Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 18
...upp í vindinn
Líkindafræðilegt jarðskjálfta-
áhættukort af íslandi
Tillaga að gerð
áhættukorts og
upprunakorta fyrir
jarðskjálfta fyrir
EUROCODE8
Inngangur
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess
að skilgreina jarðskjálftaáhættu á íslandi
og draga upp kort af helstu áhættusvæð-
um landsins, sem sýna þá jarðskjálftayfir-
borðshröðun, sem búast má við á hverjum
stað. Fyrstu slíkar tilraunir voru aðallega
byggðar á kortum, sem sýndu jarðskjálfta-
áhrifalínur miðað við sögulega jarðskjálfta.
Má þar nefna áhættukort Eysteins Tryggva-
sonar o.fl. frá 1959 og kort Júlíusar Sólnes
frá 1983, [1], [2]. Um miðjan tíunda áratug
síðustu aldar var reynt að búa til hröðunar-
kort með jafnhröðunarlínum, sem byggði á
reiknuðum hágildum yfirborðshröðunar í
sögulegum jarðskjálftum og dvínun jarð-
skjálftabylgna samkvæmt stöðluðum lík-
ingum. Kort þetta var gefið út sem tillaga
að þjóðarskjali vegna fyrirhugaðrar gildis-
töku evrópska jarðskjálftastaðalsins,
Eurocode 8, á íslandi. Það var hins vegar
meingallað, þar sem áhrif voru víða ofmet-
in og sums staðar vanmetin og einstakir
jarðskjálftar, svo sem jarðskjálftinn í Hvítár-
síðu 1974, voru látnir hafa afgerandi áhrif á
áhættudreifinguna. Það var því Ijóst, að
Jónas Elíasson
er prófessor vió
verkfræóideild
Hóskóla Islands.
Júlíus Sólnes
er prófessor við
verkfræóideild
Hóskóla Islands.
Ragnar
Sigbjörnsson
er prófessor við
verkfræóideild
Hóskóla Islands.
skipting landsins í jarðskjálftaáhættusvæði
var ófullkomin og mun meiri rannsóknar-
vinnu væri þörf til þess að fá fram jarð-
skjálftaáhættukort fyrir landið í heild sinni,
sem sýndi líklega mestu yfirborðshreyfingu
í væntanlegum jarðskjálftum í formi jafn-
hröðunarferla, [3]. í Suðurlandsskjálftun-
um 2000 fengust mjög mikilvægar upplýs-
ingar um hágildi yfirborðshröðunar á ýms-
um stöðum, sem nýttust til þess að sann-
prófa dvínunarhegðun jarðskálftabylgna og
greina aflróf, hegðunarmynstur og upp-
takavél íslenskra jarðskjálfta, [4]. Þar til
viðbótar hefur verið unnið að því að endur-
bæta og uppfæra jarðskjálftalista yfir ís-
lenska jarðskjálfta. Þær niðurstöður hafa
verið birtar nýlega í riti Ambraseys og Ragn-
ars Sigbjörnssonar, [5]. Þá var á þessum
tíma einnig bent á að meiri þörf væri fyrir
að gera nákvæmt áhættukort fyrir höfuð-
borgarsvæðið, þar sem um 80-90% af
byggingarmassa landsins væri samankom-
inn áður en reynt yrði að kljást við landið
allt. Var því af hálfu höfunda þessarar
greinar lögð áhersla á að greina fyrst jarð-
skjálftaáhættu á höfuðborgarsvæðinu og
voru niðurstöður þeirrar vinnu birtar í ráð-
stefnuriti evrópskra jarðskjálftaverkfræð-
inga frá 2002 og einnig í tímaritinu „...upp
í vindinn", [6], [7].
Við líkindafræðilegt mat á jarðskjálftaá-
hættu á tilteknum svæðum getur verið
varasamt að reikna einungis með þekktum
sögulegum jarðskjálftum sem hafa valdið
áhrifum á svæðinu. Framtíðarjarðskjálftar
geta átt upptök sín á nýjum stöðum og
valdið öðruvísi áhrifum. Gömul upptaka-
svæði, sem lengi hafa verið sofandi, geta
gleymst. Eins er hætta á að áhrif einstakra
nýlegra jarðskjálfta séu ofmetin og ráði
þannig um of gerð áhættusvæðisins. Til
þess að fá fram traustari grundvöll fyrir
áhættudreifingunni hefur því verið gripið til
þess ráðs að framlengja jarðskjálftasöguna
með því að herma komandi jarðskjálftaat-
burði með líkindafræðilegum aðferðum.
Þannig má fá fram mismunandi jarð-
skjálftalista með bæði öllum sögulegum
Cegnsœir yfirburðir Suncooi HP Brilliant...
| Dagsljós
| Sólarorka
Úti LJ
Ug=2,8
3>
Venjulegt
gler
Brilliant gler
14 mm
.þegar krafan er um góða birtu og mjög
góða vörn gegn hitageislum sólar.
Kynntu þér málið á www.glerborg
eða í síma 55S 3333.
GLERBORG
Dalshrauni 5 | 220 Hafnarfirði | Sími 555 3333 | www.glerborg.is
18