Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 57
Háskóli íslands
Inn í þessa sögu fléttast svo útköll á vegum íslensku alþjóðasveitarinnar, Rauða
krossins og annarra, sem verður elcki rakið hér.
Spurningin er, hvernig hefur verkfræðin gagnast í þeim störfum sem teljast
ekki hefðbundin verkfræðistörf? í fyrsta lagi hefur sú þjálfun sem fæst við að
takast á við verkefni sem sýnast í fyrstu vera óskiljanleg, kryíja þau, og flnna
lausnir, gefið sjálfstraust (og vissa varkárni) í verkefnavali. í öðru lagi, ef maður
er í vandræðum með það hvernig eigi að nálgast verkefni má oft flnna gagnlegar
samlíkingar við verkfræðina, t.d:
Að rökstyðja mál og leiða til lykta er eins og að leiða út jöfnu: rökstuðnin-
gur byrjar með einhverjum staðreyndum, síðan kemur röð af fullyrðing-
um þar til niðurstaða fæst. Vanda þarf hvert skref því útleiðslan verður
að byggja á samþykktum forsendum þeirra sem að málinu koma. Oft
felst lausnin í að búa til þessa forsendur.
Að hanna viðlagakerfl er svipað og að hanna hús: búnar eru til fors-
endur sem stuðst er við. í húsahönnun t.d. skal niðurbeygja í plötum
vera takmörkuð. í viðlagakerfum t.d. má ekki færa ábyrgð tii á milli
viðbragðsaðila á neyðartímum. Því skýrari forsendur, því auðveldara er
að hanna.
Nauðsyn þess að sjá heildarmyndina. T.d. þegar verið er að hanna hús,
þarf að raða saman mörgum byggðaveitum og húskerfum, annars geta
lagnakerfl rekist á þegar til framkvæmda kemur. Sama gildir um neyðar-
skipulag; ef þú hannar ekki fyrir heildarmyndina verða göt og árekstrar
í aðgerðunum.
Nú er ég komin á sextugsaldurinn og tel mig mega gefa ráð. Oft er gert mikið úr
því að eiga sér fyrirmyndir og sérstaklega að það vanti slíkt fyrir stelpur í verk-
fræðinni. Ég gef lítið fýrir það. Ég held að það skipti meira máli að kenna fólki
að hlusta á sína innri rödd, kenna sjálfstæð vinnubrögð og byggja þannig upp Greinarhöfundur að fyigjast með
sjálfstraust. Einnig þarf að kenna fólk að það sé allt í lagi að gera mistök stundum. hreyflngum á meðan á niðurbroti stóð.
Það blæs á móti öllum einhvern tímann á lífsleiðinni.
Þá er um að gera að taka það ekki of hátíðlega. Það er
allt í lagi að vorkenna sjálfum sér smá stund, en svo er
það bara búið. Standa upp, dusta af sér rykið og halda
ótrauð inn í framtíðina.
57