Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 2

Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 20242 Það gerðist þennan dag Dagurinn í dag, 29. maí, er 150. dagur ársins sem þýðir að það eru 216 dagar eftir af árinu. Á þessum degi árið 1947 rakst far- þegaflugvél frá Flugfélagi Íslands á Hestfjall í Héðinsfirði og fórust allir sem voru um borð. Slysið er eitt mannskæðasta flugslys sem orðið hefur á Íslandi en 25 manns létust í slysinu. Árið 1953 náðu Edmund Hillary og Tenzing Norgay tindi Everest fjalls fyrstir manna og árið 1971 var afhjúpaður minnisvarði um Bjarna Benediktsson forsætis- ráðherra, konu hans og dóttur- son á Þingvöllum en þau fórust þar í eldsvoða árið áður. Óeirðir brutust út í úrslitaleik Evrópu- keppni meistaraliða milli Liver- pool og Juventus árið 1985 á Heysel leikvanginum í Belgíu með þeim afleiðingum að 38 áhorfendur létust og 600 slös- uðust. Árið 2008 varð jarðskjálfti á Suðurlandi og mældist 6,2 stig á Richter kvarða og olli töluverði tjóni, mest á Selfossi. Veðurhorfur Á fimmtudag má búast við suð- vestan 8-15 m/s, hvassast norð- vestan til. Víða dálítil rigning en þurrt að kalla seinni part- inn og léttir þá til norðan- og austanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstu- dag og laugardag eru líkur á suð- vestan 8-15 og vætu með köflum en yfirleitt þurrt og bjart á Norð- austur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á sunnudag verður ákveðin suðvestan- og vestan- átt og sums staðar dálítil væta en bjartviðri á Austurlandi. Hiti 8 til 16 stig, mildast austanlands. Spakmæli vikunnar Bros kostar minna en rafmagn en ber meiri birtu. Vestlendingur vikunnar Sjómannadagurinn er næstkom- andi sunnudag og í tilefni dags- ins er vel við hæfi að allir sjó- menn í landshlutanum séu Vest- lendingar vikunnar að þessu sinni. Til hamingju sjómenn! JULIANA GRAND OASE 25.6 m² Með grunnfestingu kr. 4.082.000 HALLS QUBE+ / 13m² Með grunnfestingu kr. 946.054 JULIANA VERANDA 12.9 m² Með grunnfestingu kr. 1.435.000 KAMÍNUR fyrir garðhúsið! Við seljum kamínur, reykrör og fylgihluti og gerum tilboð í uppsetningu á garðhúsum. JULIANA JUBII / 15,1m² Með grunnfestingu kr. 2.032.000 JULIANA ORANGERI 15.2m² Með grunnfestingu kr. 2.201.000 HALLS QUBE+ 6.6 m² Með grunnfestingu kr. 699.975 HALLS QUBE LEAN-TO 7.1 m² Með grunnfestingu kr. 544.356 Garðhúsin okkar eru tilvalin til að bjóða vinum í hitting þar sem þið njótið samveru ásamt blómailms. Skoðaðu úrvalið á heimasíðu okkar www.uxhome.is Uppl. s. 888 0606 Garðhús & Sólskálar Sýningahús í Reykjavík Sýningahús Akureyri MADE IN DENMARK Alltaf skjól og gott veður! Veldu heimilið UXhome.is JULIANA GRAND OASE 13 m² Með grunnfestingu kr. 2.087.000 JULIANA GRAND OASE 18,8 m² Með grunnfestingu kr. 2.473.000 VR hefur birt niðurstöður könnunar um Fyrirtæki ársins 2024. Voru þær kynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu sl. fimmtudag og afhentar viður- kenningar til fyrirtækja í þremur stærðarflokkum. Þessi könnun VR er stærsta vinnumarkaðsrannsókn á Íslandi og á sér yfir aldarfjórðungs sögu. Gallup lagði könnunina fyrir og sá um úrvinnslu niðurstaðna. Í flokki stórra fyrirtækja, með 70 eða fleiri starfsmenn, var Límtré Vírnet, en einnig Garri og NetApp. Í flokki meðalstórra fyrirtækja, þar sem starfa 30-69, voru fyrirtækin Hringdu, Reykjafell og Toyota á Íslandi. Loks í flokki lítilla fyrir- tækja, þar sem starfa færri en 30, voru fyrirtækin Arango, Kjólar & Konfekt og Mjúk Iceland. Í könnun VR er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfs- umhverfi fyrirtækja. Þetta eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuaðstaða, sveigjanleiki, sjálf- stæði í starfi, ímynd fyrirtækis, ánægja og stolt auk jafnréttis. mm Nýlega fóru fram mælingar á dýpi og þykkt setlaga á sjávarbotni Grundarfjarðar. Mælingarnar og úrvinnsla úr þeim eru liður í undir- búningi vegna mögulegrar efnis- töku af sjávarbotni, en Grundar- fjarðarhöfn vinnur nú að nýrri umsókn um efnistökuleyfi vegna frekari landfyllinga og hafnar- framkvæmda á komandi árum. Fram kemur á vef Grundarfjarðar að það var Köfunarþjónustan ehf. sem annaðist mælingarnar með fjölgeislamæli og söfnuðust alls rúmlega sex milljónir mælipunkta. Þeim hefur nú verið raðað í eina samfellda mynd af lögun botnsins og henni komið fyrir í vefsjá bæjarins, ásamt dýpislínum. Dýpið er sýnt með litaskala sem er rauðleitur á grynningum en verður blár þar sem dýpið er meira, rúmlega 20 metrar. Með því að smella á dýpislínurnar á kortinu fást upplýsingar um dýpið þar sem hver lína liggur. Eldra efnistökusvæði á sjávarbotni kemur skýrt fram á botnmyndinni. Dýpið miðast við sjávarborð við stórstraumsfjöru. Það var Alta ehf. sem annaðist gagnavinnslu úr mælingunum og framsetningu upplýsinganna þannig að skoða mætti þær í vefsjánni. Hægt er að skoða hlekk á vefsjána á vef bæjarins en haka þarf við línuna „Hafsbotn“ og þar undir er hægt að velja botnmynd og dýpislínur. vaks Mælingar á sjávarbotni Grundarfjarðar Límtré Vírnet eitt af fyrirtækjum ársins hjá VR Mynd af sjávarbotni Grundarfjarðar. Ljósm. grundarfjordur.is Fulltrúar Límtrés Vírnets stoltir með sína viðurkenningu. Ljósm. aðsend
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.