Upp í vindinn - 01.05.2017, Qupperneq 47
Háskóli íslands
ST R Æ TÓ
Fyrir nákvæmlega 10 ámm síðan tók Akureyrarbær
að bjóða frítt í strætó. Árið 2006 vom farþegar um 150
þúsund en á síðasta ári vom þeir tæplega 500 þúsund.
Heildarumhverfisáhrif slíkrar þróunar skipta miklu
máli en því til viðbótar gekk Akureyrarbær íyrir stuttu
frá kaupum á þremur metanstrætisvögnum og er von
á fyrsta vagninum í apríl. Bærinn er einnig með fjóra
minni vagna í rekstri sem allir keyra um á metani og í
byrjun árs var byrjað að keyra alla dísilvagnana á blön-
du af lífdísli. Rúmlega þreföldun farþega á 10 árum og
skipti úr endanlegu jarðefnaeldsneyti í endurnýjanlegt
umhverfisvænt „innanbæjareldsneyti“ eru breytingar
sem hafa mikil umhverfisáhrif. Þessar breytingar em
ekki á nokkurn hátt íþyngjandi fyrir lífsstíl íbúa bæja-
rins, heldur þvert á móti.
M 0 LTA
Árið 2009 tók til starfa jarðgerðarstöð í Eyjafirði og er
hún í eigu bæði opinberra og einkaaðila. Stöðin tók á
móti ríflega 7.000 tonnum af lífrænum úrgangi á síðas-
ta ári. Umhverfisáhrif af því að hætta að urða þann úr-
gang sem nú fer í jarðgerð skilar hátt í 10.000 tonna C02
samdrætti á hverju ári.
Orkey framleiðir lífdísil úr notaðri steikingarolíu
frá veitingahúsum á íslandi. 2011 var fyrsta heila rek-
strarár félagsins og var framleiðslan það ár um 60.000
lítrar af lífdísli en í fyrra var hún 160.000 lítrar. Stærsti
hluti framleiðslunnar er nýttur sem íblöndun á fiskiskip
og stærri bíla.
M E T A N
í áratugi var öllu sorpi á Akureyri safnað í einn stóran
sorphaug á Glerárdal fýrir ofan bæinn. Við rotnun lí-
fræna efnisins sem þar var safnað saman myndast
mikið metan sem hefur margfalt öflugri loftslagsáhrif
en koldíoxíð og því er það mikilvæg aðgerð að fanga það
og nýta. Áætlað er að hægt sé að framleiða metan sem
samsvarar eldsneytisnotkun 1.000 fólksbifreiða á ári
næstu 30 árin.
GRÆNA TREKTIN
Með grænu trektinni er íbúum boðið upp á að safna á
einfaldan og mjög þægilegan hátt allri matarolíu og fitu
sem fellur til á heimilum. Nú þegar hafa tæplega 3.000
heimili á Akureyri orðið sér úti um trektina. Ávinnin-
gurinn felst m.a. í því að losna við fitu úr fráveitukerfum
og nýta úrganginn sem hráefni til lífdísilgerðar. Með
þessu verkefni hefur því eiginlega verið búin til bein
tenging við frítt í strætó í gegnum Orkey; íbúar safna
olíu sem endar á strætó sem er frítt að ferðast með in-
nanbæjar.
LEIFUR ARNAR
Vistorka í samstarfi við Bautann setti nýlega af stað
verkefnið „taktu leifarnar með heim“. Hugmyndin
er að veitingastaðir á Akureyri verði með þríþæt-
ta Vistorku-vottun: 1) skili öllum lífrænum úrgangi í
moltugerð, 2) skili allri notaðri steikingarolíu í lífdísil-
framleiðslu og 3) bjóði viðskiptavinum upp á ílát til að
taka matinn sem það klárar ekki með heim. ílátin eru
unnin úr aukaafurðum við vinnslu á sykurreyr og mega
fara í jarðgerðarstöðina.
FLUGSKÓGURINN
Þar sem við munum ekki alveg í bráð ferðast á umh-
verfisvænan máta með flugvélum býður Vistorka í sam-
starfi við Akureyrarbæ og Skógræktarfélag Eyfirðinga
fyrirtækjum og einstaklingum að kolefnisjafna flugið
með því að planta trjám í landi Akureyrar. Það tekur tvö
tré um 15 ár að fanga það kolefni sem losnar á farþega
og Skógræktarfélagið tekur 500 kr. fyrir að planta þeim.
F R ÁV EITA
Til að uppíylla kröfur og reglur um fráveitu er nú verið
eða byggja hreinsistöð við útrásina á Akureyri, en ein-
nig er verið að tengja inn á kerfið þá hluta bæjarins sem
hafa verið á sjálfstæðu kerfi. Ávinningurinn er verulega
bætt hreinsun á því fráveituvatni sem rennur til sjávar.
GLERÁRVIRKJUN II
Hafnar eru framkvæmdir við 3,3 MW virkjun ofarlega
í Glerá, sem rennur í gegnum Akureyri. Framleiðslan
samsvarar rafnotkun um 7.000 rafbíla sem þýðir að
svæðið mun ekki þurfa að treysta á að fá orku á framtíðar
bílaflota bæjarins frá raforkukerfi landsins alls.
Þessu til viðbótar, og eitt af stóru málunum, er auðvitað
almenn flokkun á sorpi. Mikill árangur hefur náðst á
því sviði á svæðinu og í dag eru 10 gámasvæði víðsvegar
um bæinn og nýlega var komið fyrir flokkunarílátum í
miðbæ Akureyrar.
Verkefnin sem hér hefur verið farið yfir verða ekki
til, hvorki sem hugmynd né framkvæmd, nema með
fólki sem er tilbúið að afla sér þekkingar um hluti sem
eru síbreytilegir og í stöðugri þróun. Verkefnin eiga það
til að mynda öll sameiginlegt að aðkoma verk-, tækni-
og viðskiptafræðinga er veruleg á öllum stigum mála.
47