Mímir - 01.03.1968, Side 49

Mímir - 01.03.1968, Side 49
algengara orð, sem gæti verið fyrri liður nafns- ins, kvenkynsorðið ull. Flestir munu kannast við, að vatn, sem fellur fram í foss, minnir oft á ull til að sjá, og að sögn kunnugra er það ekki fjarri lagi um Ullarfoss. Auk þess munu vera til fleiri Ullarfossar á landinu. Mér þykir líka í meira lagi hæpið að álykta, að öll fjalla- nöfn, sem hafa mannsnafn að fyrri lið, séu til orðin vegna átrúnaðar á fjöllunum, eins og höf- undur virðist gera (bls. 76). íslendingar hafa löngum komið nálægt fjöllum landsins á fleiri vegu en að ganga í þau dauðir. Mörg fleiri dæmi mætti nefna um hvatvís- legar fullyrðingar. Það er blekkjandi að taka upp ræðu Einars Þveræings úr Heimskringlu og segja blákalt, að hann hafi flutt hana á al- þingi á dögum Olafs Haraldssonar, jafnvel þótt vitnað sé til heimildar (bls. 174). Stundum spillir höfundur lofsverðum, en dálítið hæpn- um sögulegum kenningum með því að full- yrða þær stífar en heimildir eru til. Má þar nefna kenninguna um valdaaðstöðu Skafta Þór- oddssonar (bls. 104 og 207). Það er mjög skemmtilegt að skýra umbótastörf Skafta sem viðnám bændastéttarinnar gegn ofríki höfð- ingja, en ekki getur taiizt annað en blekking að setja slíkt fram sem staðreynd. Höfundur kvartar undan því í eftirmála, að jafnvel hugtakafræði ísienzkrar sögu sé á tals- verðu reiki (bls. 294). Er það sízt ofmælt, enda algengt í sagnfræði. Hugtakanotkun er ekki heldur alltaf sem skýrust í þessari bók, og má nefna sem dæmi orðið bókmenntir. Sérstak- ur kafli ber heitið Bókmenntir, þar sem rætt er um flestar eða allar tegundir ritaðs máls á þjóð- veldisöld. Mætti af því ætla, að orðið væri þarna notað í víðustu merkingu, eins og algengt er um fornrit. Það kemur þó ekki heim við þessa málsgrein (bls. 229): „Lögin teljast ekki beinlínis til bókmennta, en þó kennir þar skáld- legra tilþrifa." Hins vegar er ekki minnzt á annað en rit um tímatals- og rímvísindi, landa- fræði og málfræði (bls. 236—38) teljist „bein- iínis'' til bókmennta. Yfirleitt er mjög erfitt að átta sig á því eftir þessari bók, hvað af rituðu máli fornu teljist hafa gildi sem bókmenntir í hinni þrengri merkingu. Til dæmis er ekkert minnzt á bókmenntagildi Eddukvæða eða drótt- kvæða (bls. 226—-27) og Heimskringlu ekki fundið annað til frægðar en heimildagagnrýni og hlutlægni í frásögn (bls. 241). Hins vegar er borið mikið lof á Hryggjarstykki, hið glat- aða rit Eiríks Oddssonar (bls. 239): „Eiríkur gerir sér far um að leiða persónurnar fram, birta sérkenni þeirra í orðum og athöfnum. Hryggjarstykki var fræðirit, en einnig vel sögð og hugtæk saga." Mér er að vísu nauðugt að hætta mér út í náttúrufræði, en eitthvað finnst mér bogið við þessa skýrgreiningu (bls. 47): „Hugtakið jarð- hiti táknar svæði, þar sem stöðugur ylur er í jörðu óháður veðurfarsbreytingum." Hins er skylt að geta, að höfundur gerir ýmsar þarfari og árangursríkari tilraunir tii að skýrgreina hugtök. Má þar nefna afmörkun hans á hugtak- inu þjóðveldi (bls. 93), sem dregur fram, að þar er ekki um neitt séríslenzkt fyrirbrigði að ræða. Einna versti galli bókarinnar er ef til vill, hve efnisskipun er víða óregluleg. Náskyld at- riði eru slitin í sundur, óskyldum atriðum dengt saman og endurtekningar afar margar. Er víða líkast því, að höfundur hafi skrifað hverju sinni, það sem honum datt í hug, án þess að hugleiða, hvar það ætti heima eða hvort það væri tekið fyrir áður. Eg tek nokkur dæmi um þetta. I kafla um atvinnuhætti er getið um verð- hlutfall kúgildis og vaðmáls, silfurs og vað- máls, sauðfjár og kúa, og rætt um verðlags- breytingar á 9- — 11. öld (bls. 119—20). í kafla um verzlun og siglingar er undirkafli, sem heitir Verðmiðill. Þar er sagt frá verðhlutfalli gulls og vaðmáls, endurteknar upplýsingar um verð sauðfjár miðað við kýr og rætt um verð- lagsbreytingar á 10. — 12. öld (bls. 141—42). Sagt er frá lögfestingu tíundar og aðalatrið- um tíundarlaga í kafla um upphaf íslenzku kirkjunnar (bls. 181—82). Nokkru síðar, í kafla um kennimenn og kirkjuskipun, er rætt um tekjur kirkjunnar og raktar reglur um eign- ir, sem undanþegnar voru tíund (bls. 201). 49

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.