Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 10

Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 10
Upp í vindinn og umhverfisvísindadeild Háskóla íslands; Helga Þórhallsdóttir, Líkan fyrir 85%-hraða á tveggja akreina vegum; og Daði Hall, Hjólaleigukerfi í Reykjavík. Nánari upplýsingar um verkefnin, leiðbeinendur og samstarfsaðila er að fin- na á vefsíðu deildarinnar og þar má einnig finna tengla á margar ritgerðanna. hi. is/umhverfis os busgingarverkfraedideild/meistaranemar Einnig má finna ritgerðir á skemman.is Nemendur deildarinnar taka þátt í ýmsum öðrum verklegum æfingum í námi sínu, m.a. í jarðtækni og umhverfisverkfræði. Prófessor Rajesh Rupakhety sýnir óhrif jarðskjdlfta d likan af hdrri byggingu d Hdskóladeginum. Nemendur i umhverfis- og byggingarverkfrœði byggðu nokkur slik likön sem prófuð voru. Fjölmargir gestir Hóskóladagsins komu við og fylgdust með. Verkleg kennsla Verkleg kennsla er hluti margra námskeiða deildarinnar. Verkleg kennsla er allt frá tilraunum gerðum í tilraunastofum, keppni nemanda í smíði brúa sem geta tekið upp mikið álag rniðað við þyngd, mælingar í mörkinni á t.d. rennsli og vatnsgæðum og kennslu á umfangsmikii forrit eins AutoCAD, Revit, og land- fræðilega upplýsingakerfið ArcGIS. Deildin rekur tilraunastofur í VR-III, tilraunahúsi verkfræðinnar. Þar er viðamikil aðstaða til burðarþolsrannsókna og kennslu. Gera nemendur þar til- raunir m.a. í straumfræði, burðarþolsfræði, jarðtækni og umhverfisverkfræði. Síðustu ár hafa tæki verið endurnýjuð og ný keypt til að efla enn frekar kennslu í verklegu námi deildarinnar. Keypt hafa verið færanleg kennslutæki í burðarþolsfræði með stuðningi Tækjakaupasjóðs Háskóla íslands sem hægt er að nota í kennslustofum til að sýna burðarþolseiginleika, t.d. brúa og bygginga. Einnig hefur jarðskjálftahermir deildarinnar, sem hefur 6 frelsisgráður, verið uppfærður með nýjum hugbúnaði. Búnaðurinn var notaður til að herma jarðskjálfta á Háskóladaginn og sýna gestum áhrif jarðskjálfta. Einnig voru keypti mjög léttir hröðunarmælar og gagnaöflunartæki árið 2016. Þessi tæki nýtast til að kanna hegðun burðarvirkja og má nýta við kennslu og rannsóknir í burðarþolsfræði og jarðskjálftaverkfræði. 10

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.