Upp í vindinn - 01.05.2005, Síða 48
...upp í vindinn
Settjarnir við Sævarhöfða
Inngangur
Um þessar mundir standa yfir framkvæmdir
við gerð fjögurra settjarna við Sævarhöfða í
Reykjavík. Þessum tjörnum er ætlað að fanga
óhreinindi og mengun úr vatninu sem berst
með ofanvatnskerfinu frá stórum hluta Ár-
túnshöfðans og Ártúnsbrekku í ósa Elliðaár. í
þessari grein er leitast við að skýra tilgang,
virkni og gerð settjarna almennt og greina sér-
staklega frá tjörnunum við Sævarhöfða.
Hlutverk og virkni settjarna
Settjarnir I ofanvatnskerfum gegna yfirleitt þrí-
þættu hlutverki. í fyrsta lagi að hreinsa það
vatn sem um þær fer. í öðru lagi geta þær
fangað mengandi efni við mengunarslys áður
en þau berast út í náttúruna og í þriðja lagi
jafna þær út rennslistoppa sem einkenna frá-
veitukerfi borga í úrkomutíð, en kröftugt
rennsli úr fráveitukerfinu getur valdið rofi og
skemmdum í viðtaka.
í meginatriðum felst hreinsun óhreininda
í því að halda dvalartíma ofanvatnsins í tjörn
innan lágmarks marka, þannig að eðlisþungar
agnir og eðlisléttar agnir nái að aðskiljast frá
vökvanum og falla til botns eða fljóta upp á
yfirborð. Einnig að sjá til þess að þau óhrein-
indi sem næst að fanga í tjörnum, haldist þar
þrátt fyrir breytileika í rennsli þar til skipulögð
losun þeirra fer fram. Komist gróður og bakt-
eríuflóra á legg í tjörnunum á sér stað niður-
brot ýmissa efna og styrkur næringarefna
lækkar. Frjálsar jónir má binda með aðsogi við
efni eins og skeljasand upp að vissu marki.
Því getur skeljasandur á botni tjarna eða sem
síuefni nýst við hreinsun ofanvatns.
Hreinsivirkni settjarna byggist m.a. á því
að minnka hraða vatns gegnum tjörnina
þannig að það missi flutningsgetu sína á
botnfellanlegum ögnum en viðvera vatns í
tjörninni verður einnig að vera það mikil að
agnirnar nái að falla til botns áður en þær
streyma út úr tjörninni aftur. Þarna er í raun
ástæðan fyrir formi tjarnanna, þ.e. breidd til
að ná niður vatnshraða, og lengd til að skapa
svigrúm til að agnir falli til botns. Þegar form-
Reynir Sævarsson
er byggingarverk-
fræðingur og starfar
á umhverfis- og
öryggissviði
Línuhönnunar hf.
Gunnar
Hjartarson er
byggingarverk-
fræöingur og starfar
sem verkefnastjóri
hjó Gatnamólastofu
Reykjavíkur.
ið er ákveðið er það því fast rúmmál settjarn-
anna sem er ákvarðandi fyrir hreinsigetu
þeirra. Svíar og Þjóðverjar hafa hvorir um sig
sínar aðferðir við stærðarhönnun settjarna en
hér hefur verið valin leið Svía til umfjöllunar
þar sem hún er m.a. gagnsærri og aðgengi-
legri en aðferð Þjóðverja.
Þegar settjarnir hafa verið reknar í langan
tíma þarf að losa mengunarefnin úr þeim. Þá
er botnfallið fjarlægt úr þeim ýmist með því
að sjúga það upp með dælubílum eða moka
því upp með gröfum. í botni tjarnanna er oft-
ast Ijós skeljasandur þannig að auðvelt er að
sjá skil mengunar og botns þegar verið er að
fjarlægja það efni sem ekki á að vera þar.
Einnig getur þurft að fleyta brák ofan af vatns-
borðinu eða tína upp rusl í bökkum eða af
botni.
Saga settjarna á íslandi
Umræðan um hreinsun mengunarefna úr of-
anvatni í Reykjavík fékk byr undir báða vængi
þegar umhverfi Elliðaánna og ástand laxa-
stofnsins var til athugunar fyrir nokkrum
árum. Þótti rétt að taka á mengun frá regn-
vatnsútrásum þar sem sýnt þótti að hún hefði
neikvæð áhrif á gæði ánna og gæti verið ein
af líklega fjölmörgum ástæðum þess að laxa-
stofn ánna hafði hnignað. Gerð var úttekt á
því hvar skynsamlegt og nauðsynlegt væri að
koma fyrir settjörnum í Elliðaárdal og var nið-
urstaðan sú að tjarnirnar yrðu alls sjö. Hafist
yrði handa við gerð fjögurra tjarna sem allar
yrðu staðsettar ofan við gömlu brúnna yfir El-
liðaárnar. Þessar tjarnir voru hins vegar ekki
fyrstar í framkvæmd því settjörn við gatnamót
Víkurvegar og Vesturlandsvegar var fyrst gerð,
svo ein við Krókháls og loks umræddar tjarn-
ir í Elliðaárdal. Settjarnirnar við Sævarhöfða
áttu síðan samkvæmt áætlun að fara í fram-
kvæmd fljótlega eftir gerð þessara fjögurra í
Elliðaárdalnum en framkvæmdum var frestað
af ónefndum orsökum. Á næstu árum er fyrir-
hugað að gera fjölmargar settjarnir sem allar
munu meðhöndla ofanvatn sem berst í Úlf-
arsá frá fyrirhuguðum nýbyggingum á upp-
landi ánna.
Við gerð umferðarmannvirkja er nú ávalt
hugað að því að koma settjörn fyrir á svæðum
sem falla innan mannvirkjana. Dæmi um slík-
ar tjarnir eru áðurnefnd tjörn við Víkurveg,
Reykjanesbraut í Hafnarfirði og gatnamót
Reykjanesbrautar og Stekkjarbakka.
Forsendur
Við hönnun settjarna hefur í megin atriðum
verið stuðst við tæknilegar upplýsingar og við-
mið frá Svíþjóð og Þýskalandi.
Svíinn dr. Thomas Larm ritaði doktorsrit-
gerð um virkni og hönnun settjarna en þar
gerir hann góða grein fyrir þeirri þekkingu
sem til er í heimi vísindanna um málefni sett-
jarna auk þess sem hann stóð fyrir eigin mæl-
ingum og rannsóknum á þessu sviði I Svíþjóð.
Væntingar um hreinsivirkni settjarna I Reykja-
vík eru því grundvallaðar á rannsóknum dr.
Larm en fyrstu niðurstöður mælinga á hreinsi-
virkni settjarna í borginni benda til þess að vel
hafi tekist til hér.
Samkvæmt þessu er gert ráð fyrir að
hreinsun gruggs og helstu þungmálma í ofan-
vatni geti orðið allt að 70% en hreinsun fos-
48