Mímir - 01.03.1968, Síða 40

Mímir - 01.03.1968, Síða 40
þessar litskrúðugu myndir eru síðan felldar saman, svo haglega, að ekki sér missmíði á; Ijóðið er í fullkomnu jafnvægi. I þriðja erindi dvelur skáldið við sólaruppkomuna, en síðan kemur hreyfing á myndflötinn: Ein gengur léttfætt að leita. Hljómlistin á hér einnig sinn þátt: hljómfall Ijóðsins er beinlínis töfrandi, eins og hver getur fundið með því að lesa það upphátt. T. a. m. lokaorð braglínanna, sem geyma endarímið: Víðum — heiðum — góðum; bliknar — slokknar — vaknar, o. s. frv. Þannig finnum við margt við lestur þessa litla ljóðs: Djúpa tilfinningu fyrir náttúrunni og lífi jarðar, óvenjulegt málskyn og næmleik auga og eyra. Mér er ekki kunnugt um neitt ljóð um Jónas Hallgrímsson, þar sem beitt sé svipaðri aðferð og hér, nema ef vera skyldi hið íðilfagra erindi Jóhanns Sigurjónssonar, og kann að vera að það hafi komið Snorra á sporið: Dregnar eru litmjúkar dauðarósir á hrungjörn lauf í haustskógi. Svo voru þínir dagar sjúkir en fagrir, þú óskabarn ógæfunnar. Tuttugu og tveimur árum eftir að ljóðið um Jónas Hallgrímsson birtist í fyrstu bók Snorra Hjartarsonar, kom út þriðja bók hans, Lauf og stjörnur. Þá var mikið vatn til sjávar runnið í íslenzkri ljóðlist, og Snorri hafði hlýtt kalli tímans og endurskoðað viðhorf sín til ljóðsins. Og hér gat að líta niðurstöður þess endurmats. I stað litskrúðs og dýrra hátta, glitofins ríms, í stað heitra eggjunarljóða og kliðmjúkra man- söngva, var kominn ljós og tær einfaldleiki í hugsun og framsetningu, meitlað hnitmiðað táknmál. Ljóðin eru öll stutt, sum örstutt, og skírð til slíkrar hlítar í deiglu einfaldleikans, að lesandinn hefur stundum á tilfinningunni að engu atkvæði megi hnika til, eigi myndin ekki að kollsteypast. En svo snjall er Snorri, að lang oftast tekst honum að láta myndir sínar vega salt á nálaroddi, segja nákvæmlega það sem fyrir honum vakir, hvorki meira né minna. Þessi Ijóð leyna þéttingsmikið á sér, og bókin verður lesandanum því hugstæðari sem hún er oftar lesin. I þessari bók er nýtt Ijóð um Jónas Hall- grímsson. Heitir það Hviids Vinstue, en það er nafn á knæpu einni í Kaupmannahöfn þar sem sagt er að Jónas hafi smndum setið. Og Snorri skynjar svip hans þar ennþá: Brenna augun þín brúnu frá borðinu þarna í köldum skugga þíns skapadags Heyri ég hikandi þung hinztu fótatök þín hverfa í ysinn að utan Heyri þau heyri þau óma í hugar míns djúpi sem fyr á langferðum lífs míns og brags. Þetta ljóð er vissulega gagnólíkt hinu fyrra. Hér er ekkert málskrúð, ekki seiðandi hljómfall, engar glæsimyndir úr náttúrunni. Túlkunin er knöpp svo sem mest má vera, innhverf og per- sónuleg eins og í öðrum ijóðum Snorra, en hér er sitthvað það á braut, sem mest seiddi lesend- ur hans áður. Engin brögð í meðferð máls og ríms, hvorttveggja jafn óbrotið. Notað er enda- rím í lok fyrsta og þriðja erindis, til að gefa Ijóðinu fastara snið. Hér er beitt aðferð harla ólíkri þeirri sem áður var ríkjandi. Það er að vísu harla skiljanlegt, að ýmsir sakni við- hafnar fyrri ljóða, en ég tel það Snorra Hjart- arsyni vegsauka að hafa leitað á nýjar slóðir á efri árum með jafngóðum árangri. Honum verður ekki borin á brýn neinskonar stöðnun eða hann yrki sig upp. Yfir þessu ljóði, Hviids Vinstue, eins og raun- ar öðrum Ijóðum Laufa og stjarna, er kyrrlát stemning, haustfriður, mildur tregablær. Glóðin 40

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.