Upp í vindinn - 01.05.2017, Blaðsíða 44
Upp í vindinn
Til Japan d
námskeið um
náttúruhamfarir
' L J -fl/ku \ - *(■ mBB > Æ '4 ’ W w WKfj Hb® r--^ánBiPv J‘ t ;,U - ,*< .
fillj ' 'Jm
Síðastliðinn febrúar var ég svo heppin að vera annar af tveimur fulltrúum I láskó -
la íslands á „Young Leaders International Seminar" í Iwate héraðinu í Japan.
Námskeiðið var 8 dagar og umfjöllunarefnið „Networking in times of disaster".
Námskeiðið var á vegum háskólans í Iwate og að hluta til styrkt af stjórnvöldum
í Japan.
Við Sóley Eiríksdóttir lögðurn af stað frá Keflavíkurflugvelli þann 13. febrúar,
fullar tilhlökkunar um allt sem við værum að fara að læra og upplifa, nýja er-
lenda vini og helling af ljúffengu sushi. Eftir sólarhringsferðalag og túristastopp
í Tókýó tókum við lestina til litlu borgarinnar Morioka í Norður-Japan, þar sem
búa um 300.000 manns, álíka margir og á íslandi.
Námskeiðið hófst með umræðum um náttúruhamfarir, áhrif þeirra á sam-
félagið og siðferðislega togstreitu sem gæti skapast í björgunaraðgerðum og eft-
irleik. Þátttakendur voru 18 háskólanemar frá 7 löndum, íslandi, Japan, Kína,
Taívan, Tælandi, Mjanmar og Ítalíu. Þar sem náttúruhamfarir eru tíðar í öllum
þessum löndum höfðu allir einhverri reynslu og þekkingu að miðla.
EFTIR
Heiði Þórisdóttur
Utskriftarnemi i
umhverfis- og
byggingarverkfrœði
44