Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 40

Mímir - 01.06.1967, Blaðsíða 40
nýrrar stundar”, lifir öld stórstígari framfara en nokkru sinni; hann sér hilla undir glæstari framtíð en nokkur önnur kynslóð hefur átt í vændum: land hans er vissulega „fagurt og morgunglatt": Rís í dag í hæðum ásum og hjöllum, horfir til þín í fjöllum, ber við draum þinn í bjargtign. Bezti hljómgrunnur ljóssins í heiminum. Draumurinn er megintákn í ljóðum Þorgeirs Sveinbjarnarsonar, eins og nafn bókar hans ber með sér. Þessi draumur er ekki þess eðlis „að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér", eins og Steinn Steinarr kvað. Hjá Þorgeiri táknar draumurinn hina æðstu hugsjón, takmarkið, sem er svo óralangt í burtu, að engin von er til, að unnt sé að höndla það. — Gaman er að sjá í niðurlagi þessa kafla, sem tilfært var, hversu Þorgeir lætur formið þjóna sér. Við gætum bú- izt við að finna endarím í síðustu Ijóðlínunni: í heiminum öllum. Hinsvegar er augljóst, að slíkt myndi slappa túlkunina mjög; þessvegna er hið sjálfsagða rímorð fellt niður. Höfundur Landslags kann semsé þá alltof fágætu list að beygja formið undir túlkun sína. I sjötta ljóði er sagt frá fjallgöngu mannsins, sókn hans til frelsis og framfara. Hikandi göng- unni er lýst af næmleik, tvísýnunni og ógn bergsins. En aftur verður ekki snúið; leiðin er brött, en fjallið skal sigrað: Þú seilist í bergsnös og skyggnist heim um haga og tún. Torfær var leiðin, og langt er enn upp á brún. Og undrið gerist: Þú „styður/orði á klettinn. / — Sjá, hann opnast/rödd þinni". Hér hefur maðurinn náð hinu æðsta valdi yfir heimi sínum; hið ógerlega er orðið gerlegt. Er það ekki ein- mitt þetta, sem hefur verið að gerast síðustu áratugi: vald mannsandans hefur aukizt svo mjög, að engin fyrri kynslóð hefði látið sig dreyma um slíkt. Sjöundi kafli: Skáldið ávarpar þjóð sína, borg og dal. Ekki ófyrirsynju er borgin sett á undan; hún hefur á örskömmum tíma tekið við algeru forystuhlutverki. En hún má ekki slitna úr tengslum við landið, verður að skynja það á sinn hátt: semja sitt eigið landslag. Græðir tónum teig og rinda, titrar í vötnunum þungu, þræðir móinn, malarsveiga og hoitalinda, letrar á tónbilin ljósan hvamm og hraunin skuggamynda, málar í strengi stolta litahöll og hreysið blinda. Ekkert er svo smátt, að ekki skuli því gefinn gaumur; hinar mestu andstæður, stolt litahöll og hreysið blinda, þeim þarf að veita líf. Þessar líkingar eru að vísu nokkuð snúnar, því að jafn- hliða er talað um lit og hljóm: hvorttveggja séð í einu, svo að ekki verður aðskilið. En hér sést mætavel, af hve mörgum þráðum Landslag er slungið; þessháttar skáldskap þarf að lesa vand- lega til að geta notið hans. Og bóndinn skynjar einnig land sitt á nýjan hátt. Höfundur notfærir sér einkar haglega þá tvíhverfu íslenzkrar tungu að nota sama orðið um ræktun lands og huga; hver líkingin býður annarri heim: Þótt bóndinn yrki mýrina undir öðrum hætti en áður og hlusti eftir ásiætti öldunnar, tengir hann bjartri kveðandi kliðmjúka lind við hrjúfan hamrastuðul. Hátturinn þröngi er tími. En landið flytur ljóðið bergmálsstuðlað, nýtt viðlag, nýja þjóðvísu, nýjan gróður. 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.