Skessuhorn - 29.05.2024, Page 48

Skessuhorn - 29.05.2024, Page 48
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202448 Böðvar Haukdal Jónsson vélstjóri hefur reynt margt um ævina og er ekkert lát á þótt Böddi, eins og hann er gjarnan kallaður, sé kom- inn yfir sjötíu árin. Hann slær ekki af heldur þvert á móti gefur bara í og rekur nú fyrirtæki sem tengist varmadælum. Fréttaritari Skessuhorns settist niður með Bödda á stóru og snyrtilegu heim- ili hans og eiginkonunnar, Sigrúnar Fjólu Sigþórsdóttur, á Hellissandi. Þau kynntust ung að árum. Hann segir okkur undan og ofan af starfs- ferli sínum yfir rjúkandi kaffibolla. Á sjó þrettán ára Böðvar er fæddur á Skagaströnd árið 1953 og byrjaði á sjó 13 ára á hálfum hlut á Stíganda HU. Síðan var það sjómennska á sumrin. „Þegar skóla lauk réri ég á Guð- jóni Árnasyni HU og Arnari HU. Þar byrjaði ég sem annar vélstjóri 15 ára gamall, en ég hafði byrjað að vinna við vélar hjá pabba sem var vélstjóri í frystihúsinu og hafði alist þar upp í kringum vélar. Frystivélarnar voru keyrðar með díselvélum. Þegar ég var 16 ára réði ég mig á bát á Rifi og átti að fara að beita sem ég og gerði, en ég hafði aldrei beitt á ævinni og þekkti ekki handtökin,“ segir Böddi þegar hann rifjar upp sín fyrstu skref við beitningu. „Ég hafði það af að beita einn bala og hann fór aftur í land, en ég fór til sjós. Fór á Svan SH og var þar um borð í smá tíma á línu. Þegar ég var 17 ára var ég vélstjóri og var viðloð- andi þar í smá tíma en síðan flutti ég til Reykjavíkur og fór að vinna í álverinu í Straumsvík í smá tíma. Það var eiginlega um það leyti sem verksmiðjan var að fara í gang.“ Seldi bátinn rétt fyrir kvótasetningu Eftir veruna í Straumsvík fór Böddi aftur vestur. „Þá fór ég sem vélstjóri á Svan SH og fer síðan á Hamrasvan SH sem var gerður út frá Rifi. Það æxlaðist þannig til að við Baldur Kristinsson tókum við bátnum vegna veikinda skipstjór- ans og vélstjórinn fór í land. Við tókum við aðeins 22 ára gamlir og þótti það svolítið sérstakt að láta okkur strákana taka við bátnum svona ungum,“ segir Böddi og brosir. „En við Baldur áttum síðan langt og gott samstarf. Það var svo árið 1978 sem ég fer í Vél- skólann í Vestmannaeyjum því ég fékk ekki lengur undanþágu sem vélstjóri og var ég þar tvo vetur; árin 1978 og ´79. Þegar að námi loknu fer ég aftur á Rif og réði mig á Rifsnes SH þegar Baldur og Hraðfrystihús Hellissands keyptu það og þá urðum ég og Baldur saman aftur og áttum mjög skemmtilegan tíma. Stundum voru bátar bara gerðir út á vetrarvertíðina og þeim síðan lagt yfir sumartímann eins og reyndar er gert enn í dag. Þá var maður í hinum og þessum störfum á sumrin. En svo ég haldi mig við sjómennskuna, þá keypti ég mér bát sem hét Sif ÍS. Þetta var 15 tonna bátur smíðaður á Skaga- strönd og gerði ég hann út í tvö ár. Ég hætti með Sif sirka tveimur mánuðum áður en kvótinn var settur á. Ef ég hefði átt bátinn áfram hefði ég fengið 64 tonna kvóta á hann. En það var að vísu bara lukkuspor; þá gerði maður ekki neina vitleysu. Þá var það þannig að þessir bátar höfðu enga aðstöðu í landi og var það vanda- mál. Ég var á línu og handfærum á þessum tíma og beitt var í landi og var mikið aðstöðuleysi að hrjá okkur. Annað en er í dag.“ Í vörubílabransann „En sem betur fer kannski seldi ég bátinn í stað þess að verða trillu- karl alla ævi. Það hefði ekki verið neitt líf til lengdar,“ segir Böddi. Eftir söluna á bátnum fór hann í vörubílabransann; m.a. í snjó- mokstur og fleira og var með tvo trailera með snjótönn og sá um snjóruðning á Fróðárheiði. „Svo þegar kom dauður tími fór ég þá í vikurævintýrið sem hér var. Eftir það fór ég til Reykjavíkur en stopp- aði þar í stuttan tíma. Fór þaðan til Noregs og ætlaði að vera þar í eitt ár en þetta eina ár varð að fjórtán árum eða svo og var ég þar í vöruflutningum og við að keyra rútur um alla Evrópu. Það þótti mér bara skemmtilegt og endaði ég svo alltaf á að vinna á verkstæði við við- gerðir á rútum eða flutningabílum. Mér þótti vinnan á flutningabílum mjög skemmtileg nema að því leyti að ég var aldrei heima. Í gegnum þessa vinnu komst maður inn í verksmiðjur og sá meðal annars hvernig þvottavélar voru búnar til og fleiri iðnaðarvörur og hafði ég mjög mikið út úr því að sjá alls- konar hluti framleidda.“ Allslaus eftir bruna Böddi segir að þrátt fyrir veruna í Noregi hafi hann alltaf fylgst með sjónum. Hafði hann aðgengi að blöðum og öðru sem tengdist sjó- mennsku og aflabrögðum heima á Íslandi. „Við hjónin lentum síðan í óhappi að þar brann af okkur húsið í Noregi og við misstum allt sem við áttum. En við vorum heppin því að konan mín, sem þá var að keyra strætó, var með veskið sitt í strætó þegar brann og í því voru skilríkin hennar, en allt mitt brann með húsinu. Ég gat keypt síma vegna þess að konan hafði skilríki en ég fékk hins vegar ekki símanúmer skráð á mig þar sem ég var ekki með neina pappíra og gat ekki sýnt fram á hver ég var. Þótt hennar símanúmer væri skráð á mig var það ekki nóg; ég var því gjörsam- lega allslaus í þessum aðstæðum, hringdi í Sendiráð Íslands en þeir gátu ekkert hjálpað mér með eina eða neina pappíra. Þetta var eiginlega stórmál en end- aði með því að afgreiðslukona í verslun sem kannaðist við okkur sá aumur á mér og gat látið mig hafa símanúmer. En eftir þetta óhapp var ekkert annað að gera en að byrja upp á nýtt og fórum við þá til Norður-Noregs. Ég fór að Á fjölbreyttan starfsferil að baki og er hvergi nærri hættur Rætt við Böðvar Haukdal Jónsson á Hellissandi Böðvar við rennibekkinn sem hann er nýbúinn að fjárfesta í. Böðvar var heiðraður á sjómannadeginum á Hellissandi á síðasta ári og er hann hér með konu sinni, Sigrúnu Fjólu Sigþórsdóttur. Böðvar með Baldri Kristinssyni en þeir voru saman til sjós til fjölda ára. Á landganginum á Rifsnesi SH á leið til sjós. Böðvari er margt til lista lagt. Hér er hann að setja upp kælikerfi uppi á þaki fiskverkunarhúss.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.