Mímir - 01.03.1968, Qupperneq 20

Mímir - 01.03.1968, Qupperneq 20
ar kirkjubækur eftir kirkjuárinu undir hverju heiti). Þá eru einnig taldar þar tvær bækur írskar, en þar mun einnig átt við messubækur. Þessar bækur voru í rauninni ekki írskar, en nefndar svo, af því að hingað bárust þær frá írlandi.5 Ekki verða bækur á Hálsi og Möðruvöllum taldar til að ná samanburði. En á það skal bent, að af messubókum og þeim bókategund- um, sem greindi, eru fleiri eintök á klaustrinu, og þar er að finna messubækur, sem alls ekki eru til á Hálsi, t. d. brefere, kirial, legendaria, og antefónabækur. Yfirleitt er mikill munur á bókakosti klaust- ursins á Möðruvöllum og kirkjunnar á Hálsi að því er varðar bókafjölda og fjölbreytni. Er þá vitanlega aðeins miðað við messu- og tíðabæk- ur, því að ekki var von, að Hálskirkja ætti það, sem í Möðruvallaklaustursmáldaganum er nefnt „latínubækur og norrænubækur", sbr. áður sagt. En klaustrið átti 26 latínubækur og finn- ast sumar þeirra ekki annars staðar á Islandi en þar. Og á eftir upptalningunni á latínubókun- um koma orðin „oc margar skrar adrar miog gamlar". Sýnir þetta, að ýmsar aðrar bækur hefur verið að finna á klaustrinu, þótt ekki væri nánar greint, hverjar þær voru. Norrænubækur klausmrsins eru um 60 tals- ins, og eru þær hinar ólíkusm: fræðirit, forn- sögur, heilagra manna sögur o. s. frv. Fjöl- margar þeirra er ekki að finna annars staðar hér á landi. Til að sýna afbragðs kosti þessarar bókaskrár í máldaga Möðruvallaklausturs 1461 er vert, að fram komi, að til eru máldagar frá klaustr- um, sem geta aðeins um fjölda bóka, en ekki einstök heiti eða flokka. Segir þannig í mál- daga Helgafellsklausturs 1186, að þar sé að finna „hundraþ bækr", þ. e. 120.'1 Ber þetta að vísu vitni um, að mikið bókasafn hafi verið til að Helgafelli þegar í öndverðu, en aftur á móti er ekki unnt að sjá, hvaða bækur þetta voru. Hins vegar segir í máldaga Helgafellsklausturs 1397, eftir að taldar hafa verið tíðabækur á- samt gripum innan kirkju, að þar sé „halfur fiordi tugur norrænv boka. jtem nærre hvndrade Latinvboka. annad eru tijdabækur".7 Ekki vitum við, hvaða bækur er hér um að ræða frekar en í fyrri máldaganum, nema hvað hér er greint á milli norrænubóka og latínu- bóka. En hafa ber í huga, að á þessum tíma, þegar Helgafellsklaustur á ekki undir 150 nor- rænu- og latínubóka, auk tíðabóka, er meðal- bókafjöldi kirkna 15—20 bækur, og eru þess- ar fáu bækur kirknanna því nær eingöngu tíðabækur, eins og fram kemur í máldaga Háls- kirkju 1461.8 Þá skal það enn nefnt til frekari samanburð- ar á bókakosti klaustranna, að nokkur vitneskja er einnig fyrir hendi um bókakost Viðeyjar- klausturs. Arið 1397 eru þar um 60 bækur af ólíku efni” Eru sumar þeirra óþekktar annars staðar hér á landi, en sumar aftur á móti að- eins þekktar þar og á Möðruvöllum. En vel er skiljanlegt, að þau þrjú klaustur, sem nefnd voru, ættu skyld bókasöfn, þar eð þau voru öll af Ágústínusarreglunni. 1 bókaskrá Viðeyjarklausturs 1397 eru aðeins 13 norrænubækur taldar. En þar er annað frá- brugðnara, skólabækur eru þar sér í flokki, 17 talsins, en tíðabækur vantar alveg. Er aðeins sagt í lok skrárinnar: „Jtem ij messuBrever". Þar sem bókaskrá Hálskirkju telur í ein- stökum atriðum tíðabækur, en bókaskrá Við- eyjarklausturs aðrar bcekur, þá sameinar bóka- skrá Olafs biskups Rögnvaldssonar í máldagan- um fyrir Möðruvallaklaustur þetta hvort tveggja. Er því þar að finna merkustu bókaskrá á íslandi á miðöldum. TILVITNANIR: 1 íslenzkt fornbréfasafn V, 286—290. 2 Sama rit II, 455. 3 Árbók Landsbókasafns 1946—1947, 75. 4 íslenzkt fornbréfasafn V, 298. 5 Boksamlinger pá Island, 84. G íslenzkt fornbréfasafn I, 282. 7 SamaritlV, 170—171. 8 Boksamlinger pá Island, 67. 9 íslenzkt fornbréfasafn IV, 110-—111. 20

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.