Mímir - 01.03.1968, Side 38

Mímir - 01.03.1968, Side 38
LJÓÐRÝNI „Á LANGFERÐUM LÍFS MÍNS OG BRAGS" Það mun einróma álit manna, er dómbærir teljast, að Snorri Hjartarson sé listfengnasta ljóðskáld okkar sem nú er uppi og meðal hinna mestu fagurkera íslenzkrar ljóðlistar fyrr og síðar. Undansláttarlausar fegurðarkröfur hans eiga sér fáar hliðstæður, og vandfýsi hans í samskiptum við málið bregzt sjaldan. Sam- kennd með íslenzkri náttúru er heit og tilfinn- ingin fyrir stríðandi lífi þjóðarinnar djúp og einlæg: Hér vefur móðurfaðmi hlíðin há og hlúir frjómild lífsins smæstu þjóð og allt í kring er auðnin köld og grá, ísköld og járngrá, slungin fölri glóð. Mín blómahlíð, mitt land, mín litla þjóð! Þessir eiginleikar Snorra Hjartarsonar, sem eru sterkastir strengir í skáldskap hans, hljóta að beina huganum að öðru íslenzku skáldi, sem lézt í Kaupmannahöfn öld áður en Snorri kom fram á vettvang ljóðlistarinnar. Um Jónas Hall- grímsson skal ég ekki fjölyrða. Fáir hafa betur ritað um skáldskap hans en Halldór Laxness í Alþýðubókinni; hann kallar Jónas „skáld ís- lenskrar vitundar því svo eru kvæði hans ó- rjúfanlega teingd þeim eigindum er marka ís- lendíngum sérstöðu að þeirra verður ekki not- ið þess utan”. Mörg kvæði hafa verið ort um Jónas Hall- grímsson, og væri fróðlegt rannsóknarefni útaf fyrir sig að kanna þau með nokkrum hætti. Sér- stæðust tel ég þó ljóð Snorra Hjartarsonar tvö, Jónas Hallgrímsson í Kvæðum, 1944, og Hviids Vinstue í Laufum og stjörnum, 1966. Gegnir raunar ekki furðu, að Snorra tækist vel að yrkja um Jónas, svo skyldir sem þeir eru um margt í skáldskapnum. Mig langar til að fara nokkrum orðum um þessi tvö kvæði Snorra; ekki eingöngu til að sýna hvernig nútímaskáld yrkir um Jónas Hall- grímsson, heldur og sökum þess, að ég tel þessi ljóð veita allgóða hugmynd um einkenni Snorra Hjartarsonar og þá stefnu sem skáldskapur hans hefur tekið, eins og sjá má af Laufum og stjörnum. Fyrra ljóðið er á þessa leið: Döggfall á vorgrænum víðum veglausum heiðum, sólroð í svölum og góðum suðrænublæ. Stjarnan við bergtindinn bliknar, brosir og slokknar, óttuljós víðáttan vaknar vonfrjó og ný. Sól rís úr steinrunnum straumum, stráum og blómum hjörðum og söngþrastasveimum samfögnuð býr. 38

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.