Upp í vindinn - 01.05.2017, Síða 11
Rannsóknir
Rannsóknir deildarfólks snerta tjölmörg svið innan greinarinnar og eru un-
nar í samstarfi við innlenda og erlenda fræðimenn, fyrirtæki og stofnanir.
Rannsóknirnar eru styrktar af samkeppnissjóðum og tekur deildarfólk þátt í fjöl-
da alþjóðlegra rannsóknarverkefna og leggja doktorsnemar fram drjúgan skerf af
rannsóknarvinnunni. Sem dæmi um alþjóðleg rannsóknarverkefni má nefna að
deildin tekur þátt í Norræna öndvegissetrinu NORDRESS (nordress.hi.is, Nordic
Centre of Excellence on Resilience and Societal Security) styrkt af NordForsk;
Evrópuverkefnunum KNOWRISK (Know your city, Reduce selSmic risK through
non-structural elements); ENHANCE (Enhancing risk management partnerships
for catastrophic natural disasters in Europe, enhanceproject.eu); AQUAVALENS
(Protecting the health of Europeans by improving methods for the detection of
pathogens in drinking water and water used in food preparation, aquavalens.
org); og Aquaponics (Ihe EU Aquaponics Hub: Realising Sustainable Integrated
Fish and Vegetable Production for the EU, www.aquaponics.is).
Niðurstöður rannsóknanna eru birtar í alþjóðlegum vísindatímaritum og á
innlendum vettvangi og má finna lista af greinum á vefsíðu deildarinnar (von.
hi.is/ub) og á vefsíðum einstakra starfsmanna.
GEORG rannsóknaklasinn, sem leiddur er af Sigurði Magnúsi Garðarssyni,
prófessor, hélt ráðstefnu í lok nóvembers þar sem teknar voru saman
rannsóknarniðurstöður verkefna sem unnin hafa verið af aðilum klasans.
Ráðstefnan, GEORG Geothermal Workshop (#GGW2016), var vel sótt af íslen-
skum og erlendum aðilum þar sem fjallað var um jarðvarma í þremur þemum:
Upstream: Nature of the resource; Midstream: Harnessing and production; og
Downstream: Diversified utilization. Efni frá ráðstefnunni er að finna á hei-
masíðu klasans georg.cluster.is.
Sem dæmi um rannsóknir deildarinnar þá eru Umhverfis- og byggingarv-
erkfræðideild og Líf- og umhverfisvísindadeild nú að rannsaka líftíma örvera
í grunnvatni á íslandi. Settir eru fagar í borholu í Kaldárbotnum sem er utan
vatnsverndarsvæðis og Vatnsveita Hafnarfjarðar hefur útbúið fyrir verkefnið.
Fagarnir er hættulausir en haga sér svipað og veirur og eru því mikið notaðir
erlendis til að rannsaka líftíma örvera.
í KNOWRISK Evrópuverkefninu, en íslenski hluti þess er leiddur af prófes-
sor Rajesh Rupakhety, er unnið að því að fræða fólk, m.a. skólabörn, um jarðsk-
jálfta og leiðir til að draga úr áhættu innan heimilisins.
Nónari upplýsingar
Nánari upplýsingar um rannsóknir í Umhverfis- og byggingarverkfræði er að
flnna á heimasíðu deildarinnar, uon.hi.is/ub. Þar er einnig að finna upplýsingar
um kennd námskeið í grunnnámi og framhaldsnámi sem og meistaraverkefni og
doktorsverkefni sem hafa verið unnin síðustu ár við deildina.