Mímir - 01.03.1968, Page 41
undir þessu yfirborði kemur þó í Ijós þegar í
fyrstu braglínu: Brenna augun þín brúnu. And-
stæðan við loga augnanna er kaldur skuggi ör-
laganna. Hvor andstæðan magnar hina: Líf
skáldsins, draumar þess og tilfinningar, sem ekk-
ert fær unnið á; hinsvegar þau nöturlegu ör-
lög, sem löngum grúfa yfir listamanninum og
hverjum er „hafnar þeirri leið, sem fjöldinn
velur". Við sjáum skáldið ganga á brott í síð-
asta sinn, heyrum fótatök þess hverfa í ysinn að
utan. Hikandi í þessum þysmikla heimi. Og ys-
inn að utan kæfir líka fótatakið. En fótatök
þessa ógæfusama skálds óma stöðugt í huga
Snorra, þrátt fyrir fjarlægðina í tíma. Það má
segja að í þessu ijóði kallist skáldin á yfir heila
öld. Það staðfestir hvers virði skáldskapur Jón-
asar hefur verið Snorra, og þarf þeirrar stað-
festingar raunar alls ekki við; það liggur í aug-
um uppi við lestur ljóða hans. En tilfinning
Snorra fær æ meiri þunga með þrítekningu
sagnarinnar að heyra; list Jónasar hefur búið í
hug Snorra á langferðum líf hans og brags.
Eins og áður er freistandi að beina huganum
útfyrir ramma þessa Ijóðs. Jónas táknar fegurð
mannlífsins í viðjum kaldra örlaga; og skal
minnt á annað ljóð í Laufum og stjörnum, sem
birtir sömu hugsun:
Fegurð og góðvild
þetta tvennt og eitt
hvað er umkomulausara
í rangsnúnum heimi
Og þó mest af öllu
og mun lifa allt
Með þessum orðum skáldsins, sem túlka
bjartsýni hans „á sigur sannleiks og réttar",
bjartsýni sem hann á ennþá „í öllum þessum
kulda", skal greinarkorninu lokið. Honum hef-
ur tekizt að búa þeirri sannfæringu vængjuð
orð, sem ekki fyrnast, meðan einhver kann að
meta góðan skáldskap.
Gunnar Stefánsson
ALMENNAR
TRYGGINGAR g
POSTHUSSTRÆTI 9
SÍMI 17700
NÝJAR BÆKUR NÆSTUM DAGLEGA
Snæbjömlícmsson&Cb.h.f
Utvegum allar fáanlegar
erlendar bækur og tímarit.
Símar 1 1936 - 10103
Hafnarstrœti 9
41