Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 17
Sögulegt yfirlit stœkkunaraforma
Búrfellsvirkjun var gangsett árið 1969. Uppsett afl stöðvarinnar er 270 MW, í'ram-
leitt með 6 Francis hverflum, og var hún stærsta aflstöð landsins þar til Fljóts-
dalsstöð var vígð árið 2007. Núverandi nýting rennslisorku við Búrfellsstöð er um
86% og er talið að um 410 GWst renni að jafnaði fram hjá stöðinni á ári hverju.
Fyrstu áætlanir um stækkun Búrfellsvirkjunar til að hámarka nýtingu rennslis
Þjórsár eru frá því um 1980. Til þess þótti fýsilegast að byggja nýtt stöðvarhús í
Sámsstaðaklifi en sú staðsetning er áhugaverð í sögulegu samhengi þar sem þar
hafði Títanfélagið lagt til byggingu fýrstu vatnsaflsvirkjunar á Þjórsársvæðinu
árið 1915.
Árið 1981 var byrjað á framkvæmdum vegna stækkunar með greftri
frárennslisskurðarins með hjálp dælupramma. Sumrin 1981 til 1985, 1988 og
1989 voru fjarlægðir um 1,4 milljón m3 af lausum jarðefnum úr skurðstæðinu
m.a. með því að fleyta vatni úr Bjarnalóni niður skurðinn. Að auki var fyrirhugað
svæði fyrir vinnubúðir verktaka undirbúið og vegir og aðkomuvegur lagfærður.
Á árunum 1990-1994 var unnið að frekari undirbúningi og hönnun og voru véla-
og rafbúnaður fyrir virkjunina boðin út, en þá var rniðað við að virkjunin yrði 100
MW. Unnið var að útboðum á jarðvinnu og allri byggingarvinnu. Á þessum tíma
var unnið að undirbúningi að stækkun álversins í Straumsvík og var stækkun
Búrfellsstöðvar einn af þeim kostum sem til greina komu vegna orkuöflunar.
Verkefnið var sett í biðstöðu árið 1994 og þess í stað ákveðið að fara í aflaukningu
stöðvarinnar ásamt því að stækka Blöndulón og byggja 5. áfanga Kvíslaveitu
vegna stækkunar álversins. Ástæða þess að hætt var við stækkun Búrfellsstöðvar
er að þessi kostur var ekki talinn eins hagkvæmur á þeim tíma og ofangreindir
kostir.
EFTIR
Ásbjörgu
Kristinsdóttur
Forstöðumaður á
framkvœmdasviði hjá
Landsvirkjun
1 ]..in[Isvirkjun
Upphaf framkvœmda
Árið 2013 ákvað Landsvirkjun að skoða á ný framkvæmdahugmyndir um stæk-
kun Búrfellsvirkjunar um allt að 140 MW. Sú hugmynd var tilkynnt til Skipu-
lagsstofnunar og var niðurstaða stofnunarinnar að framkvæmdin væri ekki lík-
leg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati
á umhverfisáhrifum. Á hönnunarstigi voru undirbúnar tvær virkjunartilhagan-
ir. Annars vegar að staðsetja stöðvarhúsið neðanjarðar og hins vegar ofanjarðar.
Valkostirnir voru bornir saman og var niðurstaðan sú að tækni-, framkvæmdar-
og kostnaðarlega teldust þeir jafngildir. Ákveðið var að velja neðanjarðarkostinn
en umhverfisáhrif hans voru metin minni og rekstrarkostnaður áætlaður lægri.
Hin nýja neðanjarðarvirkjun verður staðsett í Sámsstaðaklifi en vatn til stæk-
kunar virkjunarinnar verður tekið úr inntakslóni núverandi Búrfellsvirkjunar
(Bjarnalóni). Lónið er nú þegar til staðar og hluti af núverandi Búrfellsvirkjun,
auk veitumannvirkja. Úr inntakslóni verður grafinn um 370 m langur aðrennslis-
skurður fram undir brún Sámsstaðaklifs að stöðvarinntaki. Frá stöðvarinntaki
fellur vatnið niður um 110 m löng fallgöng að stöðvarhúsi og þaðan er vatninu
síðan veitt um 450 m löng frárennslisgöng út í 2,2 km langan frárennslisskurð
sem leiðir það út í Fossá um 1 km neðan við núverandi stöð.
Áformað er að uppsett afl nýrrar stöðvar verði 100 MW með einni vél en gert
er ráð fyrir að síðar verði hægt að stækka stöðina um allt að 40 MW. Með stækkun
Búrfellsvirkjunar má auka orkugetu raforkukerfisins um allt að 300 GWst á ári.
Kemur það til bæði vegna aukinnar nýtingar á rennsli og vegna minnkaðra fall-
tapa í núverandi stöð þegar álag er fært af henni yflr á nýju stöðina.