Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 40

Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 40
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202440 til systur hans sem þá bjó á Kambi í Reykhólasveit. Þar dvaldi hann í tvö til þrjú ár. „Ég fór þá í póst- ferðir frá Króksfjarðarnesi vestur að Brjánslæk,“ segir hann. „En það var reyndar bara á sumrin.“ Honum líkaði ákaflega vel að vera í sveit og hafði sem krakki farið með annarri systur sinni þegar hún fór að búa á bænum Borg í Reyk- hólasveit og líkað vel þar. - En eftir dvölina á Kambi, fórstu þá aftur á sjóinn? Spurningin setur glampa í augu Hjartar og hann svarar snaggaralega: „Nei, ég náði í konuna, hún var á næsta bæ!“ Tilsvarið setur af stað nýjan kafla í frásögninni, því þarna kynntist Hjörtur lífsförunauti sínum; Önnu Pálínu Magnúsdóttur. Búskapur og barnalán Anna var fædd á Kinnarstöðum í Reykhólahreppi, dóttir Ingi- bjargar Pálsdóttur og Magnúsar Sigurðssonar. Þau Hjörtur gift- ust í október 1953, sama dag og þau létu skíra elsta barnið sitt, Margréti Sigríði. Þau hófu búskap á Patreksfirði. Börnin þeirra urðu sjö talsins auk sonarins Magnúsar sem Anna átti fyrir og var fæddur árið 1949. Margrét Sigríður kom í heiminn 1953, Ingibjörg 1955, Halla 1956, Friðbjörn 1957, Steinunn Erla 1960, Óttar 1963 og yngst er Hrund fædd árið 1970. „Það var ekkert annað að gera en að fara aftur á sjóinn, því ég var að stofna heimili,“ segir Hjörtur. „Við vorum alveg hreint allslaus!“ Þau byrjuðu á að leigja húsnæði um sinn. „En svo keyptum við kjallaraíbúð sem kostaði 10.000 krónur,“ segir hann. „Þar vorum við í eitt eða tvö ár.“ Íbúðin var til húsa í brekkunni á móti samkomu- húsinu á Patreksfirði. Ég sló víxil Það varð fljótlega of þröngt um fjölskylduna í kjallaraíbúðinni og breytinga varð þörf. Hjörtur brosir við minninguna og segir: „Svo seldi ég kjallarann og keypti hús sem kostaði 70 þúsund.“ Var það ekki ansi hátt fjárhagslegt stökk fyrir ykkur? „Jú,“ segir hann. „Ég sló víxil fyrir sextíu þúsundum til að gera þetta mögulegt. Svo fór ég á síld um vorið til að standa undir kaupunum. Og ég borgaði helvítis víxilinn um haustið. Síðan hef ég aldrei tekið lán!“ Hjörtur hélt áfram á sjónum og var á togurunum, fiskibátum og vertíðarbátum ýmsum. „En svo keypti ég bát á móti öðrum og átti hann í ein tuttugu ár,“ segir hann. Allt gekk þetta vel hjá þeim hjónum og hann þakkar það ekki síst Önnu sem hafi farið svo vel með auk þess að vinna utan heimilis eftir því sem hægt var. „Og krakkarnir fóru að vinna um leið og þau gátu; þetta hafðist allt.“ Skúli Hjartarson Báturinn sem Hjörtur eign- aðist þarna hálfan hlut í hét Skúli Hjartarson BA 250 og var alla tíð skráður á Patreksfirði. Hann er tólf tonna súðbyrtur eik- arbátur og hafði verið smíðaður af Gísla Jóhannssyni á Bíldudal árið 1946 að beiðni Einars Guð- finnssonar útgerðarmanns í Bol- ungarvík. Ef flett er upp í báta- skrá Þjóðminjasafnsins sést að Gísli smíðaði tvo báta fyrir Einar á þessum tíma og voru þeir jafn- stórir. Ástæðan var sú að stærðin hentaði vel fyrir hafnaraðstöðuna á Bolungarvík á þessum tíma. En meðan á smíðinni stóð breytt- ust hafnaraðstæðurnar og rúm varð fyrir stærri báta. Að þessum sökum tók Einar aldrei seinni bát- inn til sín og stóð hann í ein tólf ár í smíðahúsinu hjá Gísla og var ekki sjósettur fyrr en árið 1958. Hjörtur keypti Skúla árið 1963 og meðeig- andinn var Torfi Jónsson. Þeir reru saman ásamt tveimur öðrum og komu yfirleitt heim að kvöldi þótt fyrir kæmi að þeir yrðu að sofa í bátnum. „Yfirleitt þegar við vorum á snurvoðinni, þá komum við heim á kvöldin,“ segir Hjörtur. „Við veiddum grásleppu á vorin og svo þorsk, ýsu og kola í snurvoðina. Á haustin veiddum við svo hámeri.“ Þess má geta að báturinn Skúli er ennþá til og er nú safngripur á Minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn. Seldi of snemma Eftir um tuttugu ára útgerð ákvað Hjörtur að selja hlut sinn í Skúla. „En ég seldi einum of snemma,“ segir hann. „Því ári seinna var kvótinn tekinn upp.“ Kvótakerf- inu var upprunalega komið á með lagasetningu árið 1983 sem tók gildi ári síðar. En við þessu var ekkert að gera. Á þessum tíma- punkti segist Hjörtur hafa verið orðinn frjáls eftir að hafa gert út sjálfur þetta lengi. Um það leyti vantaði ráðsmann á bæinn Fífu- staði í Arnarfirði. Þar var refabú eins og algengt var á þeim árum. Það fannst Hirti hvorki skemmti- legur né vænlegur búskapur. En hann hafði tekið starfið að sér og var þarna í tvö ár. Að því loknu keyptu þau Anna sumarbústað í Reykhólasveitinni þar sem þau áttu margar góðar stundir, en megin aðsetur þeirra var lengst af á Patreksfirði. Vályndu veðrin Aðspurður um hættur hafsins segist Hjörtur ekki beinlínis hafa lent í sjávarháska. En upp í hug- ann kemur leiðangur sem hann fór á togara á Þorláksmessu eitt árið í vitlausu veðri. „Við vorum sendir út til að leita að þýskum togara sem sökk í Víkurálnum,“ segir hann. Til skýringar má nefna að Víkur- állinn er mikill djúpáll sem gengur til suðausturs inn í grunnið undan Útvíkum og Patreksfjarðarflóa og er fengsæl veiðislóð. „Það var kol- vitlaust veður og við fundum hann ekki,“ segir Hjörtur. „Svo held ég að það hafi síðar rekið úr honum björgunarbátur á Rauðasandi. En togarinn hafði horfið.“ – Hann minnist einnig annars róðrar, þar sem veðrið var svo slæmt að ekki var hægt að komast úr lúkarnum aftur í skipið til að borða. „Við urðum bara að bíða og að lokum var kominn sólarhringur,“ segir hann. „Það var andæft upp í vindinn og mikill veltingur allan tímann.“ Heimahöfn í Grundarfirði Þegar aldurinn tók að færast yfir var orðið erfiðara fyrir Önnu og Hjört að búa ein á Patreks- firði. „Svo var það í desember eitt árið að tvær stelpurnar okkar komu á flutningabíl og fluttu okkur til Grundarfjarðar þar sem við fengum inni í þjónustu- íbúðum fyrir aldraða og seinna eftir að Anna lést flutti ég á Fella- skjól,“ segir Hjörtur. „Þær bjuggu í Grundarfirði á þessum tíma dætur mínar og þótt þær séu fluttar héðan í dag er hér yndisleg dótturdóttir okkar, Elín Hróðný Ottósdóttir. Mér fannst mjög gott að koma í Grundarfjörð, hér er bjart og fallegt. Ég kom til dæmis hingað eitt sinn beint frá Portú- gal eftir mánaðardvöl og þegar ég kom á hæðina við bæinn varð ég alveg heillaður. Hér var allt í blóma og bærinn kúrði svo fallega undir fjöllunum. Það er líka alltaf gott að koma heim.“ – Anna lést árið 2016 og Hjörtur saknar konu sinnar sem von er. „En þetta var bara búið,“ segir hann. „Hún var búin að vera veik og maður veit ekki hvað hefði orðið.“ Hann segir þetta af sama æðruleysinu og einkennt hefur allt viðtalið. Í lok heimsóknar fylgir hann blaðamanni til dyra og bendir á myndarlega rafskutlu við úti- dyrnar. „Á þessu fer ég um allt,“ segir hann brosandi og bætir við: „Ég er yfirleitt glaðlyndur. Það þýðir ekkert annað!“ gj/ Ljósm. gj og úr einkasafni. Fullur poki hífður. Sunlight soap átti sinn þátt í íslenskri útgerðarsögu. Patrekshöfn vorið 2023. Ljósm. Rebekka Hilmarsdóttir. Grundarfjörður á fallegum degi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.