Skessuhorn - 29.05.2024, Page 4

Skessuhorn - 29.05.2024, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 20244 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Prentútgáfa Skessuhorns kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er til hádegis á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega í síma 433 5500 eða á auglysingar@skessuhorn.is Skessuhorn býður þrjár leiðir til áskriftar. 1) Skessuhorn er prentað í 3.200 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 4.575 krónur með vsk. á mánuði. 2) Rafræn áskrift (PDF áskrift að blaði) kostar 3.585 kr. 3) Vefáskrift að www.skessuhorn.is kostar 1.998 krónur á mánuði. Áskrifendum blaðs býðst 50% afsláttur af vefáskrift vilji þeir bæta henni við og greiða þá 999 kr. Pöntunarform fyrir allar áskriftarleiðir er á skessuhorn.is SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Bergþóra Björnsdóttir bb@skessuhorn.is Hafþór Ingi Gunnarsson hig@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Tinna María Ólafsdóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Siggi Sigbjörnsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Nóg að gera næstu daga Það er mikið um að vera í þjóðlífinu þessa dagana. Á sama tíma og árstíðarbundnar annir standa yfir til sjávar og sveita eru skólarnir að útskrifa nemendur. Við segjum í dag frá útskriftum í þremur framhaldsskólum í landshlutanum þar sem ungt og glæsilegt fólk leggur ákveðinn kafla að baki sér og bankar á næstu dyr. Hjá flestum þeirra á það fyrir að liggja að hefja háskóla- eða annað framhaldsnám og þá gjarnan fjarri heimabyggð. Eftir að framhaldsskólar urðu í öllum landshlutum er unga fólkið þannnig í fyrsta skipti að hleypa heimdraganum á þessum tímapunkti. Reyndar er fjarnám á háskólastigi sífellt að verða aðgengilegri kostur og jafnvel hægt að stunda atvinnu samhliða því. Hver og einn getur ráðið námshraða sínum og því unnið samhliða námi kjósi viðkomandi svo. Merkileg þróun hefur verið að eiga sér stað, tækniframfarir sem gefa möguleika á að draga úr skuldasöfnun á námstímanum. Fólk þarf ekki að hafa tvöfalda búsetu að vetrinum og margir sem njóta þeirra forréttinda að búa í foreldrahúsum á meðan á námi stendur. Þetta eins og annað er því að breytast, þökk sé meðal annars miklu öflugri fjarskiptum en voru fyrir örfáum árum, aukinni tækniþekkingu og sveigjanleika bæði skólanna og unga fólksins. Þjóðin undirbýr sig nú andlega fyrir kosningu sjöunda forseta lýðveldisins á laugardaginn. Margir gefa kost á sér en einungis einn verður út valinn. Ef marka má kannanir um fylgi frambjóðenda er beinlínis útilokað að spá fyrir um úrslitin. Að einhverju leyti mun það ráðast af gengi frambjóðenda í kappræðum næstu daga, en einnig fjölmörgu öðru. Veðrið gæti jafnvel spilað inn í kjörsókn. Margir hafa takmarkaðan eða engan áhuga á að nýta rétt sinn til áhrifa og munu sitja heima. Þannig hefur þróunin verið í síðustu kosningum og hæpið að það breytist nú. Svo eru aðrir sem eru bókstaflega með þessar kosningar á heilanum og fara óðslega til að afla sínum fylgis. Ef eitthvað er að marka þessar kannanir get ég sagt fyrir mína parta að ég uni að sjálfsögðu niðurstöðunni. Fjórir eða fimm hafa raunhæfa möguleika, ef aftur er að marka kannanir, og allt er þetta sómafólk. Í ljósi þess að ég er mjög fylgjandi beinu lýðræði hvet ég alla sem kosningarétt hafa til að mæta á kjörstað. Saman eigum við einnig að hvetja unga fólkið til að hafa áhrif og ættum að benda því á að það er hreint ekki sjálfsagður réttur í öllum löndum að fá að hafa slík áhrif. Við eigum að benda unga fólkinu á að virða þau forréttindi sem í lýðræðinu felst, láta rödd sína heyrast þegar óskað er eftir því. Það er svo aftur allt annað mál hvort ég er sáttur við þetta fyrirkomulag við forsetakjör. Því þarf snarlega að breyta að kosið verði milli þeirra tveggja sem mest fylgi fá í fyrri hluta kosningar. Setjum sem svo að á laugardaginn verði kosinn forseti með kannski fjórðungs fylgi á bakvið sig, er það hreint ekki vænleg staða, ekki síst fyrir þann sem verður valinn. Einhverra hluta vegna hefur Alþingi ekki ráðist í þessa breytingu á lögum um kjör forseta Íslands en vonandi verður brugðist við því. Framundan um næstu helgi er einnig sjómannadagurinn og hátíðarhöld þeim tengd. Mikilvægt er að við sem þjóð heiðrum þessa stétt fólks og fögnum með sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Engri starfsstétt annarri eigum við Íslendingar meira að þakka. Hér á Vesturlandi eigum við sem betur fer blómlegar byggðir þar sem sjávarútvegur er enn kjölfesta atvinnulífs, enda steinsnar frá gjöfulustu fiskimiðum í heimi. Þar blómstrar togaraútgerð krydduð með smærri bátum og skipum, ekki síst yfir sumartímann. Það er gaman að koma til Rifs, Ólafsvíkur og Grundarfjarðar sérstaklega, finna og sjá hvernig hafnirnar eru áfram lífæð þessara byggða. Hvar mönnum hefur tekist að halda veiðiheimildum innan byggðarlags, byggja upp og fjárfesta, í stað þess að selja kvótann í burtu og telja sinn skjótfengna gróða. Ég óska námsfólki til hamingju með áfangann, sjómönnum til hamingju með daginn og þjóðinni að vel gangi að kjósa nýjan forseta lýðveldisins. Magnús Magnússon Fyrsti lax sumarsins er kominn á land. Hann var veiddur á mánu- dagsmorgun í Skugga í Borgar- firði og veiðimaðurinn var Mik- ael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins í fyrra. Fiskurinn var 84 cm, nýgengin og falleg hrygna. Jón Þór Júlíusson segir að árin 2021 og ´22 hafi fyrstu laxar sumarsins einmitt verið veiddir í Skugga. Vatnsbúskapur ánna er góður um þessar mundir og er laxinn byrj- aður að mæta í árnar. Lax hefur til að mynda sést í Laxá í Kjós. Þegar árnar almennt fara að hreinsa sig eftir lægð helgarinnar mun hann að líkindum sjást víðar. Formleg veiði hefst í Þjórsá að morgni laugardags- ins 1. júní og síðan í ánum koll af kolli eins og venja er til. gb Land og skógur auglýsir nú eftir áhugasömu fólki sem vill taka þátt í vöktunarverkefninu Landvöktun - lykillinn að betra landi. Þátttak- endur leggja þar með lóð á vogar- skálina við söfnun gagna sem notuð eru við mat á ástandi gróðurs og jarðvegs á öllu landinu. Vöktunarverkefnið er hluti af Grólind, verkefni sem ætlað er að gera með reglubundnum hætti heildarmat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu þess- ara auðlinda. „Mælingarnar sem þátttakendur safna verða notaðar við ástandsmat á stöðu gróðurs og jarðvegs á öllu landinu. Gögnin eru almannaeign og því geta þátt- takendur notað þau að vild. Þær aðferðir sem notaðar eru við vökt- unina eru í stöðugri endurskoðun og þátttakendur geta haft mikil áhrif á hvað mælt er,“ segir í til- kynningu frá Landi og skógi. Stofnunin hvetur allt áhugasamt fólk til að taka þátt í landvöktuninni, svo sem landeigendur, bændur og ýmsa hópa, stóra og smáa. „Því fleiri sem stökkva á vagninn, því betur gengur Grólindarverkefnið og þar með fást meiri og betri gögn til að taka upplýstar ákvarðanir í sameiningu um landnýtingu.“ mm Klukkan 8:40 síðastliðinn fimmtudagsmorgun barst björg- unarsveitum á Snæfellsnesi útkall þar sem koma þurfti vélarvana báti til aðstoðar. Ekki var um strand- veiðibát að ræða, eins og flestir bjuggust við, heldur var það Steinunn SH, snurvoðarbátur frá Ólafsvík, sem hafði fengið nótina í skrúfuna og við það hafði gír brotnað. Skipið var þá statt út af Krossnesvita norðan við Kirkjufell. Áður en aðstoð barst höfðu skip- verjar skorið nótina frá skrúfunni og lá hún í sjónum við bátinn og var sótt af öðru skipi. Það var svo björgunarskipið Björg frá Rifi sem tók skipið í tog. Komu þau til Ólafs- víkur um hádegisbil. Gott veður var á svæðinu, hæg vest-norðvestan átt, hægur sjór og lítið rek. Engin hætta steðjaði að mannskapnum um borð. mm Steinunn SH tekin í tog til Ólafsvíkur Hér er verið að koma tóg á milli Bjargar og Steinunnar og dráttur að hefjast til Ólafsvíkur. Ljósm. aðsend Björgin með Steinunni í togi. Ljósm. Landsbjörg Lýst eftir þátttakendum í Landvöktun Fyrsti lax sumarsins kominn á land úr Skugga Mikael Marinó Rivera á mánu- dagsmorgun með fyrsta lax sumarsins í Skugga í Borgarfirði.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.