Upp í vindinn - 01.05.2005, Side 55
...upp í vindinn
andlitsbað voru farnar styttri skoðunarferðir
frá skipinu. Ein þeirra var í Draugaborgina.
Þar keyrðum við í gegnum mannlausa borg
þar sem áður bjuggu um 100.000 manns.
Hún er aðeins ein af þeim mörgu borgum
sem búið er að rýma og byrjað að brjóta nið-
ur vegna þess að þegar stíflan er fullbyggð
munu þær hverfa undir vatn. Hinum megin
árinnar mátti sjá glitta í aðra borg í gegnum
þokuna, en hún er nýbyggð og þangað er
smám saman verið að flytja um tvær milljón-
ir manna úr borgunum sem þarf að rýma. Eft-
ir keyrsluna í gegnum þessa drungalegu borg
hófst ganga upp eftirtröppum í fjallinu þang-
að til við komum í hina eiginlegu draugaborg
sem er heimili óteljandi líkneskja af guðum
og verum frá helvíti. Þar leystum við þrjár
þrautir sem sagan segir að þurfi að leysa til að
eiga inngöngu í himnaríki og stóðum okkur
flest með prýði.
Næsti áfangastaður okkar var stíflan sjálf.
Seinustu nóttinni á skipinu eyddum við í að
sigla í gegnum stærsta skipastiga í heimi.
Hann er fimm þrep og er heildarfallhæðin
113 metrar. Morguninn eftir var tekið á móti
okkur þegar við komum af skipinu og við
fengum leiðsögn um sýningarsvæðið og
skoðuðum líkan af þessu gríðarlega mann-
virki sem mun hafa framleiðslugetu upp á
18200 MW árið 2007 þegar allir 26 hverflarn-
ir verða komnir í notkun. Einnig fengum við
að fara niður í stöðvarhúsið og niður að ein-
um sniglinum og eins og með svo margt ann-
að þarna, var stærðin yfirþyrmandi.
Shanghai
Eftir sólarhrings dvöl í Yichang, borginni við
stífluna, var ferðinni heitið til Shanghai. Þessi
borg var eins ólík Peking og hægt var að
hugsa sér. Fólkið klæddi sig öðruvísi, var
öðruvísi í fasi, fleiri töluðu ensku og hvert sem
litið var mátti sjá margra hæða gatnamót og
skýjakljúfa.
Þar skoðuðum við meðal annars Yuyuan
garðinn, verslunargötuna Nanjing Road og
röltum um á Bund við bakka Huangpu-ár.
Hinum megin árinnar er Pu-tong hverfið, en
Pu-tong þýðir „austan árinnar."
Til að komast þangað fórum við í neðan-
jarðarlest sem ber nafnið Yan'an Road tourist
tunnel. Þetta var ekki löng lestarferð en þó
með þeim eftirminnilegri. Eins og nafnið ber
með sér er þessi lest gerð fyrir ferðamenn
frekar en að ferja Shanghaibúa í og úr vinnu
og alla leiðina var Ijósasýning í göngunum.
Fyrir örfáum áratugum var Pu-tong-svæð-
ið hrísgrjónaakrar en núna hefur risið þar
ótrúlegur fjöldi háhýsa sem skipa sér í flokk
hæstu bygginga heims. Við fórum upp í
Shanghai Oriental Pearl Tower sem er þriðji
hæsti turn í heimi, 468m á hæð. Þaðan var
ótrúlegt útsýni yfir allt Putong hverfið og yfir í
Pusí (vestan ár) handan við ána. Jin Mao
Tower er 5. hæsta bygging í heimi, 421 metra
há og 88 hæðir og leiðsögumaðurinn okkar
leiddi okkur þangað inn og við ætluðum upp
á topp en vorum ekki fyrr komin inn í lyftuna
en okkur var sagt að þetta væri ekki ferða-
mannastaður og við rekin út aftur. Þetta virt-
ist ekki vera í fyrsta skipti sem leiðsögumað-
urinn lenti í þessu en hann sagði okkur þó að
honum hefði tekist að smygla nokkrum hóp-
um þarna upp, við bara vorum ekki svo hepp-
in.
Annar áhugaverður staður í Shanghai er
„China town." Maður hefði ekki haldið að
China town væri að finna í sjálfu alþýðulýð-
veldinu Kína enda minnti sá bæjarhluti meira
á Kínahverfi í vestrænum borgum en þær
hefðbundnu kínversku borgir sem við höfð-
um komið til . Húsin þarna eru byggð í hefð-
bundnum stíl en á hverju horni eru sölumenn
og í öllum húsum eru verslanir. Flestar selja
þær postulín, prjóna og gagnslausa ferð-
mannahluti en mitt í þessu öllu saman er líka
hægt að fá sér köku og kaffi á Starbucks.
Við heimsóttum líka arkitektúrdeild Tongji
háskóla þar sem við skoðuðum glæsileg ný
húsakynni skólans, og fengum svo kynningu
á skipulagi og þróun borgarinnar.
Seinasta kvöldið í Shanghai var komið að
því að kveðja hann Baldvin sem hafði reynst
frábær ferðafélagi og forystusauður.
Áburðaruerksmiðjan
—1 ..........— —
Sjálfvirkur opnunar- og
lokunarbúnaður fyrir
hurðir og glugga.
■ ’JL pn
Wf illllUVlkkll
Skútuvogur 1H, 104 Rvk. S: 5858900
www.jarngler.is
55