Þorbjörns-
son er jarðfræðingur
og vinnur hjá Steypu-
stöáinni.
reynslu á undanförnum tíu árum og þróun
þjálniefna hefur haldið áfram. Framleiðsla SCC
er vandasamari en framleiðsla hefðbundinnar
steypu. Aðalástæðan fyrir því er sú að SCC er
mjög viðkvæm fyrir öllum breytingum á þeim
hráefnum sem notuð eru í hana. Örlítil breyting
í kornastærðardreifingu eða vatnsinnihaldi fylli-
efna geta haft mjög mikil áhrif á flæðieiginleika
steypunnar. Mettivatn íslenskra fylliefna er
gjarnan mjög hátt og því er mun erfiðara en ella
að stýra vatnsinnihaldi steypunnar.
Þar sem hráefni í steypuframleiðslu eru
breytileg frá einum stað til annars og frá einum
tíma til annars er ekki um að ræða að búa til
staðlaða forskrift fyrir SCC. í hvert skipti þarf að
taka mið af þeim hráefn-
um sem í boði eru og af
því hvernig á að nota
steypuna. Þá þarf einnig
að taka mið af þeim kröf-
um sem gerðar eru til
einstakra bygginga eða
byggingahluta.
Til að koma í veg fyr-
ir vandamál og tryggja
gæðin er nauðsynlegt að
byggja upp öflugt innra
eftirlit. Eins og áður er
getið er framleiðsla SCC
vandasöm og því er hver
sending skoðuð vel. Mat
á eiginleikum steypunnar
fer fram með því að
mæla flæði hennar úr
hefðbundinni sig-
málskeilu og með því að meta hvort aðskilnað-
ur á sér stað.
Við niðurlögn SCC er æskilegt að reyna að
halda jöfnu flæði. Tafir geta orsakað sýnileg
steypuskil. Þá er æskilegt að miða hraða niður-
lagnarinnar við að innilokað loft hafi möguleika
á að komast úr steypunni. Mikilvægt er að mót
séu þétt svo að steypan renni ekki úr mótunum
og hafa verður í huga að SCC skapar meiri þrýst-
ing í mótum en hefðbundin steypa.
Mismunandi eiginleikar
Eiginleikar SCC (svo sem seigja) þurfa að ráðast
af fyrirhugaðri notkun steypunnar. Sem dæmi
má nefna að til notkunar í veggi er nauðsynlegt
að mótstöðuafl steypunnar gegn aðskilnaði sé
mikið til að koma í veg fyrir aðskilnað eftir fall í
gegnum járnagrind. Sementsefjan á ekki að
leka út um litlar rifur á mótunum og steypan á
að renna auðveldlega undir glugga og þess
háttar. í slíkum tilvikum er SCC með frekar mik-
illi seigju heppilegur kostur. Þegar svona háttar
til eru eiginleikar steypunnar til að jafna sig sjálf
í raun aukaatriði. Ef seigja steypunnar er ekki
nægileg er hætta á því að aðskilnaður eigi sér
stað. Að auki eykst hættan á rýrnun. Reynslan
sýnir okkur að mótaþrýstingur minnkar með
seigari SCC sem lögð er með hæfilegum hraða.
Plötusteypa þarf að hafa allt aðra eiginleika.
Við niðurlögn í plötur er mest lagt upp úr því að
lítið þurfi að hafa fyrir því að dreifa og pakka
steypunni. í slíkum tilvikum er SCC með minni
seigju heppilegur kostur. Slík steypa ætti að
hafa eiginleika til að jafna sig nokkuð vel sjálf.
Alltaf þarf þó að leggja í nokkra vinnu til að ná
yfirborðsáferðinni góðri.
En hver er ávinningurinn af þessari
tækni?
Þessi tækni auðveldar mönnum niðurlögn
steypu til muna og gerir mönnum kleift að fylla
mót sem erfitt getur reynst að fylla með hefð-
bundinni steypu. Sem dæmi um nýja hönnun
þar sem SCC var notuð má nefna Vísindamið-
KOLLGATA
arkitektúr - hönnun
gránufélagsgötu 4,600 akureyri
kollgata@simnet.is kollgata2@simnet.is
462-7881 - 862-7881
RT5
VERKFRÆÐISTOFA
Grensásvegur 3
108 Reykjavík
Sími 520 9900
Fax 520 9901
www.rts.is
26