Mímir - 01.03.1968, Síða 42
MÓÐURMÁLSÞÁTTUR
í þessum þætti er ætlunin að ræða lítið eitt
orðalag vissra tegunda auglýsinga, er einkum
og sér í lagi birtast í blöðum, en einnig heyrast
stundum lesnar í útvarp. Er hér einkum um að
ræða auglýsingar kvikmyndahúsanna, en einn-
ig nokkrar aðrar.
Eins og allir vita, er það tilgangur auglýs-
enda með auglýsingum að vekja athygli al-
mennings eða viss hóps manna á þeim hlut
eða því fyrirbæri, sem í það og það skiptið er
ætlun hans að koma á framfæri. Nú á dögum
er vitanlega um fleiri en eina aðferð að ræða til
að koma auglýsingum til skila, þar sem eru
bæði blöð, útvarp og sjónvarp. Miklu máli
skiptir auðvitað, að auglýsingin sé áberandi og
vekji athygli, til þess að hún nái tilætluðum
árangri. Þetta má sjálfsagt gera á marga vegu,
í biöðum t. d. með því að prenta þær stóru
letri eða hafa þær sjálfar stórar, birta á áberandi
stað o. s. frv. Einnig er mikils vert, að hún sé
vel og hnyttilega orðuð, skemmtileg tilbreyt-
ing er jafnvel að sjá auglýsingar í bundnu máli,
eins og stundum kemur fyrir.
Einn er sá flokkur auglýsinga, eða öllu held-
ur sú tegund „auglýsingatækni”, sem ég hygg,
að hafi algerlega misst marks og endilega
þyrfti að koma öðru sniði á. Er þar átt við hið
hvimleiða og ég held mér sé óhætt að segja
algjörlega tilgangslausa málskrúð, sem kvik-
myndahúsaeigendur beita daglega í auglýsingum
sínum og einkum kemur fram í óhóflegri notk-
un iýsingarorða. Ég á bágt með að skilja, að
slíkt orðasamsafn nái nokkrum jákvæðum á-
hrifum, heldur þvert á móti fari í taugarnar á
fólki eða menn hendi gaman að. Ekki flettir
maður svo upp á þeirri kvikmyndahússauglýs-
ingu í dagblöðunum, að ekki séu saman tvinn-
uð a. m. k. tvö lýsingarorð, sem merkja
skemmtilegur, spennandi, fagur eða þess hátt-
ar. Hér má t. d. nefna lýsingarorð eins og
hörkuspennandi (nú er svo komið, að lýsingar-
orðið spennandi nær ekki tilætluðum áhrifum),
bráðskemmtilegur (sama er að segja um
skemmtilegur og um spennandi), æsandi, hroll-
vekjandi, taugaæsandi, hrífandi og svo mætti
lengi telja. Þessi lýsingarorð og mörg fieiri geta
svo staðið saman á ýmsa vegu, svo sem hríf-
andi fögur... æsispennandi og hrollvekjandi
... hugnæm og falleg... og þar fram eftir
götunum. Þess má geta, að gildi myndanna
stendur æðioft í öfugu hlutfalli við fjölda og
styrkleika þeirra lýsingarorða, sem noutð eru í
auglýsingunni, en ekki verður farið út í þá
sálma hér, þetta hafa eflaust flestir reynt. En
þá kann vafalaust einhver að spyrja, hvaða á-
stæða sé til að vera að fetta fingur út í þetta,
hvort hér ríki ekki prentfrelsi og mönnum í
sjálfsvald sett, hvernig þeir auglýsa. Vitanlega
er ekki hægt að setja auglýsendum neinar
skorður í þessum efnum, svo fremi að ekki sé
um óskiljanlegt afskrípi að ræða. Hins vegar
missa lýsingarorðin smátt og smátt þá merk-
42