Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 62
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 202462
Rósa Björk Bjarnadóttir
„Halla Tómasdóttir.“
Hjördís Dögg Grímarsdóttir
„Halla Hrund Logadóttir.“
Valgarður Lyngdal Jónsson
„Baldur Þórhallsson.“
Íris Aðalsteindóttir
„Katrín Jakobsdóttir.“
Berta Ellertsdóttir
„Katrín Jakobsdóttir.“
Hver heldur þú að verði
næsti forseti Íslands?
Spurt í Grundaskóla
á Akranesi
Spurning
vikunnar
Víkingur Ólafsvík og Selfoss mætt-
ust í fjórðu umferð 2. deildar karla
í knattspyrnu á mánudagskvöldið
og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli.
Leikurinn átti að vera á laugar-
daginn en var frestað vegna þess að
hávaðarok var í Ólafsvík og aðstæður
ekki alveg til þess fallnar að sparka í
tuðru. Fyrir leik voru bæði lið taplaus
í deildinni og ljóst að með sigri gátu
heimamenn náð toppsætinu.
Luis Alberto Ocerin kom Víkingi
yfir á 17. mínútu og var það eina
markið í fyrri hálfleik. Jón Vignir
Pétursson jafnaði metin fyrir
gestina með marki úr vítaspyrnu á
54. mínútu og hann var síðan aftur
á ferðinni fjórum mínútum síðar,
staðan 1-2 fyrir Selfossi. Þegar allt
leit út fyrir að Selfyssingar færu
með sigur af hólmi kom Björn Axel
Guðjónsson Víkingi til bjargar
þegar hann skoraði jöfnunarmarkið
tveimur mínútum fyrir leikslok við
mikinn fögnuð heimamanna. Loka-
tölur í Ólafsvík, 2-2, og staða efstu
liða breyttist lítið við þessi úrslit.
Selfoss er í efsta sætinu með tíu
stig, í 2.-4. sæti eru Víkingur, Ægir og
Haukar með átta stig, KFA er í 5. sæti
með sjö stig og Völsungur í 6. sæti
með sex stig. Í 10.-11. sæti eru KFG
og Reynir Sandgerði með þrjú stig
og neðst er KF án stiga. Næsti leikur
Víkings er á móti Reyni S. á Brons
vellinum í Sandgerði næsta föstudag
og hefst hann klukkan 19.15.
vaks
Um síðustu helgi var Íslandsmót í
hópfimleikum og stökkfimi haldið
á Seltjarnarnesi undir stjórn Fim-
leikadeildar Gróttu. FIMÍA átti
stóran hóp keppenda, alls átta
lið. Keppt var í gólf æfingum,
dýnustökki og á trampólíni en
gólfæfingar þurfa að innihalda
níu erfiðleikastig; fjögur jafn-
vægi, þrjú hopp og tvö heljarstökk;
dýnustökk en þar verða keppendur
að framkvæma að minnsta kosti
þrjár samtengdar æfingar inn á
stökkbrautinni. Á trampólíni þarf
ein umferð að vera yfir hest, ein án
hests og ein umferð má vera annað
hvort yfir hest eða án.
ÍA komst inn í efstu deild fyrir
fimm árum síðan en aðeins fimm
félög eiga lið í efstu deild og sýnir
það hversu gríðarlega öflug upp-
bygging hefur átt sér stað á Akra-
nesi á liðnum árum. Lið ÍA missti
þrjár lykilkonur í meiðsli rétt fyrir
Íslandsmót og endaði liðið í fjórða
sæti. Á laugardeginum var keppni
í 3. flokki en liðið sendi þrjú lið
til leiks sem höfnuðu í 2., 4. og 7.
sæti í sinni deild. Á sunnudaginn
var keppni í 2. flokki en stelpurnar
náðu 5. sæti, einungis fjórum
stigum frá 1. sæti.
Mótinu lauk með keppni í stökk-
fimi eldri en þar átti ÍA lið í hverri
deild. Drengjalið ÍA varð Íslands-
meistari í karlaflokki en blandað
lið úr meistaraflokki landaði einnig
Íslandsmeistaratitli eftir jafna
og skemmtilega keppni. Nú er
keppnis tímabilinu í hópfimleikum
lokið en framundan er vorsýning
Fimleikafélags ÍA sem verður
laugardaginn 8. júní.
hig/ Ljósm. Eyrún Reynisdóttir
Leiknir voru þrír leikir í 4. deild
karla í knattspyrnu á mánudaginn.
Í Hveragerði tóku heimamenn
í Hamri á móti Skallagrími en
Borgnesingar náðu í sterkan heima-
sigur gegn KFS síðastliðinn þriðju-
dag, 2-1. Lið Hamars náði jafn-
tefli á heimavelli í síðustu umferð
og var því búist við jöfnum leik.
Annað kom þó á daginn. Vafalaust
hafði áhrif að alls vantaði átta í leik-
mannahóp Skallagríms en mikill
fjöldi þeirra er nú í útskriftarferða-
lögum, víða um heim.
Hamarsmenn komust yfir strax á
18. mínútu leiksins með marki Torfa
Más Markússonar og Guido Rancez
bætti við öðru marki fyrir Hamar
á 29. mínútu. Staðan því 2-0 eftir
hálftíma leik og töluverð brekka
framundan fyrir lið Skallagríms.
Alejandro Gomez minnkaði muninn
fyrir Skallagrím í uppbótartíma og
staðan því 2-1 í hálfleik.
Í byrjun seinni hálfleiks gerðu
svo Hamarsmenn út um leik-
inn en Torfi Már Markússon
kom stöðunni í 3-1 á 51. mínútu
og Brynjar Óðinn Atlason kom
Hamri í 4-1 á 64. mínútu. Inn í
lið Skallagríms mættu tvö þekkt
nöfn og komu þeir inn á í lok
leiks. Sölvi Gylfason og Björgvin
Hafþór Ríkharðsson svöruðu
kalli félagsins og reyndu sitt til að
hjálpa liðinu. Fyrrnefndur Torfi
Már setti slaufu á leik sinn með
sínu þriðja marki í uppbótartíma
og úrslitin því 5-1 sigur Ham-
ars. Skallagrímur er því með þrjú
stig eftir þrjár umferðir á meðan
Hamar er með 10 stig eftir fjórar
umferðir.
Næsti leikur Skallagríms er í
Borgarnesi næstkomandi föstu-
dag en þá tekur liðið á móti KH og
hefst leikurinn klukkan 19.15.
hig
Björn Axel bjargvættur Ólsara
Björn Axel bjargaði stigi gegn Selfossi. Ljósm. af
Skallagrímur steinlá á Grýluvelli
Björgvin Hafþór mættur á Grýluvöll. Ljósm: Knd. Skallagríms.
Fimleikadeild ÍA sigursæl á Íslandsmóti
Lið ÍA í keppni í gólfæfingum.
Drengjalið ÍA með verðlaun. Blandað lið ÍA með verðlaun.