Mímir - 01.03.1968, Síða 3

Mímir - 01.03.1968, Síða 3
M í M I R BLAÐ FÉLAGS STÚDENTA í ÍSLENZKUM FRÆÐUM 12 7. árg. — 1. tbl. — Reykjavík — marz — 1968. Ritnefnd: Eiríkur Þormóðsson (ábm.) Guðjón Friðriksson Jón Hilmar Jónsson Prentsmiðja Jóns Helgasonar UM BLAÐIÐ Aðalgrein þessa 12. tölublaðs Mímis er íyrirlestur Tryggva Gíslasonar, er hann flutti til meistaraprófs í íslenzkum fræðum 3. febrúar s. 1. Þetta er í fyrsta skipti, sem slíkur fyrirlesmr birtist í Mími, enda næsta fátítt, að menn Ijúki meistaraprófi í íslenzkum fræðum. Af öðru efni má nefna viðtal við Þór Magnússon, sem fjall- ar að mestu um þjóðhætti, en sá þáttur fræðanna hefur mjög verið vanræktur við Háskóla Islands Gefst lesendum þar kostur á að kynnast, hvaða starf hefur verið unnið við Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins. Gæti svo farið, að það vekti áhuga einhvers stúdents að velja sér ritgerðarverkefni á sviði þjóðhátta. Nokkur töf hefur orðið á útgáfu Mímis að þessu sinni, og veldur því einkum verk- fall, sem skall á í byrjun marz. Jónas Franklín safnaði auglýsingum í blaðið, og þakkar ritnefnd honum vasklega framgöngu. 3

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.