Upp í vindinn - 01.05.2017, Blaðsíða 45

Upp í vindinn - 01.05.2017, Blaðsíða 45
Háskóli íslands Við fóram í tveggja daga vettvangsferð þar sem við fræddust um og sáum með eigin augum áhrif feiknarstórrar flóðbylgju sem varð þarna árið 2011. Fyrir þá sem ekki þekkja þá byrjuðu hamfarirnar þann 11. mars með jarðskjálfta, oft nefndur „The Great East Japan Earthquake“, að stærð 9 Mw . í kjölfarið fylgdi gríðarstór flóðbylgja sem lenti á austurströnd Norður-Japans og hreif með sér eða banaði hátt í 25.000 manns. Eyðileggingin var gífurleg og voru margir mánuðir þar til lfflð á hamfarasvæðunum fór að ganga nokkurn vegin eðlilega. Fyrsti viðkomustaður vettvangsferðarinnar var slökkviliðsstöðin í Tono sem er bær miðsvæðis í Iwate héraðinu, milli sjávar og fjallabæjanna inni í landi. Bærinn er ekki útsettur fyrir flóðum eða slæmum jarðskjálftum en stjórnendur áttuðu sig á því að þeir væru í góðri aðstöðu til að hjálpa íbúum við ströndina í slíkum hamföram. Þeir undirbjuggu sig með því að setja saman viðbragsáætlun og hvetja nágrannabæi til að taka þátt. Auk þess héldu þeir reglulegar æfing- ar um hvernig þeir gætu veitt stuðning í hamförum. Þessi undirbúningur kom sér heldur betur vel í hamföranum 2011 þegar slökkviliðsstöðin í Tono stjórnaði björgunaraðgerðum og varð miðstöð fyrir utanaðkomandi hjálp. Næst var heimsóttur bærinn Rikuzentakata sem þurrkaðist nánast út í 14,5 m hárri flóðbylgjunni 2011. Á þessurn tíma bjuggu í bænum um 28.000 manns og þar af fórust tæplega 1800 í hamförunum. 3341 byggingar eyðilögðust algjörle- ga eða að mestu, margar þeirra sópuðust hreinlega burt með vatninu. Það tók marga mánuði að laga vegi, rafmagns- og vatnsveitur og aðra innviði og núna, 6 árum seinna, býr stór hluti fólks enn í bráðabirgðahúsnæði. Þar sem sjómennska er mikilvægasta atvinnugreinin í bænum virðist fólk ekki tilbúið að flytja upp í fjöllin, út af flóðbylgjuhættusvæði. í staðinn var sett af stað feikistór framkvæmd þar sem undirlag bæjarins er hækkað um nokkra metra í þeirri von að bjarga honum frá frekari flóðum. Það sem eftir var námskeiðsins einkenndist af umræðum og hópavinnu. Við veltum fyrir okkur hvað þyrfti að hugsa um við skipulagningu viðbragða. Fívers konar samskiptanet þyrfti að byggja, hvaða aðstoð, búnað og vistir þyrfti fyrir ólíkar hamfarir, hvernig einstaklingar,samfélög og stjórnvöld ættu að haga forvörnum, viðbrögðum og enduruppbyggingu og hvað við gætum lært af fyrri hamförum. í lokin var unnið stórt verkefni þar sem hópar tóku fyrir mismunan- di náttúruhamfarir, atburðarásir og samfélög. Nú spyrja sig eflaust einhverjir, hvernig tengist þetta verkfræði? Hvaða erin- di á þessi umfjöllun í blaðið? Jú, svarið er, verkfræðin er svo ótrúlega fjölbreytt. Áhættustjórnun, viðbragðsáætlanir og rannsóknir á náttúruhamförum er eitth- vað sem vissulega heyrir undir umhverfis- og byggingarverkfræði, og því hef ég m.a. fengið að kynnast í vinnu minni á Verkís meðfram skóla. Eftir nám í um- hverfis- og byggingarverkfræði þarf því ekki endilega að setjast við tölvuna og vinna með líkön eða teikningar allan daginn, það er greinilega ýmislegt í boði. Ferðin til Japan var bæði skemmtileg og einstaklega lærdómsrík. Námskeiðið sjálft kenndi mér margt, og ómetanlegt var að kynnast hinum þátttakendunum og öðrum sem komu að dagskránni. Við nemendurnir þurftum að vinna saman, búa saman og eyða frítímanum okkar saman. Með mismunandi menningu, bak- grunn og lífsgildi getur það verið snúið en þegar allt kemur til alls er það einn af höfuðlærdómum svona stúdentaskipta. Þau era fyrst og fremst til að efla alþ- jóðasamstarf og skapa tengingu milli ólíkra hópa. Umfjöllunarefnió var „Net- working in times of disaster“ og niðurstaðan var „networking" milli þátttakenda. í ferðinni fékk ég ekkert gott sushi en ég eignaðist vini sem munu fylgja mér það sem eftir er. Og ef eitthvað bjátar á í þeirra löndum verður löngunin til að hjálpa svo miklu sterkari en áður. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.