Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 14
...upp í víndinn
Mynd 9 - Göngubrú á Reykjanesbraut við Stekkjarbakka
metra löngu hafi. Kaplar eru úr togvírum
með þvermál 32 mm. Lang- og þverbitar í
brúardekkinu eru úr stáli en gólfið úr timbri
og er heildarbreidd brúardekksins 2,0 m.
Kapalakkeri og endastöplar eru steyptir.
Brúardekkið er hengt upp í kapalinn með
hengistöngum sem eru úr 16 mm rúnnstáli
og er fjarlægð á milli hengistanga 3,8 m.
Tveir langbitar eru af gerðinni HE200A og
liggja ofan á þverbitunum. Brúargólfið er úr
3"x8" timbri sem skrúfast ofan í 3"x8"
timburbita sem eru boltaðir ofan á stálbit-
ana.
Brúin er jafnframt stöguð til hliðar með
Mynd 10 - Þversnið í göngubrú á Reykja-
nesbraut við Stekkjarbakka
tveimur stögum hvoru megin eins og sést
á myndum 12 og 13 ef vel er að gáð. Hlið-
arstögin eru samfelld milli enda en hvert
stag tengist langbitunum á tveimur stöð-
um. Tilgangurinn með þeim er að dempa
vindsveiflur í brúnni.
5.3 Álagsforsendur
Markmið með hönnun brúarinnar gagnvart
vindálagi er að hún standi af sér aftakaveð-
ur og að hún sé fær göngufólki stærstan
hluta sumarsins. Vindálag er ákvarðað
samkvæmt evrópskum vindálagsstaðli.
í íslenska þjóðarskjalinu segir að meta
þurfi vindálag sérstaklega við sérstakar að-
stæður, s.s. inni á hálendi, í nágrenni
brattra fjalla, í dalaskörðum og í löngum
mjóum dölum. Þessi ákvæði eiga við í
Lónsöræfum enda er göngubrúin staðsett í
fjalllendinu og má gera ráð fyrir að það sé
ríkjandi vindstrengur niður með ánni úr ár-
gljúfrunum fyrir ofan.
Til að fá nákvæmari gildi á hönnunar-
vindhraða við göngubrúna hefði verið
nauðsynlegt að gera veðurmælingar á
staðnum. Stuðst var við hönnunargildið 60
m/s sem vindhviðu með 50-ára endur-
komutíma. Það jafngildir grunngildi vind-
þrýstings 2,25 kN/m2.
Hönnunarforsendur Vegagerðarinnar
fyrir göngubrýr í þéttbýli gera ráð fyrir jafn-
dreifðu notálagi 4,0 kN/m2. Það þýðir að
yfir 800 manns gætu verið á brúnni í einu.
Með hliðsjón af staðsetningu brúarinnar
inni á Lónsöræfum þótti þetta álag veru-
lega umfram það sem búast mætti við og
því var ákveðið að færa þetta álag niður í
u.þ.b. 2 menn á lengdarmetra eða 190
manns á brúnni í einu. Það jafngildir um
1,1 kN/m2.
Ekki er fært fyrir almenna bílaumferð
inn á Lónsöræfi og ekki stendur til að það
verði samkvæmt stefnumörkun landeig-
anda. Þetta getur skapað vandræði þegar
slys verða inni á Lónsöræfum enda er það
vinsælt ferðamannasvæði fyrir göngufólk.
Oft eru árnar ófærar af vatnavöxtum og því
ekki hægt að treysta á að komast yfir þær
á bílum. Það þótti því nokkur kostur ef sá
möguleiki væri fyrir hendi að komast á bíl
yfir göngubrúna, t.d. jeppa. Hönnunarfarar-
tækið var fjögurra tonna jeppi með öxul-
þunga 20 kN.
Mynd 11 - Yfirlitsmynd af lökulsá í Lóni þar sem hún fellur niður á áreyrar. Fellið í for-
grunni nefnist Eskifell og Skyndidalsá sést efst til hægri á myndinni. (Ljósmynd : Vega-
gerðin)
14