Mímir - 01.03.1968, Blaðsíða 23

Mímir - 01.03.1968, Blaðsíða 23
verið sendar út fyrir fræðimenn. Onnur fjall- aði um kvöldvökuna og hlutverk heimilisins í menningarlífi þjóðarinnar. Sú skrá var send út fyrir Magnús Gíslason, fyrrverandi námsstjóra, sem hefur verið með rit í smíðum um þau efni. Hin skráin var send út fyrir nokkrum árum og fjallaði um amboðin. Hún var send út í samráði við Orðabók Háskólans, en Jón Aðalsteinn Jónsson hefur unnið að rannsóknum á heyskap- armáli Islendinga. Stendur til að senda síðar út fleiri skrár varðandi það efni. Og nýjasta skráin, sú sem fjallar um byggingar, er eiginlega send út að undirlagi Harðar Ágústssonar, sem hefur um nokkurt árabil verið að rannsaka íslenzka húsagerð. — Islendingar eru mjög hreyknir af sinni sögu. En sú saga, sem skráð hefur verið og kennd, er einkum saga höfðingja, kirkju, stjórn- arfars og bókmennta. Væri ekki þörf á að kenna almenna menningarsögu Islendinga og þjóð- fræði við Háskóla Islands? — Jú, vissulega væri þörf á því. Má segja, að þar sé mikil gloppa í kennslu íslenzkra fræða. Við höfum lengi verið bundnir um of við fornmenningu okkar, sem er bókmennta- legs eðlis. En það eru aðrar hliðar á okkar memiingu, sem lítið hefur verið sinnt. Víðast erlendis, þar sem við þekkjum til, eru þessar fræðigreinar, þjóðháttafræði og þjóðfræði, kenndar við alla háskóla. Það hlýtur að vera mikils virði að kunna skil á lifnaðar- og at- vinnuháttum þjóðar sinnar, ef skilja á sögu hennar. Mér þykir ekki ólíklegt, að einhvern tíma verði farið að hugsa til þess að kenna ís- lenzka og norræna menningarsögu við Háskóla íslands. Eg hef oft verið spurður að því, hvers vegna ekki er kennd fornleifafræði við Háskól- ann. Þar gegnir nokkuð öðru máli. þar sem við eigum enga forsögu, því að saga íslands hefst um leið og söguritun hefst, eiginlega í lok for- sögulega tímans. Hér á landi er því ekki um neinar fornleifar að ræða, en auðvitað eigum við okkar sögualdar- og miðaldafornfræði og seinni alda fornleifar, sem eru alls ekki ómerkar. — Hér kemurðu að viðkvæmu máli. Sumir eru þeirrar skoðunar, að við eigum okkar for- sögu eins og aðrir og hér hafi búið álitlegur hópur manna, áður en norrænir menn komu til landsins. Hvað viltu segja um þá skoðun? — Heyrt hefur maður þessa kenningu, og sumir berjast fyrir henni af miklum móði. Þetta virðist eiginlega vera orðinn átrúnaður hjá vissum hópi manna. Því miður hefur forn- leifafræðin ekki enn getað stutt þá kenningu, að hér hafi lifað fjölmennur hópur keltneskra manna, áður en norrænir menn komu. Þótt við ætmm ekki Landnámu né annan staf skrifaðan fyrir siðaskipti, gætum við samt sagt um það með nokkurri vissu, hvenær Island byggðist. Það sæjum við á fornleifunum. Elztu graf- fundir íslenzkir eru frá 10. öld, allt greinilega norrænar grafir. Hlutirnir, sem í þessum gröf- um finnast, eru sömuleiðis norrænir. Varla nema einn og einn hlutur í þessum gröfum get- ur verið af öðrum toga spunninn og ekki fleiri en eðlilegt má kallast, því vitað er, að norrænir menn höfðu töluverð samskipti við Irland á þessum tíma. I Noregi finnast oft írskir gripir frá víkingaöld, sem eru taldir hafa borizt þang- að með kaupmönnum eða öðrum, sem til Ir- lands fóru. En enginn Norðmaður heldur fram þeirri kenningu, að Irar hafi setzt að í Noregi, svo að nokkru næmi. Við gætum líka sagt um það, .hvenær kristnin kom til Islands. Það er hætt að grafa menn að heiðnum sið um árið 1000. Kristnin bannaði að sjálfsögðu, að menn væru grafnir með vopnum sínum og áhöldum, hestum og skipum. Nýir greftrunarsiðir sýna okkur ótvírætt fráhvarfið frá heiðnum sið til kristins. En svo að við víkjum aftur að Irunum, hefur það sýnt sig, að margt það, sem menn töldu írskt, er það alls ekki. Risturnar í hellun- um í Rangárvallasýslu, sem Einar Benedikts- son skrifaði heila bók um og taldi vera verk Kelta, reyndust við rannsókn Matthíasar Þórð- arsonar, þjóðminjavarðar, vera seinni tíma verk, fangamörk manna frá 17., 18. og 19. öld. Reyndar gerðu menn nýja hella á Islandi allt fram á þessa öld. Nokkuð víða eru til örnefni, sem heita eftir pöpum og Irum, og eru þau 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.