Skessuhorn - 29.05.2024, Síða 52

Skessuhorn - 29.05.2024, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202452 Alfons Finnsson er færeysk ættaður Ólsari, sjóari og ljósmyndari. Alla tíð hefur hann verið viðloðandi sjó, byrjaði tíu ára að beita í landi en var fjórtán eða fimmtán ára þegar hann var fyrst munstraður um borð í bát. Áhuga fyrir ljósmyndun fékk hann í æsku. Foreldrar hans, Finnur og Svava, voru bæði dugleg að munda myndavélarnar og ungur fékk hann bakteríuna frá þeim. Alfons hefur verið fréttaritari Morgunblaðsins og Skessuhorns í áratugi og skipta myndir hans í safni hundruðum þúsunda. Myndir sem geyma mannlíf og atvinnulíf í sjávar- plássinu í hálfa öld. Fonsi er nú á strandveiðum á báti sínum Svövu SH auk þess að stunda fréttaskrif og ljósmyndun fyrir Skessuhorn. Hann var beðinn að tína til, nán- ast af handahófi, nokkrar myndir frá liðinni vertíð og frá fyrri árum. mm Lífið til sjós í gegnum linsu Alfons Finnssonar Það er ekki alltaf rjómablíða á sjónum og oft veður vond, eins og sést á þessari mynd sem var tekin af dragnótarbátnum Agli SH þegar hann var að koma úr róðri. Ásgeir Finnsson á strandveiðum á Frosta SH á síðasta ári. Víðir Haraldsson hefur nóg fyrir stafni allt árið en hann er vélstjóri á línubátnum Lilju SH frá Rifi. Á sumrin rær hann á strandveiðibáti sínum Mugg SH og auk þess er hann að sinna kafarastörfum þegar hann er í landi. Hér er hann að fara að skera úr skrúfu netabátsins Brynjólfs VE. Í netaróðri á Kristborgu SH árið 2012. Eins og sjá má eru netin kjaft- full af fiski og þurfti skipskranann til þess að ná netunum inn fyrir. Hjörtur Sigurðsson skipstjóri á línubátnum Kviku SH landar hér góðum afla í byrjun árs. Höfnin í Ólafsvík var ísi lögð í byrjun mars 2023, þannig að erfitt var fyrir smærri báta að athafna sig og komast að bryggju. Áhöfnin á dragnótarbátnum Matthíasi SH að koma að landi og er klár með spottana. Löndun úr netabátnum Bárði SH. Svavar Kristmundsson á Júlla Páls SH landar hér makríl árið 2019, en lítil sem engin veiði hefur verið á makríl síðan. Sjómenn og löndunarmenn láta ekki slæm veður og snjó stoppa sig við vinnu. Hér er verið að landa úr línubátnum Signýju HU. Magnús Emanúelsson er annáluð aflakló. Hér er hann að landa góðum afla úr Rán SH í vetur. Sigurjón Eðvarðsson er jafnan kátur og hress eins og má sjá á þessari mynd þar sem hann er að koma úr handfæra róðri.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.