Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 30
...upp í vindinn
greinar en ekki er ástæða til að fjalla um
þau í grein sem þessari.
Hvað varðar athugunina á samanburði
slitlagstegunda verður í mörgum tilfellum
ekki þörf á samanburði af því tagi sem hvað
umdeilanlegastur er, svo sem um hvers
virði er mannslíf eða tíminn, þar sem ætla
má að gerð slitlagsins skipti ekki neinu um-
talsverðu máli í því samhengi. Þegar um er
að ræða mun, sem ekki er hægt að verð-
setja, eins og oft er raunin með náttúru-
verndargildi, þá er það einfaldlega ekki
með í samanburðinum. Þar með er ekki
sagt að munurinn skipti ekki máli heldur að
mælikvarðinn er ekki til staðar þannig að
arðsemisgreining nái yfir hann. Þannig er
arðsemin ekki einasta leiðin til að taka
ákvörðun um hvað skuli velja sem slitlag,
möl, klæðingu, malbik eða steinsteypu.
Taka þarf á mörgum öðrum sjónarmiðum.
Arðsemishugtakið
Arðsemi er hugtak sem allir hafa notað en
þó e.t.v. án þess að gera sér grein fyrir að
um er að ræða tiltölulega algenga hag-
fræðilega úttekt á fjárfestingarkostum þar
sem bæði koma til kostnaður og ábati á
löngum tíma. Venjulega eru útgjöldin mest
í fyrstu, þ.e. stofnkostnaður, en rekstur og
viðhaldskostnaður verður til um ókomna
framtíð. Þá koma tekjurnar af fjárfesting-
unni einnig inn á löngum tíma. Þegar fjall-
að er um tekjur af fjárfestingu í samgöngu-
mannvirkjum er að sjálfsögðu um að ræða
sparnað notenda, m.a. í formi styttri ferða-
tíma, minni orkunotkunar, minna viðhalds
ökutækja og vonandi lægri slysakostnaðar.
En allur sá ábati eða kostnaður, sem til fell-
ur og hægt er að reikna til vegna einhverr-
ar tiltekinnar fjárfestingar, er háður því
hvenær tekjurnar eða útgjöldin verða til.
Það verður nefnilega að taka tillit til þess að
króna í hendi er ekki sama og króna sem
fæst eftir einhver ár. Til þess verður því að
afvaxta tekjur og útgjöld framtíðarinnar til
að finna núvirði fjárfestingar. Almenn jafna
fyrir núvirði, sem finna má í kennslubókum
um vegagerð, er þessi:
Núvirði=
V1 Á, . S y M n + Q„ + C
áa+o" (i+ow h o+o"
Hér er N reikningstíminn, oft kallaður líf-
tími, R„ eru tekjur eða ábati árið n, i eru
reiknivextir, S er hrakvirði að reikningstím-
anum liðnum, M„ er viðhaldskostnaður árið
n, 0„ er rekstrarkostnaður árið n, U„ er
kostnaður notenda árið n og C0 er stofn-
kostnaður. Venja hér á landi er að miða við
6% vexti (/' = 0,06), en hægt væri að spyrja
hvaða vextir gerðu núvirðið jafnt 0 og eru
þeir vextir nefndir innri vextir viðkomandi
fjárfestingar. Að sjálfsögðu verður að vera
einhver núllstaða til að miða fjárfestingar-
kostina við, svo sem sá kostur að gera ekki
neitt, og þannig fæst að tekjurnar safnast
upp. Þessar tekjur geta verið breytilegar eft-
ir því hvort umferðin (notkunin) fer vaxandi
og aðrir þættir, svo sem viðhald, rekstur og
notendakostnaður, breytast einnig eftir um-
ferðinni. Alls konar kostnaðarþættir geta
komið til athugunar þegar arðsemismat er
til meðferðar og getur til dæmis innheimta
notendagjalda, hvort sem um er að ræða
hefðbundna innheimtu, líkt og þekkist við
Hvalfjarðargöngin, eða með einhverjum
öðrum nýtískulegri leiðum. Þá eru víða
uppi vangaveltur um hversu mikið eigi að
taka tillit til þess kostnaðar, sem fer í að afla
fjár til framkvæmda, hvort sem það er inn-
heimta bensíngjalds, álagning skatta eða
lántaka. Þess háttar umræða er utan verk-
efnishópsins, sem tók að sér að bera sam-
an klæðingu og malbik á vegi hér á landi
við tilteknar aðstæður.
Vegur í Melasveit
Til skoðunar á borðum starfshópsins var 5
km langur kafli á hringveginum, nánar til
Pólýhuðun
Innbrennd duftlökkun á alla málma
Bvaainaar:
Utanhúsklæðningar
Þakjám
Álglugga
Burðarvirki
Ljósastaura
Handrið
Húsaöan:
Skólahúsgögn
Skrifborð
Auglýsingastanda
Skrifborðstóla
Rúm
Borðplötur
Innréttinaar,
Fataskápa
Hillukerfi
Eldvarnahurðir
Gler
Hringstiga
Klæðningar
Bílahlutir:
Felgur
Dráttarbeisli
Stuðara
Vélaparta
Mótorhjól
Kerrur
Með pólýhúðun er átt við að polyester eða epoxy dufti er úðað úr sérstakri byssu sem hleður duftið upp með rafspennu svo það
festist við málminn sem verið er að húða. Þar eftir er málmurinn bakaður við 200°C i nokkrar mínútur og er þá tilbúinn til notkunar.
Við baksturinn bráðnar duftið og rennur út en um leið herðist og verður að grimmsterku lakki.
Eigum á lager 350 RAL liti
Pólýhúðun ehf
Smiðjuvegi 1
200 kópavogur
www.polyhudun.is
S: 544 5700
Fax: 544 5701
30