Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 16

Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 16
1. Fall Gunnars Hámundarsonar 2. Hjónabönd Hallgerðar 3. Samtal Höskulds og Marðar 4. Lýsing Gunnars Hámundarsonar. Síðasttalda atriðið mætti e. t. v. fremur kalla orðatengsl en efnis, en ég kýs þó að telja dæm- in öll í einu lagi. Hvernig var þá þessum tengslum sagnanna háttað? Ekki treystist ég til að kveða upp nokk- urn Salómonsdóm um það. Hverfandi líkur sýn- ast mér þó fyrir því, að höfundur Njálu hafi notað Laxdælu á nokkuð svipaðan hátt og menn nota heimildir nú á dögum. Meiri líkur sýnast mér fyrir efnisflutningi milli sagnanna. Þessi flutningur mætti hafa átt sér stað með tvennu móti: Annað hvort þannig, að höfundur Njálu hafi lesið Laxdælu og síðan leiti minni úr henni á hugann, þegar hann fer að semja sína sögu, eða þá að hann hafi þekkt munnmælasagnir, sem þá þegar hafi verið farnar að blandast sam- an, sbr. það, sem áður er sagt um fall Gunnars á Hlíðarenda. Skal engin afstaða tekin til þess að sinni, hvor leiðin sé liklegri. Eitt stendur óhagganlegt: Höfundur Njáls sögu lætur engan standa sig að verki, þó svo hann kunni að hafa tekið sögubita að láni. Mér er fyllilega ljóst, að um ýmislegt má deila af því, sem fram hefur komið í þessari grein. Hitt ættu allir að geta verið sammála um: Þegar leitað er rittengsla með tveim sögum, verður að gæta mikils hófs og fara í hvívetna að með gát, því að ávallt er yfirvofandi sú hætta, að menn sjái æ meir, því lengur sem þeir rýna í texta, og lendi loks í algjörum ofsjónum. Reykjavík á bak páskum 1967. TILVITNANIR 1 Halldór Kiljan Laxness: Brekkukots annáll, Rvk. 1957, bls. 5. 2 Jóhannes Helgi (Jónsson): Svört messa, Rvk. 1965, bls. 21. 3 Einar Ólafur Sveinsson: Um Njálu, I. bindi, Rvk. 1933, bls. 101. Sbr. einnig: Sami: Ritunartími 16 íslendingasagna. Rök og rannsóknaraðferð, Rvk. 1965, bls. 92. Theodore M. Andersson: The Problem of Icelandic Saga Origins. A Historical Survey, New Haven and London 1964, bls. 103. E. Ó. S.: Ritunartími..., bls. 94-95. Sami: Formáli að ísl. fornr. XII, bls. XXXIX- LX. Anna Cornelia Kersbergen: Litteraire motieven in de Njála, Rotterdam, MCMXXVII, bls. 177. Varðveittur á Heimskringlu, ísl. fornr. XXVII. E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 145. Brennu-Njálssaga v. Finnur Jónsson, Altnord. Saga Bibl., Heft 13, Halle 190S, bls. 70, nm. Kersbergen: Litteraire ..., bls. 128. Andersson: The Problem ..., bls. 98. E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 106. Kersbergen: Litteraire ..., bls. 83-84. ísl. fornr. XII, 35. ísl. fornr. V, 82. Andersson: The Problem ..., bls. 98. ísl. fornr. VII, 260. Sbr. Guðni Jónsson: Formáli að ísl. fornr. VII, bls. LXIX-LXX. Brennu-Njálssaga v. F. J., bls. 153, nm. Kersbergen: Litteraire..., bls. 69-70. Andersson: The Problem ..., bls. 98. Sbr. E. Ó. S.: Formáli að ísl. fornr. V, bls. X-XI. Ibid., bls. XXXI. Sami: Um Njálu, bls. 107. Kersbergen: Litteraire ..., bls. 90 o. áfr. Andersson: The Problem ..., bls. 98-99. E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 107-108 og 139. Andersson: The Problem ..., bls. 98. Kersbergen: Litteraire ..., bls. 98-102. E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 130-139. Ibid., bls. 108. Dæmin eru talin á bls. 109-111. Ibid., bls. 108. Upptalningin er á bls. 109-110, en þar er farið eftir annarri útgáfu en hér er notuð. Andersson: The Problem ..., bls. 99-100. Sjá E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 110-111. ísl. fornr. XII, 278. Ibid., 138-139. ísl. fornr. XII, 53 og ísl. fornr. V, 187. ísl. fornr. V, 77. ísl. fornr. XII, 461. ísl. fornr. V, 199. E. Ó. S.: Um Njálu, bls. 111-112. Á sama stað er að finna yfirlit yfir það, sem sögunum ber á milli um þetta atriði. Ibid., bls. 112-117. ísl. fornr. XII, 21. ísl. fornr. V, 44-45. E. Ó. S.: UmNjálu, bls. 116-118. 4 G 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.