Mímir - 01.03.1968, Blaðsíða 32
í æviminningum sínum, að hann telur sig eiga
tilveru sína að þakka Oskjugosinu 1875, en þá
fluttist móðir hans frá Merki á Jökuldal út í
Vopnafjörð og giftist þar föður hans skömmu
síðar, sem var úr Vopnafirði.13 Líklegt þykir
mér, að hægt væri að finna þess fleiri dæmi, að
öskufallið mikla hefði haft afdrifarík áhrif á
hagi manna og örlög á Austurlandi. Svo víð-
tækar urðu afleiðingar þess á allan hátt. Marg-
ur bóndinn mun hafa orðið að yfirgefa sínar
bernskustöðvar og flytjast í fjarlægar sveitir og
jafnvel fjarlæg lönd. Margir misstu og alla trú
á landi og þjóð og lögðu upp til landnáms í
nýrri heimsálfu, enda þótt þar mættu þeim
byrjunarörðugleikar, sem mörgum urðu sízt
auðveldari en öskufallið og óáranin, sem því
fylgdi. Aðrir klóruðu í bakkann, svo sem frek-
ast var kostur, og buðu erfiðleikunum byrginn.
Þeir hopuðu ekki af hólmi, þótt náttúran væri
þeim óblíð.
Þegar eitt ár var liðið frá öskufallinu, hófst
uppbyggingin aftur á flestum eyðijörðunum, og
smátt og smátt komst allt í sama horf og áður
hafði verið, enda þótt það tæki nokkur ár.
TILVITNANASKRÁ:
1 ÞThFerð. I, 336.
2 ÞThFerð. I, 336—338.
3 SÞórTefrokron. 99—100.
4 SÞórTefrokron. 99—100.
5 Minesterial Hofteigs árin 1874—80.
0 Austurland. IV, 81.
7 ÞThFerð. I, 40—41.
8 Austurland. I, 208—210.
9 Austurland. I, 209.
10 ísafold II (20. okt. 1875), 158.
11 Minestrial Valþjófsstaða árin 1875—76.
12 Fréttísl. 1875, 13.
13 BGuðm.Minn. 18.—19.
HELZTU HEIMILDIR:
Austurland. Austurland I—VI. Útgefandi Sögusjóð-
ur Austfirðinga.
BGuðmMinn. Björgvin Guðmundsson, Minningar.
Akureyri 1950.
ísafold. II. ísafold II. árgangur. Reykjavík 1875.
Minesterial. Minesterialbækur Hofteigs- og, Val-
þjófstaðarsóknar í Norður-Múlas. slu fyrir árin
1874—1880.
SÞórTefrokron. Sigurður Þórarinsson, Tefrokrono-
logiska studier pá ísland. Kaupmannahöfn 1944.
ÞThFerð. Þorvaldur Thoroddsen, Ferðabók I—IV.
Kaupmannahöfn 1913.
Eftirtalin fyrirtœki og stofnanir
liafa styrkt með fjárframlögum
útgáfu þessa blaðs:
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf. Aðalstrœti 6
SKÓVAL, umboðs- og heildverzlun, Kjörgarði
V B K, Vesturgötu 4
SAMVINNAN
MÍMIR þakkar þeim velvildina.
32