Mímir - 01.03.1968, Blaðsíða 5

Mímir - 01.03.1968, Blaðsíða 5
TRYGGVI GÍSLASON: ÁHRIF KRISTNINNAR Á ÍSLENZKAN ORÐAFORÐA AÐ FORNU MEISTARAPRÓFSFYRIRLESTUR, FLUTTUR 3. FEBRÚAR 1968. Kennarar mínir hafa valið mér verkefni að tala um: áhrif kristninnar á íslenzkan orðaforða að fornu. Nú er ekki með öllu ljóst, hvenær tala má um íslenzkan orðaforða — eða með öðrum orðum, hvenær íslenzk tunga verður til. Nota má málfræðileg rök til að ákveða aldur tung- unnar — og væri mér það vafalítið sæmst. Hins vegar má einnig nota félagsleg rök. Þar sem kristin áhrif hljóta að teljast félagslegt fyrirbæri — og um þau á að ræða — leyfi ég mér því að nota félagslegu rökin og tel ís- lenzka tungu verða til um leið og íslenzkt þjóð- félag, sem hlaut stjórnmálalega viðurkenningu árið 930 að voru tali. Þegar gera skal athugun á orðaforða tungu- mála, er nauðsynlegt að setja sér fastar starfs- reglur — treysta hinn fræðilega grundvöll. Þeir erlendir fræðimenn, sem einkum hafa ritað um flokkun og athuganir á orðaforða ger- manskra mála og mér er kunnugt um, eru: W emer BETZ, Helmut GNEUSS, Einar HAUGEN og Evelyn S. COLEMAN. Á blaði, sem áheyrendur hafa vonandi allir fengið, eru teiknuð flokkunarkerfi þessara fjögurra fræði- manna ásamt flokkunarkerfi því, sem ég hef sniðið og hér verður notazt við. Er flokkun mín reist á athugunum mínum á nýyrðasmíð í mál- fræði á 12tu og 13du öld, en mið tekið af fiokkunarkerfum fjórmenninganna, en engin tvö þeirra eru eins. Gat ég því ekki fengið af mér að rjúfa þá óeiningu, sem þar ríkti, þó í bandi friðarins, því að allir þessir fræðimenn eru sammála um nauðsyn skipulegrar flokkun- ar orðaforðans á vísindalegum grundvelli — einkum þeim hluta hans, er tekur til nýyrða. Nauðsynlegt mun vera að ræða lítillega þessa flokkgn, sem hér verður notuð, og helztu frávik hennar frá skiptingu fyrri manna. Nýyrði eru andstæða erfðarorða, og er fyrsta stig athugunar á orðaforða málsins að greina þar á milli. [Bið ég áheyrendur að líta á fyrstu mynd til að fylgjast betur með þessari grein- ingu.] Til þess að skilja á milli nýyrða og erfð- arorða verður að beita sögulegri athugun. Nið- urstöður greiningar þessarar fara algerlega eftir málheimildum, og verður vikið að þeim þætti síðar. Nýyrði eru greind í þrjá undirflokka: ný- merkinga, sem eru erfðarorð, er fá nýja merk- ingu, tökuyrði, þar sem erlendra máláhrifa gæt- ir, og nýgervinga, og er þar átt við algera ný- myndun orða. Hér er það annar undirflokkur, sem varðar verkefnið — tökuyrðin. Þau eru greind í þrjár undirdeildir. I fyrsta lagi eru tökumerkingar, en það eru nýmerkingar, sem verða til fyrir erlend áhrif. Sem dæmi um töktimerking, erfðarorð, 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.