Skessuhorn - 29.05.2024, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202412
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar 16. maí síðastliðinn var tekið
fyrir erindi frá Akraneskirkju vegna
skila á Skólabraut 9, sem í dag-
legu tali er kallað Gamli Iðnskól-
inn, en var barnaskóli í upphafi eða
árið 1912. Í bréfi Akraneskirkju
kemur fram að kirkjan fékk hús-
næðið afhent frá Akraneskaupstað
með gjafasali 23. apríl 2008. „Frá
árinu 2008 hefur kirkjan einkum
nýtt húsnæðið fyrir barna- og ung-
lingastarf sem fer fram yfir veturinn
og nokkrar vikur á sumrin þegar hið
vinsæla ævintýranámskeið er haldið.
Þá hefur húsnæðið einnig nýst vel
við fjölmennar útfarir þegar bæta
þarf við sætum. Húsið hefur verið
notað fyrir ýmsa aðra viðburði og
fjölbreytta starfsemi kirkjunnar. Í
húsnæðinu er einnig þvottahús fyrir
kirkjuna og geymslur. Margir hafa
einnig sótt í að halda viðburði í hús-
inu, svo sem listsýningar og tónleika.
Húsið hefur því verið vel nýtt af
kirkjunni og fleiri haft afnot af hús-
inu, íbúum bæjarins til ánægjuauka.“
Í bréfinu segir einnig að
Akranes kirkja sé rekin á sóknar-
gjöldum sem rétt nái að standa
undir safnaðarstarfi og daglegum
rekstri, sem og viðhaldi kirkjunnar
og safnaðarheimilisins. Söfnuð-
urinn hafi ekki haft bolmagn til að
viðhalda húsinu sem skyldi og enn
síður tök á að ráðast í þá endur-
nýjun og lagfæringar sem þörf er á.
„Eins og fulltrúar bæjarins hafa
séð, er þeir komu að skoða húsið,
hefur Gamli Iðnskólinn mikið látið
á sjá og er farið að leka sem veldur
frekara tjóni. Viðhald hússins má
því ekki dragast mikið lengur. Ekki
hefur verið gerð kostnaðaráætlun
vegna viðgerða á Gamla Iðnskól-
anum en ljóst er að þar er um
verulegar fjárhæðir að ræða.
Akranessókn sér ekki annan
kost í stöðunni en að skila húsinu,
en er tilbúin í viðræður um vörslu
hússins og samnýtingu ef Akra-
neskaupstaður sér ávinning af því.
Við teljum að húsið gæti komið sér
vel, bæði fyrir Akraneskaupstað og
kirkjuna. Samnýting beggja aðila
gæti hentað vel, þar sem báðir aðilar
eru oft með viðkvæma hópa af fólki í
þjónustu og vantar oft rými þar sem
hægt er að vera í næði. Mögulega
væri hægt að gefa húsinu fjölbreytt
hlutverk ef það yrði endurbætt og
lagað. Nálægð Gamla Iðnskólans
og Safnaðarheimilisins Vinaminnis
er mikil og það er kirkjunni í hag
að í húsinu sé starfsemi sem fer vel
með hlutverki og störfum kirkj-
unnar,“ segir í bréfi Akraneskirkju.
Í gjafaafsalinu frá 2008 kemur
fram að eftirfarandi kvaðir eru
áskildar af hálfu Akraneskaupstaðar
og fylgja gjöfinni: Húsnæðið verði
notað undir starfsemi Akraneskirkju,
viðhald húss og lóðar verði með
sama hætti og er á öðrum eignum
kirkjunnar, hafi Akraneskirkja ekki
lengur not fyrir húsnæðið skal því
skilað aftur ásamt lóð til Akra-
neskaupstaðar án endurgjalds og
óheimilt er að veðsetja húsið fyrir
lántökum eða öðrum kvöðum.
Í fundargerð segir að bæjar-
ráði þyki miður sú staða sem upp
sé komin og rakið er með skýrum
hætti í erindinu og megi fyrst og
fremst rekja til fjárhagslegrar stöðu
Akranessóknar. Bæjarráð óskaði
umsagnar skipulags- og umhverfis-
ráðs varðandi möguleg not hússins
fyrir Akraneskaupstað og varðandi
ástand mannvirkisins. Bæjarráð fól
jafnframt bæjarstjóra frágang lög-
gerninga og annars sem tilheyrir
breyttu eignarhaldi hússins.
vaks
Við forsetakosningarnar 1. júní
næstkomandi verður í fyrsta skipti
einungis kosið í fjórum kjör-
deildum í sveitarfélaginu Borgar-
byggð, en ekki sex eins og í mörgum
undangengnum kosningum. Nú
verður kosið í Borgarnesi, Lindar-
tungu, Þinghamri og á Klepp-
járnsreykjum. Undir lok árs 2022
samþykkti sveitarstjórn breytingar
á samþykktum sveitarfélagsins sem
fólu í sér þessa fækkun. Búið er að
fella niður kjördeildir í Lyngbrekku
á Mýrum og á Brúarási í Hálsaveit.
Í Borgarnesdeild kjósa nú íbúar
á svæðinu milli Hítarár og Gljúf-
urár, á Hvanneyri og í Andakíl. Í
Lindartungukjördeild kjósa íbúar
á svæðinu milli Hítarár og Haf-
fjarðarár. Í Þinghamarskjördeild
kjósa íbúar í Stafholtstungum,
Norðurárdal, Bifröst og Þver-
árhlíð. Loks í Kleppjárnsreykja-
kjördeild kjósa íbúar Bæjarsveitar,
Lundarreykjadals, Flókadals,
Reykholtsdals, Hvítársíðu og
Hálsasveitar.
mm
FORVAL
Brákarhlíð fasteignafélag óskar eftir umsóknum verktaka til að taka þátt í útboði á byggingu
fjölbýlishúss við Borgarbraut 63 í Borgarnesi. Húsið verður íbúðarhús á 4. hæðum með 12
námsmannaíbúðum og 12 íbúðum fyrir almennan markað, ásamt kjallara og bílageymslu.
Valdir verða 4-5 verktakar til þátttöku í útboðinu.
Forvalsgögn verða afhent rafrænt á vef Dynju frá og með n.k. þriðjudag 28. maí. Beiðni um aðgang að
forvalsgögnum veitir Dýrfinna Arnardóttir dyrfinna@dynja.is
Umsóknum skal skila inn til Dynju ehf, Krókhálsi 5, 110 Reykjavík eigi síðar en 5.júní 2024 kl:14:00.
Akraneskirkja skilar
Gamla Iðnskólanum
Gamli Iðnskólinn við Skólabraut. Ljósm. vaks
Kjördeildum við
forsetakosningar
fækkað í Borgarbyggð
Svipmynd úr Borgarneskjördeild 2012. Ljósm. úr safni Skessuhorns.