Skessuhorn - 29.05.2024, Síða 56

Skessuhorn - 29.05.2024, Síða 56
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202456 Vopnfirðingurinn Árni Björn Einarsson hefur mest af starfsæv- inni verið sjálfstætt starfandi og líkar það vel. Hann er vélstjóri að mennt, hefur þvælst víða og fékk trilluveikina ungur að árum. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Árna á dögunum til að forvitnast aðeins meira um hann og hans lífs- hlaup til þessa. Árni fæddist á Siglufirði árið 1975 og bjó þar fyrstu sex árin en fluttist svo til Vopnafjarðar þar sem hann ólst upp til rúm- lega tvítugs. Pabbi hans var trillu- karl og Árni byrjaði á sjónum með honum þegar hann var á grunn- skólaaldri. Einar átti nokkra báta en sá sem Árni var mest með honum á hét Nói en hann var fimm tonna bátur sem Einar átti í nokkur ár. Árni segir að þarna hafi hann fengið trilluveikina sem hefur fylgt honum síðan. „Þetta var löngu fyrir tíma strandveið- anna eða í kringum 1990 og þá var það grásleppa og svo bara skak. Menn höfðu miklu frjálsari hendur í þá daga heldur en í dag, það þurfti ekki einu sinni réttindi til að fara á sjó á svona bát þá nema það eina var að maður lofaði að koma heim aftur.“ Þarna hefurðu fengið fyrsta nasaþefinn af sjómennskunni? „Já, þarna byrjaði þetta. Maður var stundum að fá frí í skólanum til að fara einn og einn gráslepputúr og ég hafði bara strax bullandi áhuga á þessu. Ég kláraði grunnskólann og ákvað síðan að taka mér eitt ár í frí áður en ég færi í framhalds- skóla sem urðu svo ansi mörg ár. Síðan var ég að vinna í vélsmiðj- unni á Blönduósi og þar tók ég þá ákvörðun að læra vélstjórn. Svo var ég vélstjóri víða, meðal annars var ég eitt ár í Noregi að vinna fyrir Ístak í hafnarframkvæmdum í Lófóten. Þar tók ég tólf metra skipstjórnarréttindi og var til dæmis á skipunum Ástu og Sögu og vann á dýpkunarprömmum hjá Ístaki. Maður var einn mánuð úti að vinna og svo kom maður í einn mánuð heim.“ Reynslan kennir manni margt Árni keypti sér bát árið 2012 sem heitir Hjördís SH-36 enda alltaf blundað í Árna þessi bátadella. „Ég hafði verið með öðrum á grásleppu og strandveiðum árin 2010 og 2011 og svo ákvað ég að kaupa mér sams konar bát í kjöl- farið. Ég hef verið í alls konar hliðarverkefnum líka, ég er frekar fjölhæfur og get gert ýmislegt. Ég var sex til sjö ár í vélsmiðj- unni og þar sem þetta var úti á landi, fáir starfsmenn og enginn sérhæfður í neinu, að þá þurftu eiginlega allir að geta gert allt. Þegar maður lærir vélstjórn þá lærir maður svo mikið um vélar og þess háttar og reynslan kennir manni margt. Eins og að vera í trilluútgerð því það er ekki nóg að kunna að fara út á sjó og veiða fisk. Maður þarf að geta bjargað sér líka, bæði í viðgerðum og í breytingum,“ segir Árni. Eins og áður kom fram hefur Árni mest af starfsævinni verið sjálfstætt starfandi og prófað ýmislegt. „Við pabbi stofnuðum fiskmarkað á Vopnafirði og rákum hann saman í mörg ár. Ég rak sjoppu í Reykjavík í töluverðan tíma sem hét Toppurinn og var í Síðumúla. Ég tók meiraprófið um aldamótin og hef gripið í það að keyra í hinu og þessu. Ég hef verið á „trailerum“ og malarflutninga- bílum, svo á stærri bílum eins og Búkollum sem eru mikið að flytja grjót og svoleiðis en mest verið í efnisflutningum.“ Má ekki segja að það sé smá flökkueðli í þér? „Jú, það verður að segjast eins og er að ég hef þvælst víða um ævina en svona er ég bara. Ég og konan mín, Kristjana Halldórsdóttir, eigum húsbíl og við ferðumst mikið á honum á sumrin. Árni er einn á strandveiðunum en á grásleppunni á vorin er hann ýmist með einn eða tvo með sér. „Þegar ég hef verið á línu þá hef ég verið með einn með mér á bátnum og svo með einn til tvo að beita. Það gekk ekki vel hjá mér í vor á grásleppunni því það var svo mik- ill þorskur. Við þurftum bara að hætta veiðum út af honum eftir aðeins 20 daga vertíð. Þú mátt ekki henda þorskinum og þú getur ekki hirt hann endalaust því það er svo dýrt að kaupa kvótann.“ Hjördís dregin í land Árið 2017 var Árni við veiðar á Hjördísi á Flákanum í Breiða- firði og voru þeir komnir með tíu tonn af fiski sem var of mikið fyrir þennan bát. Árni tilkynnti til Vakt- stöðvar siglinga að báturinn væri kominn með bakborðshalla og sjór væri farinn að koma inn á þilfarið. Þetta atvik situr ennþá í Árna. „Það kom slagsíða á bátinn og þetta leit ekki vel út á tímabili. Ég kallaði út björgunarsveit og kom björgunar- skipið Björg frá Rifi til okkar ásamt björgunarsveit. Við lögðum af stað í land og mættum þeim á miðri leið. Við fórum yfir í björgunar- skipið og það dró Hjördísi í land en þá vorum við búnir að létta bát- inn um eitt tonn og það var vigtað upp úr honum 8,7 tonn. Á leiðinni fór björgunarsveitin um borð og lagaði dæmið þannig að þeir tóku fiskinn frá lensportinu þannig að sjórinn komst út aftur. Báturinn var dreginn inn á Rif og við lönduðum þar. Það gerðist ekkert alvarlegt, það fór ekki sjór niður í vél eða neitt svoleiðis. Það var varúðar- ráðstöfun að nota neyðar hnappinn í talstöðinni og það var töluverð umræða um þetta óhapp á sínum tíma, vegna þess að Gæslan kallaði á nærliggjandi báta og það var bara einn bátur sem hlustaði á neyðar- rásina.“ Gleymdu símunum um borð Árni heldur áfram: „Svo var það hitt að einhver úr björgunarsveitinni tók fullt af myndum og sendi það á nokkra fjölmiðla. Þegar við förum yfir í björgunarskipið þá gleymdum við í flýtinum að taka símana okkar með okkur og svo þegar fjölskyldan sá fréttina birtast þá byrja þau að hringja í okkur. Við gátum auðvitað ekki svarað og þau fóru að ímynda sér það versta. Þetta var heilmikið mál, upplýsingafulltrúi Lands- bjargar hringdi í mig og vildi fá að vita um þetta mál og ég átti langt spjall við hann. Hann sagðist ætla að taka þetta fyrir á fundi því ég sagði náttúrulega við hann að þetta gengi ekki svona að viðbragðsaðilar væru að segja frá svona hlutum þegar þeir væru að gerast. Nafnið á bátnum sást alveg og einmitt út af þessu þá þýðir það einfaldlega að maður veigrar sig við að hafa samband við björgunarsveitina til að sleppa við svona umfjöllun. Ég sagði einmitt við hann að ef lög- regla og slökkvilið á slysstað væru allir í þessu þá væri það ekki gott mál. Hann hringdi svo nokkrum dögum síðar í mig og sagði að þetta hefði verið tekið fyrir á fundi og þeir vildu alls ekki að þetta væri þróunin. Þessi maður sem tók myndirnar var tekinn af útkallslista öðrum til varnaðar. Auðvitað eru allir með síma og margir með sím- ann á lofti en það er varhugavert að vera að birta svona frétt strax, áður en næst í nánustu aðstandendur.“ Margar hendur sem koma að þessu Þessa dagana er Árni á strand- veiðum og rær út frá Ólafsvík. Þegar blaðamaður hringdi í hann var snarvitlaust veður og bræla en daginn áður hafði hann fengið 700 kíló. „Það er búið að vera erfitt síð- ustu daga að fá fiskinn í Breiða- firðinum en þetta byrjaði mjög vel. Ég held að strandveiðarnar í ár verði bara út júní, kannski nokkrir dagar í júlí ef ekkert verður gert. Mér finnst pínulítið gleym- ast í umræðunni að þetta eru um 700 bátar sem eru á strand- veiðum en við erum einnig að tala um alla þjónustuna í kringum þetta. Fiskmarkaðina, flutninginn, höfnina, vélsmiðjurnar, olíuna, fisk- vinnsluna og allan gjaldeyrinn. Það eru svo margar hendur sem koma að þessu, þetta hefur gríðarleg áhrif á svo margt og fiskvinnslan hrósar happi að geta keypt fiskinn af okkur. Þeir verða fyrir miklum tekjumissi af því að við erum stoppaðir af svo snemma og einnig hvað varðar samninga erlendis. Þeir eru kannski búnir að semja við einhverja kaup- endur um að útvega þeim fisk og svo klikkar það og þá leitar kaup- andinn annað því það þarf að vera afhendingar öryggi líka.“ Slóðadragarinn auðveldar störfin um borð Árni segir að hann landi á besta fiskmarkaðinum á öllu landinu, Fiskmarkaði Snæfellsbæjar. „Það er langtum besti markaðurinn á land- inu og ég hef komið á þá flesta. Ég hef róið í Sandgerði, Akra- nesi, Arnarstapa, Patreksfirði, Bol- ungarvík, Skagaströnd, Raufarhöfn, Vopnafirði og Bakkafirði. Hérna í Ólafsvík er rosa fínt að vera því Fékk trilluveikina ungur að árum Rætt við Árna Björn sem víða hefur komið við – og alltaf togar sjórinn Árni með tvær vænar grásleppur. Ljósm. af Hjördís SH-36 á leið í land. Ljósm. af Hér varð skemmtiferðaskip á vegi Árna. Árni að störfum um borð í maí á þessu ári.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.