Skessuhorn - 29.05.2024, Síða 63
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2024 63
ÍA og Fram mættust í þriðju umferð
Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu
síðastliðið fimmtudagskvöld og
var leikurinn í logninu í Akranes-
höllinni. Fyrsta færi leiksins kom á
9. mínútu þegar Erna Björt Elías-
dóttir átti góða sendingu inn á
markteig Fram þar sem Erla Kari-
tas Jóhannesdóttir var á auðum sjó
en í staðinn fyrir að skjóta á markið
í fyrsta missti hún boltann frá sér og
ekkert varð úr sókninni. Í fyrri hálf-
leik voru liðin að þreifa fyrir sér,
mikið var um stöðubaráttu en lítið
um alvöru færi. Framkonur kölluðu
eftir víti eftir um rúmlega hálftíma
leik þegar virtist vera brotið á Öldu
Ólafsdóttur í teignum en ekkert var
dæmt. Skagakonur voru þó líklegri
á móti sterku liði Fram og þeirra
hættulegasta færi kom á 36. mínútu
þegar Erna Björt tók háan bolta á
kassann við vítateiginn, setti hann
inn fyrir vörnina og þar var Juliana
Paoletti í dauðafæri en skaut fram
hjá markinu. Fleira markvert gerð-
ist ekki í fyrri hálfleik og staðan 0-0
í hálfleik.
Framkonur komu af miklum
krafti inn í seinni hálfleikinn og
uppskáru mark á 52. mínútu þegar
Alda fékk boltann fyrir utan víta-
teig ÍA og átti síðan ansi gott skot
upp í samskeytin. Afar vel gert og
ekki í fyrsta skiptið sem hún hrellir
varnarmenn ÍA en hún skoraði tvær
þrennur með Fjölni á móti ÍA í
2. deildinni í fyrra. Heimakonur
færðu sig framar á völlinn eftir
markið en gekk illa að skapa sér færi
gegn sterkri og skipulagðri vörn
gestanna. Dagbjört Líf Guðmunds-
dóttir fékk ágætis færi á 77. mín-
útu eftir hælsendingu frá Sunnu
Rún Sigurðardóttur en skot hennar
varði markvörður Fram auðveld-
lega. Það kom í bakið á ÍA því fimm
mínútum fyrir leikslok skoraði
Fram annað mark og aftur var Alda
þar á ferðinni. Hún fékk knöttinn
hægra megin, rakti boltann í átt að
teignum og átti hnitmiðað skot í
fjærhornið sem Klil Keshwar mark-
vörður ÍA átti ekki neinn möguleika
á að verja. Þrátt fyrir sóknarsinn-
aðar skiptingar hjá ÍA kom lítið
út úr þeim og á 92. mínútu fékk
Madison Schwartzenberger beint
rautt spjald eftir að hafa brotið á
leikmanni Fram sem var að sleppa
inn fyrir vörnina. Gestirnir unnu
að lokum sigur í hörkuleik tveggja
sterkra liða, lokatölur 0-2 Fram í vil.
Fram og Afturelding eru í 1. til 2.
sæti með sjö stig en ÍA er í 6.-8. sæti
ásamt Grindavík og ÍR með þrjú
stig. Næsti leikur ÍA er á móti Sel-
fossi sem er í fimmta sæti með fimm
stig og því um afar mikilvægan leik
að ræða. Leikurinn fer fram í dag,
miðvikudag, á Jáverk-vellinum á
Selfossi og hefst klukkan 18.
vaks
Kári og Hvíti riddarinn mættust
í fjórðu umferð 3. deildar karla í
knattspyrnu á föstudagskvöldið
og var leikurinn í Akraneshöllinni.
Upphaflega átti leikurinn að vera
í Mosfellsbæ en vegna veðurs var
skipt á heimaleikjum liðanna. Hvíti
riddarinn náði forystu á 22. mín-
útu með marki frá Alexander Aroni
Tómassyni og staðan 0-1 í hálfleik.
Alexander Aron var síðan aftur á
ferðinni á 78. mínútu og gestirnir
komnir með tveggja marka for-
skot. Lítið gekk hjá heima-
mönnum að minnka muninn
og það var ekki fyrr en á sjö-
undu mínútu í uppbótartíma sem
varamaðurinn Marinó Hilmar
Ásgeirsson náði að skora fyrir
Kára. Lokatölur 1-2 Hvíta í vil og
frekar svekkjandi tap hjá Kára eftir
góða byrjun í deildinni.
Káramenn eru í 3. til 5. sæti
deildarinnar með sjö stig ásamt Víði
og Árbæ en efst er Augnablik með
fullt hús stiga eða tólf og Magni
er í öðru sæti með níu stig. Næsti
leikur Kára er á móti KFK sem er
í 6. til 8. sæti með sex stig eins og
Sindri og Hvíti riddarinn og verður
viðureignin á morgun, fimmtu-
dag. Leikurinn fer fram í Akranes-
höllinni og hefst klukkan 19.15.
vaks
Tilkynnt var í síðustu viku að
körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur náð að semja við Pétur Má
Sigurðsson um þjálfun meistara-
flokks karla. Skrifar Pétur undir
tveggja ára samning en hann tekur
við liðinu af Atla Aðalsteinssyni
sem stýrt hefur því undanfarin ár.
Auk þess mun Pétur sitja í gæða-
hópi þjálfara sem hefur það mark-
mið að mynda, skýra og fylgja eftir
samfellu í þjálfun yngri flokka og
upp úr. Hann mun einnig halda
utan um ungmennaflokk félagsins.
Pétur Már er með góða reynslu
af þjálfun og er útskrifaður með BS
gráðu í íþrótta- og heilsufræðum
auk þess sem hann er með kennslu-
réttindi fyrir grunn- og mennta-
skóla. Pétur hefur þjálfað bæði
karla- og kvennalið Vestra
undanfarin ár ásamt því að koma að
þjálfun yngri landsliða Íslands en
hann þjálfar og stýrir einmitt U20
ára landsliði karla nú í sumar.
Pétur þekkir vel til í Borgarnesi
en hann lék á árum áður með liði
Skallagríms, fyrst árið 2002 og spil-
aði þrjú tímabil með millilendingu
á Ísafirði til ársins 2007.
hig
Það voru hressir krakkar sem lögðu
land undir fót síðasta föstudag er
þeir stigu upp í rútu snemma morg-
uns. Þá var ferðinni heitið alla leið í
Neskaupstað þar sem Íslandsmótið
í blaki fór fram. Keppt var allan
laugardaginn og fyrri hluta sunnu-
dags. U12 og U14 lið í UMFG
lentu bæði í öðru sæti og hlutu
silfur. Tvö lið voru í U12 og lentu
þau í fjórða og tíunda sæti. U14
lið stúlkna lenti í fimmta til sjötta
sæti af fimmtán liðum. Öll liðin
stóðu sig frábærlega og var frábær
stemning í hópnum. Liðin komu
ekki heim fyrr en seint aðfararnótt
mánudags og hafa líklega nokkrir
krakkar verið frekar framlágir í
skólanum á mánudag.
tfk
Skagamenn léku tvo leiki í
liðinni viku í Bestu deild karla í
knattspyrnu og var fyrri leikurinn
á móti Fram á Lambhagavellinum
í Úlfarsárdal. Hann endaði með
1-1 jafntefli þar sem Viktor Jónsson
skoraði mark ÍA í seinni hálfleik
eftir að Guðmundur Magnússon
hafði komið heimamönnum yfir. ÍA
og Víkingur Reykjavík áttust síðan
við síðdegis á laugardaginn og var
viðureignin á Elkem vellinum á
Akranesi. Aðstæður til knattspyrnu-
iðkunar voru alls ekki góðar, mikill
vindur var og ekki hægt að bjóða
upp á neinn samba fótbolta enda
voru áhorfendur frekar fáir eða
um 350. Fyrsta hálftímann gerð-
ist lítið, menn voru að reyna að átta
sig á vindinum og liðin fengu engin
alvöru færi. Eina dauðafærið í fyrri
hálfleik kom á 35. mínútu þegar
Helgi Guðjónsson átti skot að
marki ÍA, Árni Marinó markvörður
varði boltann út til Danijel Djuric
sem náði skoti sem Árni varði vel í
horn. Markalaust eftir fyrri hálfleik
og leikmenn eflaust fegnir að kom-
ast inn í klefa til að fá smá pásu frá
veðrinu.
Það dró svo til tíðinda á 54. mín-
útu þegar boltinn var sendur fyrir
inn á teig Skagamanna þar sem Dju-
ric tók við honum á markteignum
og lét sig síðan falla með tilþrifum
eftir baráttu við Marko Vardic.
Erlendur Eiríksson dómari leiksins
beit á agnið og dæmdi vítaspyrnu
og vísaði Marko út af vellinum
með rautt spjald. Ansi harður og
umdeildur dómur en það kom ekki
í veg fyrir að Borgfirðingurinn
Helgi skoraði örugglega úr vítinu.
Staðan 0-1 fyrir Víkingi og einum
færri reyndu Skagamenn að jafna
metin og vildu fá vítaspyrnu á 66.
mínútu þegar Viktor Jónsson féll í
teignum en ekkert var dæmt. Eftir
þetta voru gestirnir aðgangsharðari
en á næstsíðustu mínútunni fékk
Arnór Smárason boltann inn á teig
Víkings, hann náði skoti en bolt-
inn fór framhjá. Lokatölur 0-1 fyrir
Víkingi og svekkjandi niðurstaða
fyrir heimamenn í ÍA.
Skagamenn eru í áttunda sæti
eftir átta umferðir með tíu stig
en efstur er Víkingur með 21 stig,
Breiðablik er með 18 stig og Valur
í því þriðja með 15 stig. KA er í
næstneðsta sæti með fimm stig og
Fylkir situr á botninum með fjögur
stig. Næsti leikur ÍA er á móti KA
næsta laugardag á Greifavellinum á
Akureyri og hefst klukkan 16.
vaks
Vafasamt víti réði úrslitum á Skaganum
Helgi Guðjónsson tryggði Víkingi öll stigin gegn ÍA. Ljósm. fotbolti.net
Kári með tap á móti
Hvíta riddaranum
Byrjunarlið Kára gegn Hvíta riddaranum. Ljósm. kári
UMFG fór í keppnisferð
í Neskaupstað
Hópurinn sem gerði gott mót á Neskaupstað.
Alda sá um Skagakonur í sigri Fram
Byrjunarlið ÍA gegn Fram. Ljósm. kfía
Pétur Már Sigurðsson
tekur við Skallagrími
Pétur Már Sigurðsson og Sigríður Bjarnadóttir, formaður körfuknattleiksdeildar
Skallagríms, við undirritun. Ljósm. Skallagrímur