Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 58

Upp í vindinn - 01.05.2017, Side 58
Upp í vindinn Samgöngur erlendra ferðamanna d íslandi Viðhorfskönnun á akstursskilyrðum 2013-2016 í þessari grein er sagt frá M.S. rannsókn Sigríðar Lilju Skúladóttur við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla íslands, sem hún lauk í desember 2016, í leiðbeiningu Guðmundar Freys Úlfarssonar og Þorsteins Þorsteinssonar. ísland hefur undanfarin ár haslað sér völl sem vinsæll ferðamannastaður meðal erlendra ferðamanna. Ferðamenn sem koma hingað vilja njóta alls þess sem landið hefur upp á að bjóða, ferðast og sjá sem mest af náttúrufegurð landsins. Til þess að ferðast um landið eru margir kostir í stöðunni, þar á meðal almenningssamgöngur og bílaleigubílar. Ferðamenn eru mögulega óvanir aðstæðum sem eru sambærilegar við þær sem finnast í íslenska vegakerfinu. Til að mynda eru einbreiðar brýr og malarvegir algengir hér á landi og akstursskilyrði oft frábrugðin aðstæðum öðrum löndum. Ófyrirsjáanlegt veðurfar getur haft mikil áhrif. Rannsókn þessi byggist á könnun sem lögð var fyrir erlenda ferðamenn sem höfðu ferðast til íslands á árunum 2013-2016 og unnið var með 1099 svör. Markmiðið var að kanna við hvaða akstursskilyrði EFTIR Sigriði Lilju Skúladóttur, Guðmund Frey Úlfarsson og Þorstein Þorsteinsson erlendir ferðamenn ættu í erfiðleikum með að keyra og hvaða breytur höfðu áhrif á upplifun þeirra. Erlendir ferðamenn d íslandi Á undanförnum árum hefur íjöldi erlendra ferðamanna sem sækja ísland heim aukist gífurlega og frá því að talningar hófust hefur ferðamönnum fjölgað nær ár hvert. Árið 2016 voru brottfarir erlendra ferðamanna um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem áætlað er að nái yfir 96% erlendra ferðamanna, tæplega 1,8 milljón ferðamenn, sjá Mynd 1. Áður Aðstæður Meðaltal Staðalfrávik Svar við könnun Einkunn Malarvegur 2,31 1,08 Alls ekki erfitt 1 Veður 2,18 1,03 Svolítið erfitt 2 Ástand vegar 2,12 1,00 Erfitt 3 Einbreið brú 1,82 0,92 Mjög erfitt 4 Dýr á vegi 1,72 0,85 Vemlega erfitt 5 Umferðarskilti 1,46 0,71 Slys 1,28 0,72 Hraði 1,27 0,65 Umferð 1,18 0,47 komu um 50% ferðamanna yfir sumartímann en nú koma um 40% ferðamanna að sumri til og ferðamannatíminn hefur lengst. Meðaitai og staðaifrávik fyrir einkunn sem gefin var íyrir erflðleikastig Akstur erlendra ferðamanna aksturs við hin ýmsu akstursskiiyrði. Um 58% ferðamanna í könnuninni leigðu eða keyrðu bíl á íslandi. Ferðamenn voru spurðir um erfiðleika í akstri við hin ýmsu akstursskilyrði á íslandi, sjá Mynd 2. Hverju svari var gefin einkunn þar sem “Alls ekki erfitt” fékk einkunnina 1 og “Verulega erfitt” fékk einkunina 5. Niðurstöður voru þær að að ferðamenn áttu í mestum erfiðleikum með malarvegi, ástand vegar og veður, sjá Töflu 1. Raðtölu probit-líkön 58

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.