Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202414
Boðskort
Kæru Borgnesingar, næstsveitungar og aðrir
velunnarar Björgunarsveitarinnar Brákar.
Þann 2. júní næstkomandi er fyrirhuguð
vígsla nýs húss okkar að Fitjum í Borgarnesi.
Vígslan hefst klukkan 14:00 með stuttri
athöfn. Að henni lokinni verður boðið upp á
léttar kaffiveitingar auk þess sem húsið
verður opið almenningi til sýnis.
Hlökkum til að sjá þig/ykkur
Með þakklætiskveðju
Björgunarsveitin Brák Borgarnesi
Barnamenningarhátíð Akranes-
kaupstaðar var sett með formlegum
hætti síðasta fimmtudag þegar
öllum mennta- og menningar-
stofnunum kaupstaðarins var afhent
bókin Sjónarafl: Þjálfun í mynd-
læsi. Bókin er hluti af verkefni Lista-
safns Íslands sem miðar að því að
auka aðgengi barna og ungmenna
að menningarfi þjóðarinnar sem
finna má í söfnum landsins. Sjónar-
afl er byggt á þróunarverkefni sem
fræðsludeild Listasafns Íslands hefur
unnið að undanfarin ár og byggir á
alþjóðlegum rannsóknum í mynd-
læsi. Kennsla í myndlæsi eykur
þekkingu yngri safngesta á myndlist,
eflir gagnrýna hugsun, rökhugsun
og hugtakaskilning ásamt því að
þjálfa nemendur í virkri hlustun og
skoðanaskiptum.
Fram kemur á vef Akraneskaup-
staðar að á Barnamenningarhátíð í
ár er þemað Skrímsli. Hátíðardag-
skrá stendur yfir frá 23. – 31. maí
og þar má finna fjölbreytt úrval
af smiðjum og afþreyingu fyrir
börn á öllum aldri og fjölskyldur
þeirra. „Lögð verður áhersla á
náttúruperlurnar okkar, fjörurnar,
á hátíðinni og hefur að því tilefni
verið útbúinn nýr fræðsluvefur og
samantekt um fjörurnar sem faðma
bæinn okkar ásamt því að upplýs-
ingaskiltum hefur verið komið
fyrir í fjörunum þar sem bæjarbúar
og gestir okkar geta skannað QR
kóða og fundið umrædda fræðslu-
síðu.“ Öll börn í leik- og grunn-
skólum kaupstaðarins fengu einnig
afhendan bækling með fræðslu um
fjörurnar og upplýsingum um dag-
skrá hátíðarinnar.
„Til þess að tengja þema
hátíðarinnar og fjörurnar
okkar saman eru börn í leik-
og grunnskólum í samvinnu
við kennara, starfsfólk
menningarstofnana og frístundar
að vinna glæsileg verkefni í völdum
fjörum, þar sem börnin skapa sitt
eigið sæskrímsli. Upplýsingar
um verkefnin eru væntanleg
á fjörusíðuna og verða kynnt
sérstaklega á öllum miðlum. Að
barnamenningarhátíð lokinni
viljum við benda á lokafögnuð
Barnamenningarhátíðar þar sem
Akraneskaupstaður tekur höndum
saman með Listahátíð í Reykjavík.
Um er að ræða flutning á verkinu
Sæskrímslin, götuleikhússýningu
Sirkushópsins Hringleiks sem
frumflutt verður á Listahátíð í
Reykjavík þann 1. júní. Sæskrímslin
hefja ferð sína í höfuðborginni
og fara svo á Akranes, Ísafjörð,
Húsavík og Neskaupstað og
allir þessir viðburðir eru hluti af
Listahátíð. Viðburðurinn verður
4. júní í Akraneshöfn klukkan
17.15, rétt á undan kvikmyndahátíð
Grundaskóla,“ segir á vef
Akraneskaupstaðar.
vaks
Söguhópurinn Kellingar stefnir á
að vera með viðburð á sjómanna-
daginn, sunnudaginn 2. júní á
Akranesi. Komið verður saman
á Akratorgi kl. 13:30 en sögu-
gangan fjallar um upphaf
skólahalds á Akranesi. „Gangan
hefst á Akratorgi og síðan verður
gengið um miðbæinn. Allir eru
velkomnir. Það liggur mikil vinna
að baki göngunnar og væntum
við að fá sem flesta með okkur í
röltið. Í ár heitir gangan Í skól-
anum, í skólanum...,“ segir í til-
kynningu.
mm
Búið er að setja upp nýtt leik-
tæki í skógræktinni á Akranesi en
um er að ræða þrautabraut úr fal-
legum viði sem fellur smekklega
inn í umhverfið. Fram kemur á vef
Akraneskaupstaðar að leiktækið var
afmælisgjöf til bæjarfélagsins frá
menningar- og safnanefnd í tilefni
af 80 ára afmæli kaupstaðarins árið
2022. Egill Steinar Gíslason setti
þrautabrautina upp, Gísli Jónsson
ehf. sá um frágang og er leiktækið
frá Krumma ehf. í Reykjavík sem
sérhæfir sig í að hanna og framleiða
útileiktæki undir fimm vörulínum.
vaks
Kellingar fjalla um upphaf
skólahalds á Akranesi
Svipmynd frá sögugöngunni á síðasta ári. „Auk okkar kellinga er hirðskáldið okkar
Auður Sigurðardóttir á myndinni (ekki með svuntu og húfu). Aðrar á mynd eru:
Hulda Gestsdóttir, Hallbera Jóhannesdóttir, Gyða Bentsdóttir, Guðbjörg Árnadótt-
ir, Auður Sigurðardóttir, Halldóra Jónsdóttir og Unnur Sigurðardóttir.
Þrautabraut sett
upp í skógræktinni
Nýja þrautabrautin í skógræktinni. Ljósm. vaks
Barnamenningarhátíð stendur nú yfir
Hér má sjá þau Viktoríu Dís og Liljar Pál sem tóku á móti gjöfinni fyrir hönd
Teigasels, ásamt Írisi G. Sigurðardóttur leikskólastjóra og Dagnýju Hauksdóttur
sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs. Ljósm. akranes.is
Hér má sjá Sæskrímsli Kalmansvíkur sem börn á elstu deild í Garðaseli sköpuðu í
tilefni af hátíðinni.