Upp í vindinn - 01.05.2017, Qupperneq 61
Háskóli íslands
leikvangurinn í London. Ólympíuleikarnir í London 2012 hafa verið nefndir
grænustu leikar til þessa en þar var m.a. gamalt iðnaðarsvæði hreinsað og byggt
upp. Einnig má nefna SMART göngin í Kuala Lumpur þar sem að umferðargöng
eru byggð með það í huga að leysa vandamál sem geta fylgt skyndiflóðum þar
í landi. Báðar þessar framkvæmdir eru byggðar með seiglu í huga þar sem þau
eiga að geta brugðist við ófyrirsjáanlegum breytingum framtíðarinnar en um leið
skila ábata fyrir bæði umhverfi og samfélag. Lférlendis er einnig að finna dæmi
um framkvæmdir þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Sesseljuhús að Sól-
heimum í Grímsnesi er sjálfbært hús þar sem umhverfisáhrif voru í hávegum við
hönnun og byggingu. Einnig er vert að nefna Urriðaholt í Garðabæ sem er fyrsta
hverfið hérlendis til að fá umhverfisvottun en hingað til hafa aðeins einstaka byg-
gingar fengið vistvænavottun.
Árangur krefst samvinnu
Töluverð vitundavakning hefur orðið um mikilvægi sjálfbærrar þróunar víða
í samfélaginu og margt gott verið gert en með nokkrum skrefum til viðbótar er
mögulegt að ná enn meiri árangri. Kolefnislosun frá byggingariðnaðinum þarf
sem dæmi að minnka, huga þarf betur að auðlindanýtingu og hringrás nýtingar.
Verkfræðingar gegna lykilhlutverki í að árangur náist í þessum málum og eru
fjöldi aðferða og tóla sem geta nýst við það. Svo sem lífsferils- og líftímakost-
naðargreiningar, kolefnisreikningar og vistvænar vottanir. Þó að mikil ábyrgð
liggi hjá verkfræðinni er þó ljóst að verkfræðingar munu ekki einir takast á við
þetta verkefni. Samvinna og samstaða allra, jafnt stjórnvalda og atvinnulífsins, er
mikilvægur þáttur til að árangur náist. Framfarir í umhverfismálum er nefnilega
samstarfsverkefni og sjálfbær þróun er ferðalag en ekki endastöð. Við þurfum öll
að vera stöðugt að bæta okkur og gera betur, takmarka neikvæð áhrif og stefna
að því að verk okkar skili ábata fyrir umhverfl og samfélag en valdi ekki skaða.
ÖU miða að því sama: að vernda líf,
heilsu, umhverfí og eignir.
Mannvirkjastofnun tryggir samræmingu á byggingareftirliti ogeldvarnaeftirliti ogstarfsemi slökkviliða um allt land. Stofnunin vinnur að samræmingu
brunavarna í landinu ogstuðlar að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum. Hún hefureftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna ograffanga
í mannvirkjum. Auk þess sér stofnunin um menntun slökkviliðs- og eldvarnareftirlitsmanna, löggildingu iðnmeistara og hönnuða og fjölmörg önnur
verkefni.
Mannvirkjastofnun fer með yfirumsjón byggingar-,
rafmagnsöryggis- og brunamála í landinu. Hún hefur
með höndum fjölmörg verkefni á þessum sviðum.
5kúiagötu21 • 101 Reykjavík ■ Sími:59l6000 • mvs.is • mvs@mvs.is
Mannvirkja
stofnun