Mímir - 01.03.1968, Qupperneq 43

Mímir - 01.03.1968, Qupperneq 43
ingu eða þann styrkleika, sem þau höfðu. Orð- ið spennandi kveður ekki eins fast á og áður, enda er nú farið að nota orðið hörkuspennandi, sbr. hér að framan. Sama er um skemmtilegur að segja o. s. frv. Ekki nóg með það, nú þarf oft tvö lýsingarorð til að tjá sömu eða svipaða merkingu og eitt gat áður. Nú nægir ekki að segja hrollvekjandi eða spennandi, heldur þarf að segja æsispennandi og hrollvekjandi, þótt með þessum tveimur orðum sé í raun og veru verið að vekja athygli á því sama og felst í öðru hvoru þeirra, er þau standa út af fyrir sig. Ef svo heldur fram sem horfir, verður þess varla langt að bíða, að við sjáum kvikmynda- auglýsingar með lýsingarorðum eins og hörku- æsispennandi og bráðhrollvekjandi... eða bráðsprenghlægileg, glæsileg, hrífandi fögur... og hamingjan má vita í hverju það endar. Eg held, að auglýsendur þeir, sem um er að ræða, næðu miklu betri árangri með því að líkja meir eftir auglýsingum leikhúsanna, þ. e. koma aðeins fram með staðreyndir, t. d. hverjir leika aðalhlutverkin, sem þeir reyndar auglýsa oftast, hver sé leikstjóri, framleiðandi og hve- nær myndin sé gerð (í stað þess að auglýsa allar myndir nýjar). Sama þróun og hér að framan hefur verið lýst, er þegar ekki er lengur nægilegt að nota orðið dansleik til að auglýsa dansleiki. Nú dugir ekki að nota annað en orðið stórdans- leikur. Ekki er mér kunnugt um, að hvaða leyti stórdansleikur er frábrugðinn venjulegum dansleik, en grun hef ég um, að munurinn sé lítill sem enginn. Séð hef ég götuauglýsingu, þar sem auglýst var ofsaball í einu veitingahús- inu hér í bæ. Skyldum við e. t. v. einhvern tíma eiga eftir að upplifa ofsastórgarðsball? Þá er annað atriði, sem gaman er að íhuga, en það er, hversu menn geta verið ósmekklegir í vali sínu á nöfnum á danshljómsveitir. Mikill hluti íslenzkra danshljómsveita ber nú erlend nöfn, t. d. Flowers, Ferguson (var a. m. k. til), Bendix, Zoo, og þannig mætti lengi telja, en þessu geta menn flett upp í dagblöðum. Nafnið Mods á einni hljómsveitinni er líklega þannig til komið, að þeir, sem mynda hana, hafa tekið upphafsstaf nafna sinna og raðað þeim svona „smekklega” saman. En þetta er afar óíslenzku- leg skammstöfun. Skyldu þeir, sem nefndu hljómsveit sína Axlabandið, hafa ætlað að bæta hér eitthvað um? Band, sem hér virðist notað í merkingunni hljómsveit, er enskt orð, sem merkir m.a. flokkur, og sagt er á ensku „band of musicians”, og er það vafalaust lagt til grundvallar fyrrgreindri nafngift. Mjög er einn- ir í tízku að nefna hljómsveitir eftir heitum stjarnanna, en það er þó e. t. v. afsakanlegra, þar sem hér er jafnan um alþjóðleg orð að ræða. En langsmekklegast finnst mér þó að kenna hljómsveitir við hljómsveitarstjórann t. d. Flljómsveit Ragnars Bjarnasonar o. s. frv. Hér hefur aðeins verið drepið á fáar smekk- leysur, sem sjá má iðulega í auglýsingum, sem birtast í blöðum og víðar. En tólfunum kastar þó, þegar erlendar auglýsingar eru birtar ó- þýddar, sem er þó til allrar hamingju sjaldgæft. Þátturinn verður þá ekki lengri að sinni. Eiríkur Þormóðsson 43

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.