Mímir - 01.06.1967, Qupperneq 19
allar ætlaðar börnum og unglingum. Þær eiga
að þjóna þeim tilgangi að kynna sögu landsins
og skáldskaparlist. I annan stað virðist það hafa
verið ætlun forlagsins að sýna æskumönnum
góða myndlist; dráttlist, sem lýsti upp og væri
unglingunum til yndisauka. Þetta hefur mis-
tekizt. Forráðamönnum útgáfunnar er ekki
Ijóst, að það er ekki nema á færi beztu lista-
manna að lýsa fagurbókmenntir; um Islands-
sögu gegnir öðru máli. Þar hefði verið betra að
láta forna list, fornleifar, lýsingar í handritum,
eða gamlan tréskurð lífga upp textann. Sagn-
fræðin reynir að skýra frá því, sem raunveru-
lega hefur gerzt; þess vegna er ákjósanlegt að
láta fornminjar, gamla listmuni frá sömu öld-
um og um er fjallað, tala til ungmenna. Og enn
einn möguleiki er fyrir hendi. Hann er sá að
hafa textana myndlausa. Láta hins vegar börnin
sjálf gera myndir við hann. Það örvar ímynd-
unarafl þeirra. Það veitir svo sannarlega ekki
af því í veröld, þar sem allt í kringum ungling-
inn miðar að því að svipta hann þessari gáfu:
sjónvarp, kvikmyndir, myndablöð.
A Islandi á nútímamyndlist örðugt uppdrátt-
ar; ungir listamenn og gamlir eiga stöðugt í
höggi við sleggjudóma samtíðarinnar; fólk skil-
ur ekki, hvað þeir eru að gera. Þegar bezt lætur,
eru þeir álitnir vera eins konar mublusmiðir.
Þetta er vegna þess, að þjóðin hefur ekki fengið
myndlistarlegt uppeldi. Lítið sem ekkert hefur
verið gert til þess að stuðla að auknum þroska
almennings á því sviði. Daufheyrzt hefur verið
við ráðleggingum og gagnrýni mætustu lista-
manna. Þessa sér vitaskuld alls staðar merki; í
stofum alls þorra fólks hanga sömu póstkorta-
myndirnar og hér voru í kamesum danskra
kaupmanna fyrir aldamót. Gorkúlur, eins og
Hallgrímskirkja, þjóta upp. Ljótar byggingar
rísa út um allt land, eins og til að storka lands-
laginu. Á allra síðustu árum hafa þó nokkrir
teiknikennarar hafið tilraunakennslu í dráttlist;
myndlist hefur verið kynnt með kvikmyndum,
fyrirlestrum og sýningum í menntaskólum
landsins. En til þess að unglingar nái góðum
þroska í þessari grein, þarf fyrst að ryðja vondri
list úr þeim bókum, sem þeir hafa stöðugt fyrir
augum: Það þarf að moka fjósið, áður en ung-
viðið kafnar. Þetta ætti að vera næsta verkefni
Ríkisútgáfu námsbóka.
Reykjavík,
apríl 1967.
19