Mímir - 01.06.1967, Side 33

Mímir - 01.06.1967, Side 33
vör seiðkona notar kofra sinn við að gera veður að mönnum: „Allt vissi Kjölvör þetta ok fór upp á hús ok veifði kofra sínum í austrætt ok þykknaði skjótt veðrit.23 Ennfremur kemur samsetningin dulkofri fyrir í Fljótsdæla sögu: „Ekki hirði ek nú um dul- kofra þinn, því at ek mun nær geta, hvar hann er, ef ek vilda eptir leita."24 Dulkofri gæti tákn- að hetm eða annað, sem sett er upp til að dylj- ast, en hér virðist það nánast merkja uppgerð. Kofri kemur ennfremur fyrir sem heiti fjalls- tinds: „Kofri (masc.) heiter uppmiött stritu- vaxed fell, upp undan Sudavik. refer ad hofud- fat."2° Trúlegt er, að lögun fjalls þessa minni á kofra og þar af sé nafnið dregið. I ritum frá síðari öldum er kofri mjög sjald- an nefndur. I bálki þeim, er Eggert Olafsson setti saman og nefndi „Ofsjónir við jarðarför Lóvísu Drottníngar 1752" lýsir hann anda nokkrum í manns líki. Eggert segir hann vera „einn af þeim fornaldar álfum eðr fjallvætmm, sem fyrir stórtíðindum, manns lámm, eðr öðru, sýndist í loptinu..." Um búning andans segir Eggert m. a.: „Hann ... hefir kofra á höfði svart- an .. ,"26 í Rímum af Búa Andríðssyni og Fríði Dofradóttir eftir Grím Thomsen er getið dverga, sem höfðu kofra á höfðum: Búa þar allir dvergar Dofra dusilmenn með rauða kofra.27 Hjalmar Falk segir, að höfuðfat það, er nefnt var couvrechef, hafi verið úr líni eða silki og gjarnan fóðrað með skinni. Hinn íslenzki kofri hefur, eins og áður segir, verið úr skinni, senni- lega oftast úr lambskinni. Kofri var bæði höfuð- fat karla og kvenna. Kveif Orðið kveif mun vera komið úr frönsku, ff. coif(fe), f. coiffe. Síðan kemur orðið fyrir í mlat. cuffia, cuphia, cofea; ít. cuffia, sp. cofia, fe. (egs.) cuffie (e. coif). Falk telur öll þessi orð komin af fhþ. kupha, kuppa (= höfuðfat, mít- ur). Kveif virðist tákna tvenns konar höfuðföt í fornu máli. Stundum er orðið haft um biskups- húfu eða mítur. I sögu Sverris konungs er sagt um Nikulás biskup: „Eptir þat fleygði hann (sér) or lyptingunni ok fram eptir skipinu; fauk þá kveifin af höfði honum ok utanborðs."28 I sögu Guðmundar Hólabiskups segir svo: „En erkibiskupinn skrifaði aptr, at hann þóttist skyld- ugr at vígja biskupa í Niðaróss kirkju provincia, en eigi at gefa þeim gull ok kveif."29 Hér er greinilegt, að kveif táknar biskupseinkenni, e. t. v. mítur. I Tómas sögu erkibiskups er nefnd kveif, og er þar greinilega átt við biskupshúfu: „Riddarinn ... stingr ... með suerdinu kueifina brott af honum [þ. e. erkibiskupi]."30 Annars staðar, þar sem kveif kemur fyrir í fornum ritum, er átt við annað en mítur. I Konungsskuggsjá fræðir faðir son um, hvernig búinn hann skuli ganga á fund konungs. Hann segir: „Hvárki skaltu hafa hött né húfu né kveif á höfði." Á öðrum stað í Konungsskugg- sjá er nefnd kveif: „Svá ok at kunna góða skiln- ing á því, nær hann má skikkju sína í frelsi bera eða hött eða kveif, ef hann hefir."31 Kveif er nefnd í Parcevals sögu: „Þá kom Kæi ræðis- maðr gangandi í höllina í einum ágætum silki- kyrtli ok eina kveif á höfði."32 Hér er ekkert hægt að sjá, hvers konar höfuðfat um er að ræða. Fritzner segir, að kveif sé stundum eins konar hetta eða höfuðfat, sem notað var með brynju, og er trúlegt, að hér muni um slíkt að ræða. Otto Blom hefur skrifað grein, er nefnist „Bemærkninger om Kongespejlets affattelses- tid". Er þar reynt að tímasetja Konungsskugg- sjá eftir lýsinu þeirri, sem þar er gefin á herklæð- um. O. Blom segir, að á miðöldum hafi verið höfð „en udstoppet Pandserhue" undir bryn- hettunni, og telur Blom hugsanlegt, að það sé þessi húfa, sem nefnd er kveif í Konungsskugg- sjá. Blom segir, að f. coif, sem kveif er runnin frá, hafi bæði verið notað um brynhettuna sjálfa og húfuna, sem höfð var undir henni.33 í ritgerð eftir Poul N0rlund, „Klædedragt i oldtid og middelalder", segir hann, að á 13. og 33

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.