Mímir - 01.06.1967, Síða 10

Mímir - 01.06.1967, Síða 10
Njáls á sofendum og hins vegar lýsing smala- manns Helga Harðbeinssonar á þeim Þorgilsi. Finnur Jónsson hafði áður bent á þetta, og segir hann í Njáluútgáfu sinni: „... vgl. Laxd. c. 63; unsere stelle ist sicher durch jene beein- flusst.''20 Kersbergen bendir á, að algengt sé í sögum, að borin séu kennsl á menn eftir klæðaburði.21 Þetta leggur Andersson einnig mikla áherzlu á, og telur hann, að lýsingu Njálu svipi á engan hátt meira til Laxdælu en annarra sagna.22 Á það ber og að líta, að sjálfsagt er og eðlilegt, að það séu smalamenn, sem fyrstir verða varir mannaferða: Þeir eru mest á ferli og hafa yfir- leitt valið sér staði, þaðan sem vítt sér yfir. Bend- ir Finnur Jónsson einnig á þetta. Rétt er það, að frásögn Njálu er ekki svo mjög lík frásögn Laxdælu á þessum stað. Höf- undur Laxdælu er undir sterkum áhrifum frá riddarasögum, og kemur það glöggt fram þarna.23 í Njálu hefur hins vegar allt riddara- sagnaprjál verið sniðið af. Ekki þarf þetta þó að sanna nokkuð annað en að sögurnar voru ekki samdar af sama manni né á sama tíma. E. O. S. hefur bent á það, að á þessum stað muni Laxdæla eiga sér erlenda fyrirmynd, e. t. v. Þiðriks sögu.24 Ættartala frásagnarinnar verður því hjá E. Ó. S. þannig: Erlend fyrirmynd Laxdæla Njála25 Má þetta vel vera rétt — og raunar er senni- legt, að Laxdæla sé sniðin eftir erlendri fyrir- mynd á þessum stað — en ekki er augljós nauð- syn á að telja hana ættlið í ættartölu Njálu- frásagnarinnar. Sýnist litlu fráleitara að teikna þessa ættartölu þannig: Erlend fyrirmynd Laxdæla Njála Rök þau, sem E. O. S. færir fyrir sinni ættar- tölu, eru í smttu máli þau, að Njála sé íslenzk- 10 ari en Laxdæla og Laxdæla sé afmr á móti ís- lenzkari en hin erlenda fyrirmynd. Vart gemr þetta talizt sönnun fyrir því, að höfundur Njálu hafi sniðið frásögn sína eftir frásögn Laxdælu. Stíll hans er svo ólíkur stíl Laxdæluhöfundar, að engin líking verður fundin á þessum stað a. m. k. Jafnvel mætti láta sér detta í hug, að frásögnin væri m. a. sett í Njálu til þess að koma að orðum Njáls um smala sinn: „Gott hjónatak, ef slíkir væri margir..." Þrátt fyrir það, sem nú hefur verið sagt um þetta líkingaratriði, gildir þó hið sama um tengsl sagnanna hér sem víðast ella: þau er næstum jafnerfitt að sanna og afsanna. Sjötta líkingaratriði sagnanna er annars veg- ar hin tvö fyrri hjónabönd Guðrúnar Ósvífurs- dóttur og hins vegar tvö fyrri hjónabönd Hall- gerðar. Kersbergen gerir giögga grein fyrir þessari líkingu, og skal það ekki rakið hér.26 Andersson telur þetta það atriði, sem helzt sé takandi mark á, en bendir á hinn bóginn á, að ýmislegt sé allólíkt. Hallgerður beri t. d. á- byrgð á drápi bænda sinna tveggja, þó svo ann- ar sé drepinn mjög að óvilja hennar. Þessu sé ekki til að dreifa um Guðrúnu. Hjónabönd Hall- gerðar telur hann hafa mikilvægu hlutverki að gegna til að varpa ljósi á persónuleik hennar. Hjónabönd Guðrúnar skipti hins vegar engu máli á þann veg.27 Þetta er hárrétt athugað, en þó virðist Anders- son sjást yfir eitt: Einmitt vegna þéss, hve hjóna- böndum þessara kvenna er ætlað ólíkt hlutverk í sögunum, verður á þeim sá mismunur, sem fram kemur. Höfundur Njálu er enginn klaufi. Hefði hann tekið sér frásögn Laxdælu að ein- hverju leyti til fyrirmyndar á þessum stað, hlaut hann að gera á henni verulegar breytingar. Hann var fullfær um að nýta hjónabönd Hallgerðar til fulls til að varpa Ijósi á skapgerð hennar. Verð- ur ekki séð, að athugasemdir Anderssons afsanni nokkuð um þetta líkingaratriði. Sjöunda atriði er hefndarhvöt kvennanna. Um hana eru eins og fyrr segir tvö dæmi í Njálu, frýja Hildigunnar við Flosa og viðskipti Hróð- nýjar og Ingjalds. E. Ó. S. telur hið síðara snið-

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.