Skessuhorn - 29.05.2024, Side 24

Skessuhorn - 29.05.2024, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202424 SK ES SU H O R N 2 02 4 Kjörfundur vegna forsetakosninga 1. júní 2024, fer fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands, Vogabraut 5 og hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur kl. 22:00. Fjölbrautarskóli Vesturlands, gengið inn um aðalinngang Vogarbrautarmegin I. kjördeild Akralundur til og með Esjubraut II. kjördeild Esjuvellir til og með Jaðarsbraut III. kjördeild Jörundarholt til og með Smiðjuvellir IV. kjördeild Sóleyjargata til og með Þjóðbraut Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og hafa meðferðis persónuskilríki. Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 899 9180. Netfang: kosning@akranes.is Akranesi, 24. maí 2024 YFIRKJÖRSTJÓRN AKRANESS Einar Gunnar Einarsson Geir Guðjónsson Karitas Jónsdóttir Forsetakosningar 2024, Akranesi Föstudaginn 24. maí voru 27 nem- endur útskrifaðir frá Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði. Tíu nemendur luku námi á félags- og hugvísindabraut, tveir luku námi á náttúru- og raunvísindabraut, tveir af nýsköpunar- og frumkvöðlabraut, átta luku námi á opinni braut, þrír á starfsbraut og tveir nem- endur luku viðbótarnámi til stúd- entsprófs. Með þessum hópi hefur skólinn nú útskrifað 597 nemendur frá fyrstu útskriftinni sem var í des- ember 2005. Til gamans má geta þess að nemendur koma víða að, en í útskriftarhópnum nú voru nem- endur úr tíu póstnúmerum. Á fyrstu árum skólans komu nemendur fyrst og fremst af upptökusvæði skólans, þ.e. Snæfellsnesi, en í dag eru nem- endur alls staðar af að landinu. Í upphafi ávarpaði Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari nem- endur og aðra gesti. Sagði hún að þetta væri merkisdagur í sögu skól- ans því nú er lokið tuttugasta starfs- árinu hans. „Nemendahópur FSN er fjölbreyttur. Hér eru fjarnem- endur, staðnemendur, nemendur í Framhaldsdeildinni á Patreksfirði og grunnskólanemendur sem taka hér áfanga í kjarnagreinum. Fjar- nemendur eru margir nemendur í öðrum framhaldsskólum víðsvegar um landið og hluti fjarnemenda lýkur öllu námi frá skólanum og útskrifast héðan.“ Þá sagði Hrafn- hildur að í þessari viku verði skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf við Snæfellsnessþjóðgarð en í því felst t.d. heimsóknir nemenda FSN í þjóðgarðinn og miðlun þekkingar starfsfólks þjóðgarðsins til nem- enda FSN með fyrirlestrum og erindum. Eftir útskrift veitti Hermann Hermannsson kennari og starfandi aðstoðarskólameistari viðurkenn- ingar fyrir námsárangur. Bjarni Þormar Pálsson var dúx með 9,03 í meðaleinkunn og fékk menntaverðlaun Háskóla Íslands auk peningagjafar frá Arion banka. Einnig fékk hann viðurkenningu fyrir góðan náms- árangur í dönsku. Berglind Hólm Guðmunds- dóttir og Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir hlutu einnig viður- kenningu fyrir góðan námsár- angur í dönsku. Berglind Hólm fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum auk þess sem hún fékk viðurkenningu fyrir störf sín sem forseti nem- endafélagsins. Harpa Dögg hlaut þá einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sögu. Marta Björg Einarsdóttir fékk verðlaun frá Háskólanum í Reykja- vík fyrir góðan námsárangur í raun- greinum. Ásdís Gísladóttir hlaut viður- kenningu fyrir góðan námsárangur í tungumálum og Patrycja Step- inska fékk hvatningarverðlaun frá Zontaklúbbnum Uglu í Borgarfirði. Styrktaraðilar að gjöfum og viðurkenningum eru sveitar- félögin á norðanverðu Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum, Danska sendiráðið, Arion banki, Landsbankinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Sögufélag Íslands og Zontaklúbburinn Ugla. Við útskriftina flutti Davíð Svanur Hafþórsson frumsamið lag en með sama lagi tók hann þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd skólans. Að því loknu fluttu hann og Berglind Hólm kveðjuræðu útskriftarnema. Þau töluðu um skólabraginn og hlýja viðmótið við skólann, tækifærin sem þau fengu á sinni skólagöngu í verkefnum og ferðalögum. Því næst flutti Gauti Daðason, 10 ára stúdent, ræðu fyrir hönd eldri útskriftarnema og sagði frá því hvað námið við skólann hefði undirbúið hann vel undir laganámið sem hann fór í eftir útskrift frá skólanum. Erna Guðmundsdóttir flutti ræðu fyrir hönd starfsfólks en hún hefur starfað við skólann í 15 ár en hefur ákveðið að láta af störfum við FSN. Í ræðu sinni kom Erna m.a. inn á mik- ilvægi þess að hafa framhaldsskóla í heimabyggð þannig að nemendur þyrftu ekki að fara ungir að heiman og að það hefði sýnt sig að nemendur kæmu vel undirbúnir til frekara náms eftir útskrift úr FSN. Kannanir á gengi nemenda í háskólum hefðu t.d. sýnt að nemendur úr FSN væru í 6. sæti yfir nemendur sem ljúka námi úr háskólum. Eftir athöfn var gestum og velunnurum boðið til veislu. mm/ Ljósm. tfk Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Bjarni Þormar Pálsson var dúx skólans og fær hér viðurkenningu frá Hermanni Hermannssyni starfandi aðstoðarskólameistara. Ernu Guðmundsdóttur voru þökkuð störf sín við skólann, hér er hún ásamt Hrafn- hildi skólameistara.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.