Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 58
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202458
Fjórtán rafvirkjar ljúka námi frá FVA
Pennagrein
Í ágúst 2023 voru mættir rúm-
lega 70 nemendur við rafiðn-
aðardeildina í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi. Öll þrjú
árin í rafvirkjun eru kennd við
deildina og má segja að jafndreifing
hafi verið á milli áranna.
Fimm rafiðnaðarkennarar
kenndu sl. vetur en þeir eru í staf-
rófsröð: Davíð Reynir Stein-
grímsson, Guðmundur Þór Þor-
steinsson, Sævar Berg Sigurðsson,
Trausti Gylfason (deildarstjóri) og
Viktor Ýmir Elísson. Allir hafa þeir
kennsluréttindi eða eru að ljúka
réttindanámi.
Kennt er eftir námskrá mennta-
málaráðuneytisins eins og lög gera
ráð fyrir. Á haustönn voru kenndar
1., 3., 5. og 7. önn í rafvirkjun en
það var í síðasta sinn sem raf-
virkjun er kennd á sjö önnum við
FVA. Námskrá hefur verið breytt,
námsgreinar sameinaðar, bætt við
í áfanga þannig að rafvirkjunar-
námið komist fyrir á þremur árum,
sex önnum. Segja má að þetta hafi
verið tvíþætt verkefni, að stytta
námið en einnig var vandkvæðum
bundið að manna kennslu sjöundu
önnina þar sem erfitt er að finna
rafiðnaðarkenna til að stökkva inn í
eina önn til að klára þetta. Á vorönn
voru kenndar 2., 4. og 6. önn.
Reynt er að brjóta upp eins og
kostur er hina hefðbundnu kennslu,
t.d. með heimsóknum til nemenda
úr atvinnulífinu og eins fara eldri
nemendur í vettvangsferðir í fyrir-
tækin í nágrenninu. Rafmennt, sem
er í eigu Rafiðnaðarsambands-
ins gefur alltaf nýnemum í grunn-
deildinni vinnubuxur sem nýtast
vel í verklegum áföngum og eins í
vinnunni þegar lengra er komið.
Heimsókn frá Mann-
virkjastofnun er árleg en þá kemur
aðili frá þeim og ræðir við nem-
endur fjórðu annar um reglu-
gerðir tengdar rafiðnaði. Eins eru
öryggismál rafiðnaðarmanna tengd
við reglugerðirnar en Pétur Svan-
bergsson hefur komið og kennt
nemendum ýmislegt er tengist
fallvörnum á vinnustöðum.
Á haustönn var farið með 5. og
7. önn í vettvangsferð í álverið
í Straumsvík og eins var ferðin
nýtt til að líta einnig á tengivirki
Landsnets að Geithálsi. Í báðum
þessum fyrirtækjum var afskaplega
vel tekið á móti nemendum og
þeir fræddir um fyrirtækin. Til-
gangur ferðar í þessi tvö fyrirtæki
var að kynnast dreifingu háspennu
frá virkjunum og eins stórnotenda
í áliðnaðinum.
Á vorönn fóru nemendur í heim-
sókn til RARIK í Borgarnesi. Eins
og áður þá var tekið vel á móti
nemendum, þeim skipt upp í hópa
en starfsmenn RARIK höfðu stillt
upp búnaði fyrir bæði háspennu og
lágspennu sem nemendur fengu að
kynna sér og skilja virkni búnaðar-
ins. Sérstök ánægja var meðal nem-
enda með þessa heimsókn og ekki
sakar að nefna og þakka gestrisni
RARIK.
Á vorönn fóru tveir kennarar
rafiðnaðardeildarinnar í heim-
sókn til verknámsskólans BBS II í
Gifhorn, EuropaShoule sem stað-
settur er í Neðra-Saxlandi í Þýska-
landi. Tilgangur ferðarinnar var að
koma á tengslum við góðan verk-
námsskóla erlendis fyrir áfram-
haldandi þróun rafiðnaðardeildar
FVA, nemendum, kennurum og
stofnuninni til góðs. Þróun er ein af
lífsnauðsynlegum þáttum deildar-
innar til að gera nemendur hæfari
í síbreytilegu umhverfi atvinnu-
lífsins. Yfirskrift ferðarinnar var
endurnýjanleg orka. Má segja að
þarna hafi verið opnaður kanall
fyrir frekara samstarfs og nemenda-
skipti.
Útskriftarnemar í rafvirkjun
þann 24. maí 2024 eru 14 talsins.
Ungmenni sem leita sér náms hjá
rafiðnaðardeild FVA verða mikil-
vægur hluti af framtíð íslensku
þjóðarinnar.
Gjört á Akranesi 23. maí 2024,
Trausti Gylfason
Nafn: Jón Theodór Jónsson
Fjölskylduhagir/búseta: Ég er
kvæntur Guðlaugu Jónsdóttur
og við búum á Hvanneyri ásamt
börnum okkar, þeim Sigrúnu
Öldu 11 ára, Elínu Hörpu 9 ára
og Aroni Huga 5 ára. Við erum að
auki með tvo hunda, Haffa sem
er Saint Bernard og Mána sem er
blanda af allskonar.
Starfsheiti/fyrirtæki:
Framkvæmdastjóri og yfirþjálfari
hjá knattspyrnudeild Skallagríms.
Áhugamál: Ætli það séu ekki
helst íþróttir og þá sérstaklega
fótbolti og körfubolti.
Dagurinn: Föstudagurinn 19. maí
2024.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan 7:12
og fyrsta mál á dagskrá var að
koma öllum gríslingum á fætur
og gera börnin klár fyrir skóla
og leikskóla. Viðurkenni að ég er
í aukahlutverki þegar kemur að
morgunverkunum en ég reyni að
aðstoða Guðlaugu eins og ég get.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég fæ mér alltaf sama morgun-
matinn. Vatn, hafrar, tvö egg og
banana í blandara. Fínasta næring
og tekur ekki langan tíma.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Skrifstofan mín er í
Borgarnesi og Sigrún Alda eldri
dóttir mín gengur í grunnskólann
þar. Við lögðum af stað á slaginu
átta og ég var mættur á skrifstof-
una klukkan 8:22.
Fyrstu verk í vinnunni?
Opna tölvuna og svara öllum
skilaboðum og póstum frá kvöld-
inu áður. Ég fæ mér svo alltaf
einn Nocco þegar ég mæti á skrif-
stofuna og fer yfir stóru málin
með Summa og Davíð, íþrótta-
kennurum.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Klukkan 10 flesta daga þá
hreyfi ég mig alltaf eitthvað. Oft-
ast fer ég í tækjasalinn í íþrótta-
miðstöðinni en undanfarið
höfum við verið dugleg að nota
íþróttasalinn eftir að skóla-
íþróttirnar fóru út. Í dag var spil-
aður tvíliðaleikur í blaki, svekkj-
andi tap en frábær hreyfing.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Ég fer alltaf á Landnámssetrið í
hádeginu. Hlaðborðið þar er bæði
hollt og gott. Mæli með fyrir öll!
Hvað varstu að gera klukkan
14? Klára að undirbúa æfingar
dagsins og svo haldið út á gras þar
sem strákar og stelpum á öllum
aldri mættu á æfingar. Töluverður
vindur úti á velli og helvíti kalt!
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Síð-
asta æfingin klárast klukkan 18.
Eftir hana þá tekur við frágangur,
að safna saman öllum æfingabún-
aði og ganga yfir svæðið í leit að
boltum sem geta leynst hvar sem
er. Hér byrja skrefin vægast sagt
að dælast inn á úrið.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Bara
stokkið í Nettó og brunað svo
heim.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Á föstudögum er oft-
ast heimagerð pizza. Aldrei þessu
vant þá eldaði Guðlaug konan
mín matinn og var pizzan bara
nokkuð góð hjá henni. Elstu
dóttur minni finnst pizza mjög
vond en við hin látum hana ekki
skemma partýið fyrir okkur. Skyr
á hana og pizza fyrir okkur.
Hvernig var kvöldið? Eftir mat-
inn þá fór fjölskyldan út í fótbolta.
Við reynum að gera það nokkrum
sinnum í viku og spilum alltaf
strákar á móti stelpum. Við Aron
vinnum þetta yfirleitt og á því var
engin breyting í kvöld. Eftir bolt-
ann fóru allir í sitt horn á heim-
ilinu en við Guðlaug horfðum
saman á sjónvarpið. Ég fer yfirleitt
síðastur að sofa og eftir að allir
eru sofnaðir þá er gott að kúpla
sig út úr öllum þessum fót-
bolta sem er ríkjandi í mínu lífi
og hætta að vera fótboltaþjálf-
ari í smástund. Þá spila ég mikið
tölvuleikinn Football Manager
þar sem ég leik.. fótboltaþjálfara!
Hvenær fórstu að sofa? Klukkan
23:30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Bursta tennur, hleypa
hundunum út að pissa og fara
með bæn. „Góði Guð, viltu láta
Liverpool ganga illa um helgina.“
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Blakið stóð klárlega upp
úr og þá sérstaklega þegar liðsfé-
lagi minn, Eiður Sigurðsson, las
yfir mér eftir eitthvað klúðrið hjá
mér. „Fókus!“
Eitthvað að lokum? Við tölum
oft um hve lífið var gott hér áður
fyrr, þegar við vorum krakkar. Þá
var leikið sér úti allan daginn og
ekki hangið inni fyrir framan skjá.
Ef lífið var svona gott og þetta eru
okkar bestu minningar, þá skulum
við gefa börnum í dag sömu æsku.
Leikum við krakkana, kennum
þeim leikina sem við ólumst upp
við. Sýnum þeim athygli, bjóðum
öllum að vera með og njótum þess
að vera saman. Ekki segja, farðu
út og leiktu þér, segjum eigum við
að koma út og gera eitthvað. Lífið
á að vera skemmtilegt og það á að
vera gaman að vera til.
hig
Dagur í lífi...
Framkvæmdastjóra og þjálfara
Úr kennslustund í FVA. Í heimsókn hjá Landsneti.