Upp í vindinn - 01.05.2017, Page 23
Háskóli íslands
Örplast i skólpi
En ef við snúum okkur aftur að skólphreinsun þá er áhugavert að leita svara við
því hvað það er sem ræður mestu um það að hreinsun örplasts í sænsku og
finnsku stöðvunum væri svo miklu meiri ein í þeim íslensku, ef miðað er við
rannsókn Magnusson o.fl. (2016a). Við höfum kynnt okkur rannsóknir þar sem
magn örplasts í skólpi er metið á fleiri stöðum innan skólphreinsistöðva en bara
í innrennsli og útrennsli (sjá t.d. Carr, Liu og Tesoro, 2016, Magnusson, 2014 og
Talvitie og Heinonen, 2014). Allar þessar rannsóknir benda að okkar rnati til þess
að mikill meirihluti þeirrar örplastshreinsunar sem verður í stöðvum á borð við
þær í Helsinki og Gautaborg eigi sér stað í þeim hluta þeirra sem ætlaður er til
svokallaðrar fyrsta þreps hreinsunar. Það er að segja í hreinsivirkjum sem nýta
síun, botnfellingu og fleytingu. Meginmarkmið fyrsta þreps hreinsunar er að
hreinsa svifagnir úr skólpi, en örplastsagnir eru vitnalega ekkert annað en svifagnir.
Vöktunarskýrslur fyrir skólphreinsistöðvarnar í Reykjavík (sjá t.d. Bir-
gi og Snorra, 2015) benda til þess að árangur hreinsunar þeirra, ef miðað er
við hefðbundna mælikvarða á borð við hlutfallslega lækkun á heildarmag-
ni svifagna (TSS) eða á líffræðilegri súrefnisþörf (BOD), nær ekki þeim tölu-
legu viðmiðum sem sett eru um svokallaða eins þreps hreinsun (hér kölluð
fyrsta þreps hreinsun) í reglugerð um fráveitur og skólp (númer 798/1999).
Það þarf því ekki að korna á óvart að hreinsun örplasts úr skólpi í Reyk-
javík sé ekki veruleg. Miðað við niðurstöður rannsóknanna sem vitnað var til
hér að framan má ætla að árangurinn í hreinsun örplasts gæti aukist verule-
ga ef bætt væri við svokölluðum fyrsta þreps fellitönkum í fullri stærð, hug-
sanlega með íblöndun felliefna. Eða þá öðrum sambærilegum hreinsivirkjum.
Örplast í ofanvatni
Nú hef ég ekkert minnst á hreinsun ofanvatns, en eins og minnst var á hér að
framan þá má ætla að langstærstu uppsprettur örplasts tengist ofanvatnskerfum
ferkar en skólpkerfum. Mikil þróun er í meðhöndlun og hreinsun ofanvatns hér
á landi um þessar mundir. Sem dæmi má nefna að EFLA kom að hönnun ofan-
vatnslausna í Urriðaholti í Garðabæ, en það var fyrsta hverfið hér á landi sem
hannað er þannig að allt ofanvatn er hreinsað með svokölluðum blágrænum
ofanvatnslausnum. Einnig hefur verið unnið að innleiðingu settjarna til hreinsu-
nar afrennslis af stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins. Aukin hreinsun ofan-
vatns hlýtur að verða til þess að minna magn örplasts berist í hafið frá þéttbýli-
nu, en að okkar mati væri áhugavert að kanna nánar hreinsivirkni ýmissa gerða
ofanlausna með tilliti til örplasts. Sjá skýringarmynd á næstu opnu.
Hvað er til róða?
Samantekið má segja að okkar mat sé að svo sannarlega rnegi draga úr því magni
örplasts sem við íslendingar skilurn frá okkur í hafið. Það má gera með aukinni
hreinsun í skólphreinsistöðvum. Mat á stærstu uppsprettum örplasts gefur þó
tilefni til að leggja ekki minni áherslu á að skoða aukna hreinsun ofanvatns. Með
þessum hætti mætti fanga stærri hluta þess örplasts sem ratar í fráveitukerfin,
en einnig er mikilvægt að sem flestir kynni sér helstu uppsprettur örplasts svo
einnig megi ráðast að rót vandans sem er sjálf tilurð örplastsins.
HEIMILDIR
Carr, S.A., Liu, J. ogTesoro, A.G. (2016).Transport
and fate of microplastic particles in wastewater
treatment plants. Water research, 91,174-182.
Magnusson, K. (2014). Mikroskráp i avloppsvat-
ten frán tre norska avloppsreningsverk. Svenska
Miljöinstitutet.
Magnusson, K., Jörundsdóttir, H., Norén, F., Lloyd,
H.,Talvitie, J., &c Setálá, O. (2016a). Microlitter in
sewage treatment systems - A Nordic perspective
on waste water treatment plants as pathways for mi-
croscopic anthropogenic particles to marine systems.
Norræna ráðherraráðið.
Magnusson, K., Eliasson, K., Fráne, A., Haikonen,
K., Hultén, J., Olshammar, M.,... & Voisin, A.
(2016b). Swedish sources and pathways for micro-
plastics to the marine environment - A reveiw of
existing data. Swedish Environmental Protection
Agency (Sænska umhverfisstofnunin).
Talvitie, J. og Heinonen, M. (2014). Preliminary
study on Synthetic microfibers and particles at
a municipal waste water treatment plant. Baltic
Marine Environment Protection Commission
HELCOM.
2S