Mímir - 01.06.1967, Qupperneq 57
STARFSANNÁLL MÍMIS
Aðalfundur Mímis var haldinn 25. október árið
1966. Fráfarandi formaður Mímis, Heimir Páls-
son, flutti skýrslu stjórriar um framkvæmdir á
liðnu starfsári. Því næst las gjaldkeri félagsins,
Guðrún Kvaran, reikninga og útskýrði eftir
þörfum, og voru þeir samþykktir. Þá var kjörin
stjórn Mímis fyrir næsta starfsár. Kosningu
hlum: Ólafur Oddsson, formaður, Björn Teits-
son, ritari og Jón Sigurðsson, gjaldkeri. Næst var
kosning í ritnefnd, en í ritnefnd haustmisseris
sátu Bjarni Ólafsson, Einar Pétursson og Hösk-
uldur Þráinsson. A fundinum var rætt um ýmis
mikilvæg félags- og hagsmunamál, en einkum
var þó rætt um væntanlegt afmæli félagsins, er
yrði tvítugt 11. desember 1966. Kom fram mik-
ill áhugi félagsmanna um það, að þessara tíma-
móta yrði að minnast á tilhlýðilegan hátt.
Margir félagsfundir voru haldnir að vanda.
I byrjun nóvember flutti Einar Sigurðsson bóka-
vont og hvað komi í bága við reglur og venjur.
Hættulegast er það, sem brýtur niður beyginga-
kerfið, eins og þágufallssýki. Koma verður í
veg fyrir rugling og brenglun orða og orðtaka.
I málhreinsun ber ekki að forðast allt, sem er
af útlendum toga, heldur aðeins það, sem fer
illa í málinu og lýtur ekki lögmálum þess eða
öllu heldur venjum og er órökrétt eða ljótt og
lágkúrulegt.
Helgi Þorláksson
vörður erindi um samningu ritgerða og notkun
bókfræðirita. Að erindi loknu urðu nokkrar um-
ræður og fyrirspurnir, en því næst fór fram
námskynning fyrir yngri stúdenta, og önnuðust
hana þeir Helgi Þorláksson og Vésteinn Ólason.
Þótti fundur þessi takast allvel.
Nokkru síðar flutti Ólafur Halldórsson, sér-
fræðingur Handritastofnunarinnar, fróðiegt er-
indi um framtíðarverkefni við handritarannsókn-
ir hérlendis og ræddi síðan við félagsmenn um
þessi mál.
Snemma í febrúar var haldinn félagsfundur
um ýmis hagsmunamál Mímis. Þá höfðu ný-
lega þau merku tíðindi spurzt, að endanlega
væri staðfest, að nemendur í íslenzkum fræðum
skv. eldri reglugerð gætu þreytt lokapróf í á-
föngum. Um þetta mál hefur áður verið ritað
í Mími (10. tbl.), og skal það ekki endurtekið.
Ymis önnur mál voru rædd á þessum fundi,
m. a. var kosið í ritnefnd vormisseris, en í henni
eiga sæti þeir Brynjúlfur Sæmundsson, Guðjón
Friðriksson og Höskuldur Þráinsson.
I byrjun marz flutti Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur erindi um Jón Sigurðsson, einkum
sagnfræðirannsóknir hans og söguskoðun. Var
gerður góður rómur að erindi Sverris og margar
fyrirspurnir gerðar.
I apríl flutti próf. Þórhallur Vilmundarson
erindi um söfnun og rannsókn íslenzkra örnefna.
Að erindi loknu urðu töluverðar umræður um
þessi mál. Fundurinn var óvenju fjölmennur,
57