Mímir - 01.03.1968, Page 44

Mímir - 01.03.1968, Page 44
UM BÆKUR Þorsteinn Thorarensen: I fótspor feðranna — Fjölvi 1966. Eldur í æðum — Fjölvi 1967. Þorsteinn Thorarensen fylgir í fótspor flestra þeirra, sem áður hafa skrifað um íslenzka sögu. Bækur hans eru fyrst og fremst persónusaga. Bækurnar tvær, sem hér um ræðir, eru upp- haf að ritflokki um aldamótaárin. Sú fyrri fjall- ar um þjóðlíf í Reykjavík, Kristján IX, Friðrik VIII, dönsk stjórnmál, síðasta landshöfðingj- ann og tvo fyrstu ráðherrana á Islandi, en seinni bókin um íslenzka uppreisnarmenn. Þær eru skemmtilegar aflestrar og læsilegar. All- mikill blaðamannsbragut er á bókunum, svo mikill, að stundum minnir á æsifréttamennsku. Gott dæmi um spennuþrunginn stíl Þorsteins er á bls. 15S í I fótspor feðranna: „Og æsingar urðu í landinu. Meðan þingfundur stóð yfir um hið umdeilda símamál, komu hópar bænda austan úr sveitum og höfðu í hótunum um stjórnarbyltingu. Þeir gengu fylktu liði að Alþingis- húsinu. — Ætluðu þeir að rjúfa hús á sjálfri lög- gjafarstofnun þjóðarinnar? I forsetasætinu sat gamli Magnús landshöfðingi, þykkur og þybbinn og krafta- legur og beið þeirra búinn. I skúffunni í forseta- borði sínu hafði hann til reiðu pístólu og hann var staðráðinn í að skjóta, ef þessi lýður gerðist svo djarfur að rjúfa helgi þingsins. En til þess kom ekki. Þeir þokuðust aftur frá." Hér leiðist Þorsteinn út í hæpnar fullyrðing- ar í hita frásagnarinnar. Fróðlegt væri að vita, hvaðan honum kemur vitneskja um pístól- una og ásetning landshöfðingjans. Þessi stíll lætur Þorsteini vel, en virðist, a. m. k. stundum, bitna á sannfræðinni. A innbroti kápu að fyrri bókinni stendur, að henni sé ætlað að vera tengiliður fyrir núverandi og uppvaxandi kyn- slóð við nánustu fortíð. Bækurnar mætti því e. t. v. flokka sem alþýðleg fræðirit fremur en sagnfræðirit. Því er ekki að leyna, að Þorsteini tekst all- vel að fjarlægjast sögupersónur og sjá þær í gagnrýnisljósi. Gefur hann sannari mynd af þeim en t. d. Kristján Albertsson í ritinu um Hannes Hafstein. Hann reynir að tefla fram ó- líkum skoðunum og meta þær án þess að fella beinlínis dóm á þá, sem rangt höfðu fyrir sér. Hann gerir sér far um að hnekkja goðsögnum, sem myndast hafa um einstaka menn t. d. Hannes Hafstein, Skúla Thoroddsen og Þorstein Erlingsson. Verða þeir mannlegri fyrir bragðið, þó að stundum sé gert of mikið af því að hlaupa eftir alls kyns sögusögnum t. d. í sambandi við ástarmál Þorsteins Erlingssonar. Rauði þráðurinn í þessum bókum er hin harða stjórnmálabarátta aldamótaáranna, ó- svífinn blaðamennska, vald ætta og ættarsam- heldni, barátta íhaldsmanna með einræðistil- hneigingar og lýðræðissinna, stundum allrót- tækra og hringl stjórnmálamanna milli skoðana og flokka. Tök Þorsteins á þessu efni eru víða með ágætum og á frásagnargleði hans sinn þátt í því. Svokölluðum Skúlamálum á Isafirði er nákvæmlega lýst. Gefur sá kafli góða mynd 44

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.