Skessuhorn - 29.05.2024, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2024 31
ALLT UM MÓTIÐ
UMFI.IS
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR
BORGARBYGGÐ
UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ BORGARNESI
1.-4. ÁGÚST
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ FYRIR 11–18 ÁRA.
TÓNLEIKAR OG SKEMMTUN Á KVÖLDIN.
Sýningum á Diskóeyjunni í upp-
færslu nemenda í Brekkubæjarskóla
á Akranesi lauk um síðustu helgi.
Alls voru sýndar ellefu sýningar,
uppselt var á níu þeirra og nánast
fullt á hinar tvær. Síðasta miðviku-
dag kom tökulið frá kvikmynda-
fyrirtækinu Glassriver sem fram-
leiðir kvikmyndir og sjónvarps-
efni og tók sýninguna upp. Fyrir-
tækið hefur meðal annars séð um
upptökur á kvikmyndinni Vonar-
stræti og þáttunum Venjulegt fólk,
Svartir sandar og fleirum. Blaða-
maður Skessuhorns hitti á þau
Hjörvar Gunnarsson leikstjóra
og Hafdísi Bergsdóttur sem var í
framkvæmdastjórn í smá spjall síð-
asta mánudag.
Sýndu fyrir tómum sal
Hvernig kom það til að ákveðið var
að taka upp Diskóeyjuna? Hjörvar
segir að það tækifæri hefði óvænt
komið upp en ákveðið var að kýla
á það. „Ein mamman í hópnum
vinnur þar og gat verið okkur innan
handar í að fá tökulið til að taka upp
sýninguna og eigum við því alvöru
upptöku af Diskóeyjunni. Meira að
segja var þetta þannig að það hafði
dottið út tökudagur í einu verkefni
hjá þeim þannig að það var hægt að
fá þau hingað síðasta miðvikudag.
Þarna voru krakkarnir búnir að sýna
fyrir fullu húsi nokkra daga í röð í
Bíóhöllinni en þarna komu þau
að morgni til og sýndu fyrir alveg
tómum sal með tveimur mynda-
vélum og þau skiluðu fyllilega sínu.“
En hvenær og hvar verður hægt að
sjá Diskóeyjuna? „Hún verður gerð
aðgengileg en við vitum ekki alveg
hvenær. Vonandi bara sem fyrst en
hvar hún birtist er ekki heldur búið
að taka ákvörðun um. En þegar það
gerist munu allir fá að vita það, við
lofum því.“
Alls voru yfir tvö þúsund miðar
seldir á sýningarnar á Diskóeyj-
una. Eruð þið ekki ánægð með við-
tökurnar? „Við erum í skýjunum,“
segir Hafdís; „því við vissum að
værum að sækja aðeins á brattann.
Við vorum þriðju og síðust í röð-
inni eftir sýningar hjá Grundaskóla
og FVA og við með leikrit sem
hafði aldrei verið sýnt áður. Ég held
að á sama tíma að það hafi hjálpað
okkur því greinilega voru Skaga-
menn til í að koma í leikhús og
einnig að sjá leikrit sem þeir höfðu
ekki séð áður. Það var virkilega
ánægjulegt og við erum rosalega
þakklát fyrir viðtökurnar.“
Áttu virkilega erfitt
með tilfinningarnar
Nú þegar sýningum er lokið, hver
eru viðbrögð krakkanna og hvað er
svona sýning að gefa þeim og ykkur?
„Við erum viðbúin því að leik-
hópurinn mun mæta frekar þreyttur
í skólann sem er mjög skiljanlegt eftir
svona langa törn. Þegar þau voru að
skila búningunum og átta sig á því að
þetta væri búið þá fóru nokkur þeirra
að gráta og áttu virkilega erfitt með
tilfinningarnar sem er bara mjög
eðlilegt,“ segja Hjörvar og Haf-
dís. „Það mun enginn sem tók þátt
í þessu, hvorki nemendur né starfs-
fólk, gleyma þessu nokkurn tímann.
Nú erum við að útskrifa 10. bekk og
þau verða því ekki með okkur næsta
haust en við hlökkum til í haust að
fá næsta 9. og 10. bekk, sem eru nú
í 8. og 9. bekk, sem eru orðin einn
hópur. Fyrst að þetta verkefni tókst
með svona mörgum nemendum, sem
var vissulega áskorun fyrir okkur, þá
sjáum við að það er ýmislegt hægt að
gera. Við erum aðeins farin að hugsa
að við gerum ekki svona verkefni
af þessari stærðargráðu fyrr en eftir
þrjú ár eins og við höfum áætlað. En
kannski getum við gert minni verk-
efni á hverju ári því ef við gerum
þetta bara á þriggja ára fresti þá
kannski tapast ákveðin færni hjá þeim
sem hafa mikinn áhuga. Nú er tapp-
inn farinn úr eftir fimm ára hlé og við
getum kannski gert þetta oftar. Það
eru tækifæri miðað við hvað þessi
sýning gekk vel að skoða þessi mál
nánar og kannski endurskoða að sýna
á þriggja ári fresti en það kemur allt í
ljós síðar,“ segja þau að lokum.
Arnbjörg Stefánsdóttir skóla-
stjóri Brekkubæjarskóla segir í
færslu á Facebook að skólarnir á
Akranesi hafi sett upp glæsilegar
sýningar frá áramótum. „Þetta
er gott dæmi um flott og skap-
andi starf í skólunum okkar og
engin keppni í hver er bestur. Það
hafa einfaldlega verið fjórar flottar
sýningar á fimm mánuðum fyrir
fullu húsi sýningu eftir sýningu. Ég
gæti ekki verið stoltari af krökk-
unum mínum og fullorðna fólk-
inu sem hafa lagt allt sitt í að skapa
þessa diskóglimmergleðisprengju.
Um leið og ég óska öllum til ham-
ingju með glæsilegar sýningar
vil ég hrósa Skagamönnum fyrir
hvað þeir eru duglegir að mæta á
sýningar og styðja þannig við skap-
andi skólastarf. Ferfalt húrra fyrir
skólasamfélaginu á Akranesi!“
vaks
Diskóeyjan sló í gegn og var tekin upp til sýningar
Mynd frá síðustu sýningunni á Diskóeyjunni. Ljósm. vaks
Hafdís og Hjörvar eru þakklát fyrir viðtökurnar.